-
Hvað eru peningar?
-
Öll notum við peninga.
Við þurfum þá til að kaupa hluti.
-
Við vinnum stíft til að eignast þá.
Við söfnum fyrir eftirlaunum eða mögru áranna.
-
Við treystum öll á peninga.
-
Hvers vegna vitum við þá ekki
hvernig peningar virka?
-
Af hverju er stundum of mikið af þeim, sem lætur
okkur halda að góðu tímarnir vari að eilífu?
-
Hvaðan komu allir þessir peningar?
-
Og afhverju er skyndilega
ekki nægir peningar til staðar?
-
Af hverju á fólk erfitt
með að borga reikningana?
-
Hvert fóru allir peningarnir?
-
Hið undarlega er að megnið af peningum
í Bretlandi eru búnir til af bönkum.
-
Nánast eins og töframenn skapa bankar peninga,
að því er virðist úr engu
-
í hvert skipti sem þeir veita lán.
-
En þessir peningar eru ekki
það sem þeir virðast vera.
-
Þessir peningar eru skuldir og eru
tímabundið að láni frá bönkunum.
-
Við notum þá sem peninga,
við höldum að þeir séu peningar.
-
En sökum þess að þeir eru skuldir þarf
á einhverjum tímapunkti að endurgreiða þá.
-
Og þegar þeir eru endurgreiddir,
þá hverfa þeir.
-
Þetta eru ekki töfrar,
svona eru nær allir okkar peningar
-
skapaðir og þeim eytt.
-
Þannig að, hversu áreiðanlegir eru þessir
„bankapeningar“ sem við treystum öll á?
-
Bankar hagnast á vöxtum sem
þeir afla af útlánum.
-
Þannig að á meðan þeir hafa trú á efnahagshorfurnar,
reyna þeir að lána út eins mikið og hægt er.
-
Fleiri neyslu- og húsnæðislán þýðir að
meiri peningar eru búnir til.
-
Og áður en þú veist af hækkar
fasteignaverð upp úr öllu valdi.
-
En ef þeir veita of mikið af lánum,
verður skuldsetningin of mikil,
-
svo fólk hefur ekki ráð
á að endurgreiða þau.
-
Þá hætta bankarnir að veita ný lán. Skyndilega er ekki nægjanlega mikið peningamagn í umferð.
-
Fyrirtæki fara í gjaldþrot. Fólk missir atvinnuna
og gengið er að fasteignaveðum.
-
Þetta er það sem olli fjármálakrísunni.
-
Og í grundvallaratriðum
hefur ekkert breyst síðan þá.
-
Peningar eru enn skapaðir af bönkunum.
Og þeir hverfa enn þegar útlán eru endurgreidd.
-
Þangað til við breytum þessu
munum við ekki öðlast stöðugt hagkerfi,
-
öruggt atvinnustig,
-
eða húsnæði á sanngjörnum kjörum.
-
En þetta þarf ekki að vera svona.
-
Positive Money berst fyrir breytingum á
hvernig peningar eru búnir til.
-
Og við þörfnumst þín til liðs við okkur.
-
www.positivemoney.org