Hvað gerist þegar þú færð sjúkdóm sem læknar geta ekki greint?
-
0:05 - 0:07Halló.
-
0:08 - 0:09Þakka ykkur fyrir.
-
0:09 - 0:11(Jennifer Brea þolir ekki hávaða.)
-
0:11 - 0:14(Áhorfendur voru beðnir að
„klappa“ hljóðlaust.) -
0:14 - 0:17Þetta var ég fyrir fimm árum.
-
0:18 - 0:20Ég var doktorsnemi við Harvard háskóla
-
0:20 - 0:22og naut þess að ferðast.
-
0:22 - 0:26Ég var að fara að giftast
stóru ástinni í lífi mínu. -
0:27 - 0:31Ég var 28 ára og fannst ég
ósigrandi eins og -
0:31 - 0:33svo mörgum finnst á þeim aldri.
-
0:34 - 0:38Einn daginn fékk ég svo yfir
40 stiga hita. -
0:39 - 0:41Ég hefði líklega átt að fara til læknis
-
0:41 - 0:43en ég hafði aldrei orðið veik áður,
-
0:43 - 0:46ég vissi að þegar maður fengi vírussýkingu
-
0:46 - 0:49ætti maður að halda sig heima
og fá sér kjúklingasúpu og -
0:49 - 0:51eftir nokkra daga yrði maður
frískur aftur. -
0:52 - 0:54En það gerðist ekki að þessu sinni.
-
0:56 - 0:57Eftir að hitinn lækkaði
-
0:57 - 1:01svimaði mig svo mikið að ég
komst ekki út úr húsi. -
1:01 - 1:04Ég gekk beint á dyrakarma.
-
1:04 - 1:07Ég þurfti að fara með veggjum
til að komast á baðherbergið. -
1:09 - 1:11Þetta vor fékk ég hverja sýkinguna
á fætur annarri -
1:12 - 1:14en alltaf þegar ég fór til læknisins
-
1:14 - 1:16sagði hann að það væri ekkert að mér.
-
1:18 - 1:19Hann gerði alls kyns próf
-
1:19 - 1:21sem sýndu ekkert athugavert.
-
1:22 - 1:24Ég var bara með þessi einkenni
-
1:24 - 1:26sem ég gat lýst fyrir öðrum
-
1:26 - 1:28en enginn gat séð.
-
1:29 - 1:31Það hljómar fáránlega
-
1:31 - 1:34en maður verður að skýra þetta einhvern
veginn fyrir sjálfum sér -
1:34 - 1:38og ég hélt að ég væri kannski
bara að eldast. -
1:38 - 1:42Kannski væri það bara svona að
verða eldri en 25 ára. -
1:42 - 1:44(Hlátur)
-
1:45 - 1:47Þá byrjaði ég að finna
fyrir taugaeinkennum. -
1:48 - 1:51Stundum gat ég ekki teiknað hægri
hlutann af hring. -
1:52 - 1:56Stundum gat ég hvorki talað né hreyft mig.
-
1:58 - 2:00Ég fór til alls konar sérfræðinga;
-
2:00 - 2:03smitsjúkdómalækna, húðlækna,
innkirtlasérfræðinga, -
2:03 - 2:04hjartalækna.
-
2:05 - 2:07Ég fór jafnvel til geðlæknis.
-
2:08 - 2:11Hann sagði: „Þú ert greinilega
mjög veik -
2:11 - 2:13en það er ekki geðrænt.
-
2:14 - 2:17Ég vona innilega að einhver geti sagt þér
hvað er að.“ -
2:18 - 2:22Daginn eftir greindi taugalæknirinn
minn mig með hugbrigðaröskun. -
2:23 - 2:25Hann sagði að öll einkennin -
-
2:25 - 2:28hitinn, særindin í hálsi,
öndunarfærasýkingarnar, -
2:29 - 2:32öll einkennin frá maga,
tauga- og hjartaeinkennin - -
2:33 - 2:35orsökuðust af gömlu tilfinningaáfalli
-
2:35 - 2:37sem ég myndi ekki eftir.
-
2:38 - 2:40Hann sagði að einkennin væru raunveruleg
-
2:41 - 2:43en orsökin væri ekki líkamleg.
-
2:45 - 2:47Ég var að læra félagsvísindi.
-
2:47 - 2:50Ég hafði lært um tölfræði,
líkindareikning, -
2:50 - 2:53reiknilíkön, tilraunalíkön.
-
2:55 - 2:59Mér fannst ég ekki bara geta hafnað
greiningu taugalæknisins. -
3:00 - 3:01Hún hljómaði ekki sönn
-
3:01 - 3:05en ég hafði lært að sannleikurinn
getur verið snúinn -
3:05 - 3:08og auðveldlega litast af því sem við
viljum trúa. -
3:09 - 3:11Svo ég varð að reikna með þeim möguleika
að þetta væri rétt. -
3:14 - 3:16Þennan dag gerði ég smá tilraun.
-
3:17 - 3:20Ég gekk heim frá lækninum,
rúmlega 3 kílómetra -
3:21 - 3:25með þennan einkennilega verk í fótunum
eins og rafstraum. -
3:26 - 3:28Ég einbeitti mér að verknum og
-
3:28 - 3:32velti því fyrir mér hvernig hugur minn
hefði farið að því að framkalla hann. -
3:33 - 3:35Um leið og ég gekk inn um dyrnar heima
-
3:35 - 3:36hrundi ég niður.
-
3:37 - 3:40Það var eins og heilinn og mænan loguðu.
-
3:41 - 3:44Hálsinn var svo stífur að ég gat ekki
snert bringuna með hökunni -
3:45 - 3:47og minnsti hávaði -
-
3:47 - 3:49skrjáfið í rúmfötunum,
-
3:49 - 3:51fótatak mannsins míns í næsta herbergi -
-
3:52 - 3:54olli mér óþolandi sársauka.
-
3:56 - 3:58Næstu tvö árin var ég meira og minna
í rúminu. -
3:59 - 4:02Hvernig gat læknirinn haft svona rangt
fyrir sér? -
4:03 - 4:05Ég taldi mig vera með sjaldgæfan sjúkdóm
-
4:05 - 4:07eitthvað sem læknar hefðu ekki séð fyrr.
-
4:08 - 4:09Svo ég fór á netið
-
4:09 - 4:12og fann mörg þúsund manns um allan heim
-
4:12 - 4:14með sömu einkenni,
-
4:14 - 4:16jafn einangruð,
-
4:16 - 4:17og þeim var heldur ekki trúað.
-
4:18 - 4:19Sumir gátu enn unnið
-
4:19 - 4:22en urðu að vera í rúminu á kvöldin
og um helgar -
4:22 - 4:24til að geta mætt aftur á mánudegi.
-
4:24 - 4:26Á hinum enda rófsins
-
4:26 - 4:28voru aðrir svo veikir
-
4:28 - 4:31að þeir urðu að lifa í algeru myrkri,
-
4:31 - 4:34ófærir um að þola raddir
-
4:34 - 4:36og snertingu ástvina sinna.
-
4:37 - 4:41Ég var greind með
Myalgic Encephalomyelitis. -
4:43 - 4:46Þú hefur líklega heyrt talað um það
sem „síþreytu“. -
4:47 - 4:49Áratugum saman hefur það nafn
-
4:49 - 4:51orðið til þess að þetta
-
4:52 - 4:53hefur orðið ímynd sjúkdóms
-
4:55 - 4:57sem getur verið svona alvarlegur.
-
4:57 - 4:59Höfuðeinkeinnið sem við þekkjum
-
4:59 - 5:03er að áreynsla - bæði andleg
og líkamleg - -
5:03 - 5:05reynist okkur dýrkeypt.
-
5:06 - 5:09Ef maðurinn minn fer út að hlaupa fær
hann strengi í nokkra daga. -
5:09 - 5:13Ef ég geng aðeins niður götuna
leggst ég kannski í rúmið í viku. -
5:13 - 5:16Þetta er fangelsi sniðið að hverjum
og einum. -
5:16 - 5:19Ég þekki ballettdansara sem
geta ekki dansað, -
5:19 - 5:21endurskoðendur sem geta ekki reiknað,
-
5:21 - 5:24læknanema sem aldrei urðu læknar.
-
5:24 - 5:27Það skiptir engu máli hvað þú varst áður;
-
5:27 - 5:29þú getur ekki gert það lengur.
-
5:29 - 5:31Nú hafa liðið fjögur ár
-
5:31 - 5:34og ég hef aldrei aftur orðið eins góð
og ég var -
5:34 - 5:37rétt áður en ég gekk heim frá
taugasérfræðingnum. -
5:39 - 5:42Það er áætlað að á milli 15 og 30
milljónir um allan heim -
5:42 - 5:43séu með þennan sjúkdóm.
-
5:44 - 5:47Í Bandaríkjunum, þaðan sem ég kem, eru
þetta um milljón manns. -
5:47 - 5:51Það eru u.þ.b. tvöfalt fleiri en eru
með MS. -
5:52 - 5:55Sjúklingar geta lifað áratugum saman
með líkamlega getu -
5:55 - 5:57á við einhvern með hjartabilun.
-
5:57 - 6:0025% okkar eru bundin við heimilið
eða jafnvel rúmið -
6:01 - 6:05og 75-85% okkar geta ekki einu sinni
unnið hlutastarf. -
6:05 - 6:07Samt hjálpa læknar okkur ekki
-
6:08 - 6:10og vísindin rannsaka okkur ekki.
-
6:11 - 6:15Hvernig getur sjúkdómur sem er svona
algengur og alvarlegur -
6:15 - 6:17bara gleymst í heimi læknavísindanna?
-
6:19 - 6:22Þegar læknirinn greindi mig með
hugbrigðaröskun -
6:22 - 6:24var hann að skírskota til
hugmynda um kvenlíkamann -
6:25 - 6:27sem eru meira en 2500 ára gamlar.
-
6:27 - 6:29Rómverski læknirinn Galen taldi
-
6:29 - 6:32að móðursýki orsakaðist af kynsvelti
-
6:32 - 6:34hjá sérstaklega lostafengnum konum.
-
6:35 - 6:38Grikkir töldu að móðurlífið gæti hreinlega
þornað upp -
6:38 - 6:40og rekið um líkamann í leit að raka
-
6:40 - 6:42og þar með þrýst á innri líffæri -
-
6:42 - 6:43- já -
-
6:45 - 6:47og orsakað þannig einkenni allt frá
tilfinningasveiflum -
6:47 - 6:50til svima og lömunar.
-
6:51 - 6:53Lækningin fólst í hjónabandi og
barneignum. -
6:55 - 6:59Þessar hugmyndir lifðu eiginlega óbreyttar
í nokkur þúsund ár þar til um 1880-1890 -
6:59 - 7:03þegar taugasérfræðingar reyndu að færa
kenningar um móðursýki til nútímans. -
7:04 - 7:05Sigmund Freud þróaði kenningu um
-
7:05 - 7:08að undirmeðvitundin geti valdið líkamlegum
einkennum þegar -
7:08 - 7:10unnið er úr minningum eða tilfinningum
-
7:10 - 7:13sem eru of sárar fyrir meðvitundina.
-
7:13 - 7:16Tilfinningarnar birtast þá sem líkamleg
einkenni. -
7:17 - 7:20Þetta þýddi að karlmenn gátu nú orðið
-
7:20 - 7:22móðursjúkir en konum var þó
hættara við því. -
7:23 - 7:27Þegar ég hóf að rannsaka sögu
míns sjúkdóms -
7:27 - 7:30varð ég hissa á hve rótgrónar þessar
hugmyndir eru enn í dag. -
7:31 - 7:32Árið 1934
-
7:32 - 7:37urðu 198 læknar, hjúkrunarfræðingar og
starfsfólk á sjúkrahúsi í Los Angeles -
7:37 - 7:39alvarlega veik.
-
7:39 - 7:43Þau urðu máttlaus, stíf í hálsi og baki
og fengu hita - -
7:43 - 7:46öll einkennin sem ég fann fyrir þegar ég
veiktist. -
7:47 - 7:49Læknar héldu að þetta væri lömunarveiki.
-
7:50 - 7:53Síðan þá hafa komið upp meira en
70 svona faraldrar -
7:53 - 7:54um allan heim
-
7:54 - 7:57af mjög svipuðum veikindum
í kjölfar sýkinga. -
7:57 - 8:01Þessir faraldrar virðast einkum leggjast
á konur -
8:01 - 8:05og þegar læknum tókst ekki að finna
orsök veikindanna -
8:05 - 8:09töldu þeir að um móðursýkisfaraldur væri
að ræða. -
8:09 - 8:12Hvers vegna er þessi hugmynd svona
lífsseig? -
8:14 - 8:15Ég held að þetta sé kynjahyggja
-
8:15 - 8:19en ég held að læknar vilji raunverulega
hjálpa. -
8:19 - 8:21Þeir vilja vita svarið
-
8:21 - 8:26og þessi flokkur gerir þeim kleyft að að
meðhöndla það sem annars er ólæknandi; -
8:26 - 8:28að skýra óskiljanlega sjúkdóma.
-
8:29 - 8:32Vandinn er að þetta getur valdið
raunverulegum skaða. -
8:32 - 8:36Á sjötta áratugnum rannsakaði
sálfræðingurinn Eliot Slater -
8:36 - 8:4085 sjúklinga sem höfðu verið greindir
með móðursýki. -
8:41 - 8:45Níu árum síðar voru 12 þeirra látnir og
30 bjuggu við örorku. -
8:45 - 8:48Margir þjáðust af vangreindum sjúkdómum
svo sem MS, -
8:48 - 8:50flogaveiki, heilaæxlum.
-
8:51 - 8:55Árið 1980 var nafninu móðursýki
opinberlega breytt í „hugbrigðaröskun“. -
8:56 - 8:59Þegar taugasérfræðingurinn greindi mig
árið 2012 -
8:59 - 9:02var hann að vitna beint í Freud
-
9:02 - 9:03og enn þann dag í dag
-
9:03 - 9:07eru konur tvisvar til tíu sinnum líklegri
til að fá þessa greiningu. -
9:08 - 9:12Vandinn við kenninguna um móðursýki
eða geðvefræna sjúkdóma -
9:13 - 9:15er að ekki er hægt að sanna hana.
-
9:15 - 9:17Hún er í eðli sínu skortur á sönnunum
-
9:18 - 9:20og í tilfelli ME
-
9:20 - 9:24hafa sálfræðilegar skýringar staðið í vegi
fyrir líffræðilegum rannsóknum. -
9:24 - 9:27Um allan heim er ME einn af fjársveltustu
sjúkdómunum. -
9:27 - 9:34Í Bandaríkjunum er 2500 dollurum veitt í
hvern AIDS sjúkling árlega -
9:35 - 9:38250 dollurum í hvern MS sjúkling
-
9:38 - 9:41og aðeins 5 dollurum árlega í hvern
ME sjúkling. -
9:42 - 9:44Þetta var ekki elding.
-
9:44 - 9:46Ég var ekki bara óheppin.
-
9:46 - 9:50Þekkingarleysið sem einkennir minn sjúkdóm
er val; -
9:50 - 9:54val þeirra stofnanna sem eiga að
verja okkur. -
9:56 - 9:58Við vitum ekki hvers vegna ME gengur
stundum í ættir, -
9:58 - 10:01hvers vegna nánast allar sýkingar
geta valdið því -
10:01 - 10:05allt frá entrovírusum til
einkyrningssóttar og Q-hitasóttar -
10:05 - 10:08eða hvers vegna það hrjáir 2-3 sinnum
fleiri konur en menn. -
10:09 - 10:12Þessi vandi nær langt út fyrir minn
sjúkdóm. -
10:12 - 10:14Þegar ég veiktist fyrst
-
10:14 - 10:16byrjuðu gamlir vinir að hafa samband.
-
10:16 - 10:19Fljótlega myndaðist hópur kvenna á
þrítugsaldri sem voru -
10:19 - 10:21að missa heilsuna.
-
10:22 - 10:25Við áttum í ótrúlegum vandræðum með að
-
10:25 - 10:26vera teknar alvarlega.
-
10:27 - 10:29Ein kona með herslihúð
-
10:29 - 10:31sem er sjálfsónæmissjúkdómur
-
10:31 - 10:33var sagt árum saman að veikindin
væru bara ímyndun. -
10:33 - 10:36Þegar hún fékk loksins greiningu
-
10:36 - 10:38hafði vélinda hennar skemmst svo mikið
-
10:38 - 10:41að hún mun aldrei getað borðað aftur.
-
10:41 - 10:43Önnur kona sem var með krabbamein
-
10:44 - 10:46í eggjastokkum var sagt að það væru
snemmbúin tíðahvörf. -
10:47 - 10:49Gömul skólasystir var með
-
10:49 - 10:53heilaæxli sem var ranggreint sem
kvíði. -
10:54 - 10:56Það sem veldur mér áhyggjum
-
10:57 - 11:01er að margir sjálfsónæmissjúkdómar
eru nú tvöfalt til þrefalt algengari -
11:01 - 11:02en um miðja síðustu öld.
-
11:03 - 11:0645% þeirra sjúklinga sem að
lokum eru greindir -
11:06 - 11:08með þekkta sjálfsónæmissjúkdóma
-
11:08 - 11:10er upphaflega sagðir ímyndunarveikir.
-
11:11 - 11:14Rétt eins og móðursýkin hér áður fyrr
er þetta spurning um kyn -
11:14 - 11:16og hverju við trúum.
-
11:17 - 11:2175% sjúklinga með sjálfsónæmissjúkdóma
eru konur og í sumum tilfellum -
11:21 - 11:24er hlutfallið allt að 90%.
-
11:25 - 11:28Þótt þessir sjúkdómar leggist helst
á konur -
11:28 - 11:30eru þeir ekki kvennasjúkdómar.
-
11:30 - 11:33ME leggst á börn og líka á milljónir
karlmanna. -
11:33 - 11:35Eins og einn sjúklingur sagði mér
-
11:35 - 11:37gengur þetta í báðar áttir -
-
11:37 - 11:40konur eru sagðar ýkja einkennin
-
11:40 - 11:44en körlum er sagt að harka af sér.
-
11:45 - 11:49Karlar eiga jafnvel erfiðara með að
fá greiningu. -
11:57 - 12:00Ég er ekki eins skýr í höfðinu og áður.
-
12:14 - 12:15Hér er góði hlutinn:
-
12:17 - 12:19Þrátt fyrir allt er ég enn vongóð.
-
12:20 - 12:24Margir sjúkdómar voru áður fyrr taldir
sálrænir -
12:24 - 12:27þar til vísindin fundu út hvað olli þeim.
-
12:27 - 12:30Flogaveikisjúklingar voru stundum
nauðungarvistaðir á stofnunum -
12:30 - 12:35þar til hægt var að nota heilalínurit
til að mæla frávik í heilabylgjum. -
12:36 - 12:40MS var stundum ranggreint sem
móðursýki þar til -
12:40 - 12:43hægt var að sjá taugaskemmdir á
tölvusneiðmyndum. -
12:44 - 12:45Til skamms tíma héldum við að
-
12:45 - 12:48magasár stafaði eingöngu af streitu
-
12:48 - 12:52þar til uppgötvað var að H. pylori
bakterían var orsökin. -
12:53 - 12:56ME hefur aldrei notið stuðnings frá
vísindum á sama hátt -
12:56 - 12:58og aðrir sjúkdómar
-
12:58 - 13:00en það er að byrja að breytast.
-
13:01 - 13:04Vísindamenn í Þýskalandi eru byrjaðir
að sýna fram á tilvist sjálfsónæmis -
13:04 - 13:07og í Japan bólgur í heila.
-
13:07 - 13:10Í Bandaríkjunum hafa vísindamenn við
Stanford háskóla fundið -
13:10 - 13:12óeðlileg efnaskipti í orkuframleiðslu
-
13:12 - 13:16sem eru 16 staðalfrávikum frá því
sem getur talist eðlilegt. -
13:17 - 13:21Í Noregi fer fram þriggja fasa klínísk
rannsókn -
13:21 - 13:24á krabbameinslyfi sem veitir sumum
sjúklingum tímabundinn bata. -
13:26 - 13:27Það sem gefur mér einnig von
-
13:28 - 13:30er þrautsegja sjúklinganna.
-
13:32 - 13:34Við hittumst á netinu
-
13:34 - 13:36og deildum sögum okkar.
-
13:37 - 13:40Við gleyptum í okkur allar rannsókir
sem fram fóru. -
13:41 - 13:43Við gerðum tilraunir á sjálfum okkur.
-
13:43 - 13:46Við gerðumst okkar eigin vísindamenn
og læknar því -
13:46 - 13:47það var ekki um annað að ræða.
-
13:48 - 13:52Hægt og rólega bætti ég mig um 5% hér og
5% þar -
13:52 - 13:54þar til einn daginn
-
13:54 - 13:56gat ég farið út af heimilinu.
-
13:58 - 14:00Ég verð ennþá að taka fáránlegar
ákvarðanir; -
14:01 - 14:04ætti ég að sitja úti í garði í 15 mínútur
eða þvo mér um hárið í dag? -
14:05 - 14:07En það gaf mér þá von að ég gæti
fengið meðferð. -
14:08 - 14:10Líkami minn var veikur, það var
allt og sumt. -
14:11 - 14:15Með réttri hjálp gæti mér kannski batnað
einn góðan veðurdag. -
14:16 - 14:19Ég komst í samband við sjúklinga
um allan heim -
14:19 - 14:21og við hófum baráttuna.
-
14:22 - 14:25Við höfum fyllt upp í tómið
með einhverju stórkostlegu -
14:26 - 14:27en það er ekki nóg.
-
14:29 - 14:33Ég veit ekki hvort ég get nokkurn tímann
hlaupið aftur -
14:33 - 14:35eða gengið að einhverju ráði
-
14:35 - 14:39eða hreyft mig á þann hátt sem ég get
aðeins látið mig dreyma um núna. -
14:39 - 14:42En ég er mjög þakklát fyrir hversu langt
mér hefur miðað. -
14:44 - 14:45Framfarir eru hægar
-
14:45 - 14:47þær ganga upp
-
14:47 - 14:49og niður
-
14:49 - 14:52en mér batnar örlítið á hverjum degi.
-
14:54 - 14:58Ég man hvernig það var að vera föst inni
í svefnherbergi, -
14:59 - 15:01þegar ég hafði ekki séð sólina
mánuðum saman -
15:03 - 15:05Ég hélt ég myndi deyja þar.
-
15:07 - 15:09En ég er hér í dag
-
15:09 - 15:11með ykkur
-
15:12 - 15:14og það er kraftaverk.
-
15:17 - 15:20Ég veit ekki hvað hefði gerst ef ég hefði
ekki verið svona heppin; -
15:20 - 15:23ef ég hefði veikst fyrir daga internetsins
-
15:23 - 15:25ef ég hefði ekki fundið þetta samfélag.
-
15:26 - 15:29Ég hefði líklega svipt mig lífi
-
15:29 - 15:31líkt og svo margir hafa gert.
-
15:32 - 15:35Hve mörgum lífum hefði verið hægt að
bjarga fyrir mörgum áratugum -
15:36 - 15:38hefðum við spurt réttu spurninganna?
-
15:39 - 15:41Hversu mörgum lífum getum við
bjargað í dag -
15:42 - 15:44ef við ákveðum að ganga í málin?
-
15:45 - 15:48Jafnvel þótt við finnum raunverulega orsök
fyrir mínum sjúkdómi -
15:49 - 15:50mun þetta gerast aftur ef við breytum
-
15:52 - 15:55ekki stofnunum okkar og menningu.
-
15:56 - 15:58Þessi sjúkdómur hefur kennt mér
-
15:58 - 16:01að vísindi og læknisfræði eru afskaplega
mannleg fyrirbæri. -
16:01 - 16:04Læknar, vísindafólk og þeir sem
marka stefnuna -
16:04 - 16:07eru ekki ónæmir fyrir þeim fordómum
-
16:08 - 16:09sem við þekkjum öll.
-
16:11 - 16:14Við verðum að líta á heilsu kvenna frá
fleiri hliðum. -
16:15 - 16:19Ónæmiskerfi okkar kallar á
jafnréttisbaráttu ekki síður en -
16:19 - 16:21aðrir hlutar líkamans.
-
16:21 - 16:24Við verðum að hlusta á sögur
sjúklinganna og við -
16:25 - 16:27verðum að vera tilbúin að segja
„ég veit það ekki“. -
16:28 - 16:30„Ég veit það ekki“ er yndislegt.
-
16:31 - 16:34„Ég veit það ekki“ er þar sem
uppgötvunin hefst. -
16:35 - 16:37Ef við getum gert það,
-
16:37 - 16:41ef við getum horfst í augu við allt það
sem við ekki vitum, -
16:41 - 16:43þá getum við kannski, frekar en að óttast
-
16:43 - 16:46óvissuna, fagnað henni með forvitni.
-
16:46 - 16:48Þakka ykkur fyrir.
-
16:48 - 16:52Íslenskur texti
Eyrún Sigrúnardóttir -
16:52 - 16:53Takk fyrir.
- Title:
- Hvað gerist þegar þú færð sjúkdóm sem læknar geta ekki greint?
- Speaker:
- Jen Brea
- Description:
-
Fyrir fimm árum varð TED félaginn Jen Brea mjög veik af Myalgic Encephalomyelitis sem einnig er þekkt sem síþreyta. ME er mjög hamlandi sjúkdómur sem hefur mikil áhrif á daglegt líf og virkni sjúklinga. Á slæmum dögum getur jafnvel skrjáfið í rúmfötunum verið óbærilegt. Í þessum áhrifaríka fyrirlestri lýsir Brea þeim hindrunum sem urðu á vegi hennar í leit að lækningu því orsök sjúkdómsins og raunveruleg áhrif hans á líkamann eru enn ekki að fullu ljós. Brea segir einnig frá því markmiði sínu að segja sögu þessara sjúklinga sem læknavísindin virðast ekki geta hjálpað.
- Video Language:
- English
- Team:
closed TED
- Project:
- TEDTalks
- Duration:
- 17:43
![]() |
Jenny Zurawell edited Icelandic subtitles for What happens when you have a disease doctors can't diagnose | |
![]() |
TED Translators admin edited Icelandic subtitles for What happens when you have a disease doctors can't diagnose | |
![]() |
Guðmundur Birkir Guðmundsson accepted Icelandic subtitles for What happens when you have a disease doctors can't diagnose | |
![]() |
Guðmundur Birkir Guðmundsson edited Icelandic subtitles for What happens when you have a disease doctors can't diagnose | |
![]() |
Guðmundur Birkir Guðmundsson edited Icelandic subtitles for What happens when you have a disease doctors can't diagnose | |
![]() |
Guðmundur Birkir Guðmundsson edited Icelandic subtitles for What happens when you have a disease doctors can't diagnose | |
![]() |
Guðmundur Birkir Guðmundsson edited Icelandic subtitles for What happens when you have a disease doctors can't diagnose | |
![]() |
Eyrun Sigrunardottir edited Icelandic subtitles for What happens when you have a disease doctors can't diagnose |