-
Fólk tekur ákvarðanir á hverjum degi.
-
Til dæmis áður en þú ferð út
-
þá hefur þú eiginlega ef-setningu,
sem er svona:
-
EF það er rigning,
ÞÁ þarf ég að ná í jakkann minn.
-
Og tölvur eru frábærar þegar þú hefur ákveðið að nota svona setningar,
-
sem þær geta framkvæmt örugglega og á ótrúlegum hraða.
-
Þannig að tölvuforrit er í rauninni
-
smávegis stærðfræði og nokkrar
-
ef-setningar, þar sem ákvörðun er tekin.
-
Í þessari þraut er
-
ef-kubbur, sem hjálpar uppvakningnum að taka ákvörðun,
-
Hann athugar eitthvað.
-
Sem dæmi skulum við nota kubb sem segir,
"ef það er slóð til vinstri"
-
og setja "snúa til vinstri"-skipun
inn í hann
-
Þá erum við að segja uppvakningnum
að skoða umhverfi sitt
-
og kanna hvort það er slóð til vinstri,
-
og ef svo er þá snúa í þá átt.
-
Og svo notum við "færa-áfram"-kubb
innan í þessari endurtekningu
-
til að láta hann færa sig áfram
svo lengi sem
-
hann vill bara fara beint.
-
Svo þegar það er beygja, þá mun ef-kubburinn
segja honum að snúa sér til vinstri.
-
Og þú getur séð að ef við gerum það
-
ef við tökum beygjuna til vinstri en förum annars áfram,
þá munum við ná markmiðinu.
-
Þetta er dæmi um að nota ef--setningu
-
sem er í raun grundvallarhugtak í tölvuforritun.
-
Eitt af því fyrsta sem ég lærði
var hvernig á að skrifa forrit sem spilar myllu
-
svo ég hafði ef-setningar til að segja
-
að ef hinn spilarinn er að fara að sigra, að loka þá á þann stað.
-
Skemmtu þér því vel við að læra að nota ef-setningar,
Þær eru lykilhugtak.