0:00:05.415,0:00:06.858 Halló. 0:00:07.622,0:00:08.959 Þakka ykkur fyrir. 0:00:08.973,0:00:10.670 (Jennifer Brea þolir ekki hávaða.) 0:00:10.699,0:00:13.849 (Áhorfendur voru beðnir að [br]„klappa“ hljóðlaust.) 0:00:13.873,0:00:17.240 Þetta var ég fyrir fimm árum. 0:00:17.747,0:00:19.752 Ég var doktorsnemi við Harvard háskóla 0:00:19.776,0:00:21.809 og naut þess að ferðast. 0:00:22.472,0:00:25.652 Ég var að fara að giftast [br]stóru ástinni í lífi mínu. 0:00:27.072,0:00:31.047 Ég var 28 ára og fannst ég [br]ósigrandi eins og 0:00:31.071,0:00:33.102 svo mörgum finnst á þeim aldri. 0:00:34.477,0:00:38.147 Einn daginn fékk ég svo yfir [br]40 stiga hita. 0:00:38.758,0:00:40.807 Ég hefði líklega átt að fara til læknis 0:00:40.831,0:00:43.395 en ég hafði aldrei orðið veik áður, 0:00:43.419,0:00:45.772 ég vissi að þegar maður fengi vírussýkingu 0:00:45.796,0:00:48.929 ætti maður að halda sig heima [br]og fá sér kjúklingasúpu og 0:00:49.033,0:00:51.346 eftir nokkra daga yrði maður [br]frískur aftur. 0:00:52.499,0:00:54.336 En það gerðist ekki að þessu sinni. 0:00:55.560,0:00:57.097 Eftir að hitinn lækkaði 0:00:57.121,0:01:00.972 svimaði mig svo mikið að ég [br]komst ekki út úr húsi. 0:01:01.467,0:01:03.661 Ég gekk beint á dyrakarma. 0:01:04.335,0:01:07.295 Ég þurfti að fara með veggjum[br]til að komast á baðherbergið. 0:01:08.613,0:01:11.270 Þetta vor fékk ég hverja sýkinguna[br]á fætur annarri 0:01:11.825,0:01:13.652 en alltaf þegar ég fór til læknisins 0:01:13.676,0:01:16.459 sagði hann að það væri ekkert að mér. 0:01:17.533,0:01:19.158 Hann gerði alls kyns próf 0:01:19.182,0:01:21.086 sem sýndu ekkert athugavert. 0:01:21.875,0:01:23.842 Ég var bara með þessi einkenni 0:01:23.866,0:01:25.796 sem ég gat lýst fyrir öðrum 0:01:25.820,0:01:27.512 en enginn gat séð. 0:01:29.370,0:01:30.593 Það hljómar fáránlega 0:01:30.617,0:01:33.885 en maður verður að skýra þetta einhvern [br]veginn fyrir sjálfum sér 0:01:33.909,0:01:37.533 og ég hélt að ég væri kannski [br]bara að eldast. 0:01:38.114,0:01:41.667 Kannski væri það bara svona að [br]verða eldri en 25 ára. 0:01:41.691,0:01:43.983 (Hlátur) 0:01:44.808,0:01:46.976 Þá byrjaði ég að finna[br]fyrir taugaeinkennum. 0:01:47.590,0:01:51.301 Stundum gat ég ekki teiknað hægri[br]hlutann af hring. 0:01:52.325,0:01:55.631 Stundum gat ég hvorki talað né hreyft mig. 0:01:58.330,0:02:00.064 Ég fór til alls konar sérfræðinga; 0:02:00.088,0:02:03.160 smitsjúkdómalækna, húðlækna,[br]innkirtlasérfræðinga, 0:02:03.184,0:02:04.467 hjartalækna. 0:02:04.945,0:02:06.861 Ég fór jafnvel til geðlæknis. 0:02:07.679,0:02:10.923 Hann sagði: „Þú ert greinilega[br]mjög veik 0:02:10.947,0:02:13.103 en það er ekki geðrænt. 0:02:14.045,0:02:16.783 Ég vona innilega að einhver geti sagt þér[br]hvað er að.“ 0:02:18.094,0:02:22.160 Daginn eftir greindi taugalæknirinn[br]minn mig með hugbrigðaröskun. 0:02:22.842,0:02:24.525 Hann sagði að öll einkennin - 0:02:25.255,0:02:28.232 hitinn, særindin í hálsi, [br]öndunarfærasýkingarnar, 0:02:28.916,0:02:32.246 öll einkennin frá maga, [br]tauga- og hjartaeinkennin - 0:02:32.715,0:02:35.433 orsökuðust af gömlu tilfinningaáfalli 0:02:35.457,0:02:37.063 sem ég myndi ekki eftir. 0:02:38.069,0:02:40.067 Hann sagði að einkennin væru raunveruleg 0:02:40.546,0:02:42.905 en orsökin væri ekki líkamleg. 0:02:44.527,0:02:47.136 Ég var að læra félagsvísindi. 0:02:47.160,0:02:50.392 Ég hafði lært um tölfræði, [br]líkindareikning, 0:02:50.416,0:02:52.990 reiknilíkön, tilraunalíkön. 0:02:55.058,0:02:59.051 Mér fannst ég ekki bara geta hafnað[br]greiningu taugalæknisins. 0:02:59.599,0:03:01.191 Hún hljómaði ekki sönn 0:03:01.215,0:03:04.685 en ég hafði lært að sannleikurinn[br]getur verið snúinn 0:03:05.356,0:03:07.953 og auðveldlega litast af því sem við [br]viljum trúa. 0:03:08.514,0:03:11.446 Svo ég varð að reikna með þeim möguleika[br]að þetta væri rétt. 0:03:13.603,0:03:16.118 Þennan dag gerði ég smá tilraun. 0:03:16.919,0:03:20.332 Ég gekk heim frá lækninum, [br]rúmlega 3 kílómetra 0:03:21.229,0:03:25.264 með þennan einkennilega verk í fótunum[br]eins og rafstraum. 0:03:26.475,0:03:28.078 Ég einbeitti mér að verknum og 0:03:28.102,0:03:32.121 velti því fyrir mér hvernig hugur minn [br]hefði farið að því að framkalla hann. 0:03:33.320,0:03:35.195 Um leið og ég gekk inn um dyrnar heima 0:03:35.219,0:03:36.384 hrundi ég niður. 0:03:36.837,0:03:39.619 Það var eins og heilinn og mænan loguðu. 0:03:40.696,0:03:44.467 Hálsinn var svo stífur að ég gat ekki [br]snert bringuna með hökunni 0:03:45.324,0:03:47.075 og minnsti hávaði - 0:03:47.099,0:03:48.934 skrjáfið í rúmfötunum, 0:03:48.958,0:03:51.223 fótatak mannsins míns í næsta herbergi - 0:03:51.737,0:03:53.871 olli mér óþolandi sársauka. 0:03:55.832,0:03:58.415 Næstu tvö árin var ég meira og minna[br]í rúminu. 0:03:59.235,0:04:01.995 Hvernig gat læknirinn haft svona rangt [br]fyrir sér? 0:04:02.939,0:04:05.120 Ég taldi mig vera með sjaldgæfan sjúkdóm 0:04:05.144,0:04:07.133 eitthvað sem læknar hefðu ekki séð fyrr. 0:04:07.926,0:04:09.121 Svo ég fór á netið 0:04:09.145,0:04:11.523 og fann mörg þúsund manns um allan heim 0:04:11.980,0:04:13.600 með sömu einkenni, 0:04:14.087,0:04:15.651 jafn einangruð, 0:04:15.675,0:04:17.132 og þeim var heldur ekki trúað. 0:04:17.854,0:04:19.137 Sumir gátu enn unnið 0:04:19.161,0:04:21.646 en urðu að vera í rúminu á kvöldin[br]og um helgar 0:04:21.670,0:04:23.737 til að geta mætt aftur á mánudegi. 0:04:24.364,0:04:26.444 Á hinum enda rófsins 0:04:26.468,0:04:28.206 voru aðrir svo veikir 0:04:28.230,0:04:30.536 að þeir urðu að lifa í algeru myrkri, 0:04:30.560,0:04:33.932 ófærir um að þola raddir 0:04:33.956,0:04:35.865 og snertingu ástvina sinna. 0:04:37.469,0:04:41.471 Ég var greind með [br]Myalgic Encephalomyelitis. 0:04:42.554,0:04:46.006 Þú hefur líklega heyrt talað um það [br]sem „síþreytu“. 0:04:46.987,0:04:48.909 Áratugum saman hefur það nafn[br] 0:04:48.933,0:04:50.538 orðið til þess að þetta 0:04:51.578,0:04:53.261 hefur orðið ímynd sjúkdóms 0:04:54.585,0:04:57.260 sem getur verið svona alvarlegur. 0:04:57.468,0:04:58.992 Höfuðeinkeinnið sem við þekkjum 0:04:59.016,0:05:02.768 er að áreynsla - bæði andleg [br]og líkamleg - 0:05:03.296,0:05:05.249 reynist okkur dýrkeypt. 0:05:05.807,0:05:09.301 Ef maðurinn minn fer út að hlaupa fær [br]hann strengi í nokkra daga. 0:05:09.325,0:05:12.724 Ef ég geng aðeins niður götuna[br]leggst ég kannski í rúmið í viku. 0:05:13.323,0:05:15.578 Þetta er fangelsi sniðið að hverjum[br]og einum. 0:05:16.261,0:05:19.009 Ég þekki ballettdansara sem[br]geta ekki dansað, 0:05:19.033,0:05:21.206 endurskoðendur sem geta ekki reiknað, 0:05:21.230,0:05:23.788 læknanema sem aldrei urðu læknar. 0:05:24.421,0:05:26.589 Það skiptir engu máli hvað þú varst áður; 0:05:27.056,0:05:28.846 þú getur ekki gert það lengur. 0:05:29.475,0:05:31.365 Nú hafa liðið fjögur ár 0:05:31.389,0:05:33.985 og ég hef aldrei aftur orðið eins góð [br]og ég var 0:05:34.009,0:05:37.485 rétt áður en ég gekk heim frá[br]taugasérfræðingnum. 0:05:38.683,0:05:41.878 Það er áætlað að á milli 15 og 30 [br]milljónir um allan heim 0:05:41.902,0:05:43.156 séu með þennan sjúkdóm. 0:05:43.604,0:05:46.867 Í Bandaríkjunum, þaðan sem ég kem, eru [br]þetta um milljón manns. 0:05:46.891,0:05:50.523 Það eru u.þ.b. tvöfalt fleiri en eru [br]með MS. 0:05:51.797,0:05:54.539 Sjúklingar geta lifað áratugum saman[br]með líkamlega getu 0:05:54.563,0:05:56.697 á við einhvern með hjartabilun. 0:05:57.310,0:06:00.348 25% okkar eru bundin við heimilið[br]eða jafnvel rúmið 0:06:00.927,0:06:04.628 og 75-85% okkar geta ekki einu sinni[br]unnið hlutastarf. 0:06:05.385,0:06:07.389 Samt hjálpa læknar okkur ekki 0:06:08.064,0:06:10.002 og vísindin rannsaka okkur ekki. 0:06:11.116,0:06:14.544 Hvernig getur sjúkdómur sem er svona[br]algengur og alvarlegur 0:06:15.325,0:06:17.150 bara gleymst í heimi læknavísindanna? 0:06:19.264,0:06:21.788 Þegar læknirinn greindi mig með [br]hugbrigðaröskun 0:06:21.812,0:06:24.500 var hann að skírskota til[br]hugmynda um kvenlíkamann 0:06:24.524,0:06:26.674 sem eru meira en 2500 ára gamlar. 0:06:27.215,0:06:28.948 Rómverski læknirinn Galen taldi 0:06:28.972,0:06:31.943 að móðursýki orsakaðist af kynsvelti 0:06:31.967,0:06:34.492 hjá sérstaklega lostafengnum konum. 0:06:35.125,0:06:37.889 Grikkir töldu að móðurlífið gæti hreinlega[br]þornað upp 0:06:37.913,0:06:40.340 og rekið um líkamann í leit að raka 0:06:40.364,0:06:42.260 og þar með þrýst á innri líffæri - 0:06:42.284,0:06:43.498 - já - 0:06:44.648,0:06:47.343 og orsakað þannig einkenni allt frá[br]tilfinningasveiflum 0:06:47.367,0:06:49.612 til svima og lömunar. 0:06:50.715,0:06:53.319 Lækningin fólst í hjónabandi og [br]barneignum. 0:06:54.898,0:06:59.458 Þessar hugmyndir lifðu eiginlega óbreyttar[br]í nokkur þúsund ár þar til um 1880-1890 0:06:59.482,0:07:03.180 þegar taugasérfræðingar reyndu að færa[br]kenningar um móðursýki til nútímans. 0:07:03.764,0:07:05.417 Sigmund Freud þróaði kenningu um 0:07:05.441,0:07:08.237 að undirmeðvitundin geti valdið líkamlegum[br]einkennum þegar 0:07:08.261,0:07:10.276 unnið er úr minningum eða tilfinningum 0:07:10.300,0:07:12.611 sem eru of sárar fyrir meðvitundina. 0:07:12.635,0:07:15.514 Tilfinningarnar birtast þá sem líkamleg[br]einkenni. 0:07:17.460,0:07:19.656 Þetta þýddi að karlmenn gátu nú orðið 0:07:19.680,0:07:22.178 móðursjúkir en konum var þó [br]hættara við því. 0:07:23.448,0:07:27.065 Þegar ég hóf að rannsaka sögu [br]míns sjúkdóms 0:07:27.089,0:07:30.134 varð ég hissa á hve rótgrónar þessar[br]hugmyndir eru enn í dag. 0:07:31.011,0:07:32.197 Árið 1934 0:07:32.221,0:07:36.996 urðu 198 læknar, hjúkrunarfræðingar og[br]starfsfólk á sjúkrahúsi í Los Angeles 0:07:37.020,0:07:38.561 alvarlega veik. 0:07:38.585,0:07:42.996 Þau urðu máttlaus, stíf í hálsi og baki[br]og fengu hita - 0:07:43.020,0:07:46.374 öll einkennin sem ég fann fyrir þegar ég[br]veiktist. 0:07:46.928,0:07:49.247 Læknar héldu að þetta væri lömunarveiki. 0:07:50.133,0:07:53.064 Síðan þá hafa komið upp meira en [br]70 svona faraldrar 0:07:53.088,0:07:54.249 um allan heim 0:07:54.273,0:07:56.711 af mjög svipuðum veikindum [br]í kjölfar sýkinga. 0:07:57.419,0:08:00.912 Þessir faraldrar virðast einkum leggjast[br]á konur 0:08:01.482,0:08:05.409 og þegar læknum tókst ekki að finna [br]orsök veikindanna 0:08:05.433,0:08:08.572 töldu þeir að um móðursýkisfaraldur væri[br]að ræða. 0:08:09.115,0:08:12.020 Hvers vegna er þessi hugmynd svona[br]lífsseig? 0:08:13.567,0:08:15.363 Ég held að þetta sé kynjahyggja 0:08:15.387,0:08:18.828 en ég held að læknar vilji raunverulega[br]hjálpa. 0:08:18.852,0:08:20.622 Þeir vilja vita svarið 0:08:20.646,0:08:25.537 og þessi flokkur gerir þeim kleyft að að [br]meðhöndla það sem annars er ólæknandi; 0:08:25.561,0:08:28.366 að skýra óskiljanlega sjúkdóma. 0:08:29.079,0:08:31.771 Vandinn er að þetta getur valdið [br]raunverulegum skaða. 0:08:32.382,0:08:35.978 Á sjötta áratugnum rannsakaði[br]sálfræðingurinn Eliot Slater 0:08:36.002,0:08:40.186 85 sjúklinga sem höfðu verið greindir[br]með móðursýki. 0:08:40.766,0:08:44.763 Níu árum síðar voru 12 þeirra látnir og [br]30 bjuggu við örorku. 0:08:44.787,0:08:48.220 Margir þjáðust af vangreindum sjúkdómum[br]svo sem MS, 0:08:48.244,0:08:50.140 flogaveiki, heilaæxlum. 0:08:51.259,0:08:54.984 Árið 1980 var nafninu móðursýki [br]opinberlega breytt í „hugbrigðaröskun“. 0:08:55.563,0:08:58.887 Þegar taugasérfræðingurinn greindi mig[br]árið 2012 0:08:58.911,0:09:01.528 var hann að vitna beint í Freud 0:09:01.552,0:09:02.703 og enn þann dag í dag 0:09:02.727,0:09:07.101 eru konur tvisvar til tíu sinnum líklegri[br]til að fá þessa greiningu. 0:09:08.487,0:09:12.486 Vandinn við kenninguna um móðursýki[br]eða geðvefræna sjúkdóma 0:09:12.510,0:09:14.544 er að ekki er hægt að sanna hana. 0:09:14.568,0:09:17.423 Hún er í eðli sínu skortur á sönnunum 0:09:18.192,0:09:19.567 og í tilfelli ME 0:09:19.591,0:09:23.596 hafa sálfræðilegar skýringar staðið í vegi[br]fyrir líffræðilegum rannsóknum. 0:09:23.620,0:09:26.919 Um allan heim er ME einn af fjársveltustu [br]sjúkdómunum. 0:09:27.321,0:09:34.263 Í Bandaríkjunum er 2500 dollurum veitt í[br]hvern AIDS sjúkling árlega 0:09:34.809,0:09:37.529 250 dollurum í hvern MS sjúkling 0:09:38.100,0:09:41.307 og aðeins 5 dollurum árlega í hvern[br]ME sjúkling. 0:09:42.125,0:09:44.206 Þetta var ekki elding. 0:09:44.230,0:09:45.994 Ég var ekki bara óheppin. 0:09:46.494,0:09:49.585 Þekkingarleysið sem einkennir minn sjúkdóm[br]er val; 0:09:49.609,0:09:53.733 val þeirra stofnanna sem eiga að [br]verja okkur. 0:09:55.535,0:09:58.406 Við vitum ekki hvers vegna ME gengur [br]stundum í ættir, 0:09:58.430,0:10:00.895 hvers vegna nánast allar sýkingar [br]geta valdið því 0:10:00.919,0:10:04.652 allt frá entrovírusum til [br]einkyrningssóttar og Q-hitasóttar 0:10:05.123,0:10:08.363 eða hvers vegna það hrjáir 2-3 sinnum [br]fleiri konur en menn. 0:10:09.058,0:10:11.777 Þessi vandi nær langt út fyrir minn [br]sjúkdóm. 0:10:12.356,0:10:13.539 Þegar ég veiktist fyrst 0:10:13.563,0:10:15.721 byrjuðu gamlir vinir að hafa samband. 0:10:16.180,0:10:19.309 Fljótlega myndaðist hópur kvenna á [br]þrítugsaldri sem voru 0:10:19.333,0:10:21.019 að missa heilsuna. 0:10:22.012,0:10:24.867 Við áttum í ótrúlegum vandræðum með að 0:10:24.891,0:10:26.049 vera teknar alvarlega. 0:10:26.577,0:10:28.535 Ein kona með herslihúð 0:10:28.559,0:10:30.659 sem er sjálfsónæmissjúkdómur 0:10:30.683,0:10:33.393 var sagt árum saman að veikindin[br]væru bara ímyndun. 0:10:33.417,0:10:35.929 Þegar hún fékk loksins greiningu 0:10:35.953,0:10:38.380 hafði vélinda hennar skemmst svo mikið 0:10:38.404,0:10:40.649 að hún mun aldrei getað borðað aftur. 0:10:40.853,0:10:43.035 Önnur kona sem var með krabbamein 0:10:43.576,0:10:46.324 í eggjastokkum var sagt að það væru [br]snemmbúin tíðahvörf. 0:10:47.188,0:10:48.756 Gömul skólasystir var með 0:10:48.780,0:10:52.675 heilaæxli sem var ranggreint sem [br]kvíði. 0:10:54.222,0:10:55.832 Það sem veldur mér áhyggjum 0:10:57.125,0:11:00.576 er að margir sjálfsónæmissjúkdómar[br]eru nú tvöfalt til þrefalt algengari 0:11:00.600,0:11:02.303 en um miðja síðustu öld. 0:11:02.818,0:11:05.758 45% þeirra sjúklinga sem að [br]lokum eru greindir [br] 0:11:05.782,0:11:07.776 með þekkta sjálfsónæmissjúkdóma 0:11:07.800,0:11:10.308 er upphaflega sagðir ímyndunarveikir. 0:11:10.783,0:11:13.933 Rétt eins og móðursýkin hér áður fyrr[br]er þetta spurning um kyn 0:11:13.957,0:11:15.823 og hverju við trúum. 0:11:16.974,0:11:20.625 75% sjúklinga með sjálfsónæmissjúkdóma[br]eru konur og í sumum tilfellum 0:11:20.649,0:11:23.828 er hlutfallið allt að 90%. 0:11:25.076,0:11:27.933 Þótt þessir sjúkdómar leggist helst [br]á konur 0:11:27.957,0:11:29.609 eru þeir ekki kvennasjúkdómar. 0:11:29.633,0:11:33.321 ME leggst á börn og líka á milljónir [br]karlmanna. 0:11:33.345,0:11:35.130 Eins og einn sjúklingur sagði mér 0:11:35.154,0:11:36.662 gengur þetta í báðar áttir - 0:11:36.686,0:11:40.294 konur eru sagðar ýkja einkennin 0:11:40.318,0:11:43.776 en körlum er sagt að harka af sér. 0:11:44.676,0:11:48.825 Karlar eiga jafnvel erfiðara með að [br]fá greiningu. 0:11:57.419,0:12:00.284 Ég er ekki eins skýr í höfðinu og áður. 0:12:13.914,0:12:15.241 Hér er góði hlutinn: 0:12:16.645,0:12:18.824 Þrátt fyrir allt er ég enn vongóð. 0:12:19.903,0:12:23.803 Margir sjúkdómar voru áður fyrr taldir[br]sálrænir 0:12:23.827,0:12:26.735 þar til vísindin fundu út hvað olli þeim. 0:12:27.323,0:12:30.417 Flogaveikisjúklingar voru stundum[br]nauðungarvistaðir á stofnunum 0:12:30.441,0:12:35.045 þar til hægt var að nota heilalínurit[br]til að mæla frávik í heilabylgjum. 0:12:35.500,0:12:39.776 MS var stundum ranggreint sem [br]móðursýki þar til 0:12:39.800,0:12:43.112 hægt var að sjá taugaskemmdir á [br]tölvusneiðmyndum. 0:12:43.945,0:12:45.460 Til skamms tíma héldum við að 0:12:45.484,0:12:48.304 magasár stafaði eingöngu af streitu 0:12:48.328,0:12:51.648 þar til uppgötvað var að H. pylori [br]bakterían var orsökin. 0:12:52.801,0:12:55.695 ME hefur aldrei notið stuðnings frá [br]vísindum á sama hátt 0:12:55.719,0:12:58.029 og aðrir sjúkdómar 0:12:58.053,0:12:59.717 en það er að byrja að breytast. 0:13:00.661,0:13:04.202 Vísindamenn í Þýskalandi eru byrjaðir[br]að sýna fram á tilvist sjálfsónæmis 0:13:04.226,0:13:06.568 og í Japan bólgur í heila. 0:13:07.406,0:13:10.460 Í Bandaríkjunum hafa vísindamenn við [br]Stanford háskóla fundið 0:13:10.484,0:13:12.380 óeðlileg efnaskipti í orkuframleiðslu 0:13:12.404,0:13:15.866 sem eru 16 staðalfrávikum frá því [br]sem getur talist eðlilegt. 0:13:16.640,0:13:20.685 Í Noregi fer fram þriggja fasa klínísk [br]rannsókn 0:13:20.709,0:13:24.376 á krabbameinslyfi sem veitir sumum [br]sjúklingum tímabundinn bata. 0:13:25.798,0:13:27.459 Það sem gefur mér einnig von 0:13:28.316,0:13:30.333 er þrautsegja sjúklinganna. 0:13:31.968,0:13:33.842 Við hittumst á netinu 0:13:34.251,0:13:35.930 og deildum sögum okkar. 0:13:37.449,0:13:40.223 Við gleyptum í okkur allar rannsókir[br]sem fram fóru. 0:13:40.743,0:13:42.820 Við gerðum tilraunir á sjálfum okkur. 0:13:43.496,0:13:45.869 Við gerðumst okkar eigin vísindamenn[br]og læknar því 0:13:45.893,0:13:47.484 það var ekki um annað að ræða. 0:13:48.378,0:13:52.117 Hægt og rólega bætti ég mig um 5% hér og [br]5% þar 0:13:52.141,0:13:54.374 þar til einn daginn 0:13:54.398,0:13:56.304 gat ég farið út af heimilinu. 0:13:57.815,0:14:00.402 Ég verð ennþá að taka fáránlegar[br]ákvarðanir; 0:14:00.568,0:14:04.409 ætti ég að sitja úti í garði í 15 mínútur[br]eða þvo mér um hárið í dag? 0:14:04.924,0:14:07.352 En það gaf mér þá von að ég gæti [br]fengið meðferð. 0:14:07.693,0:14:10.035 Líkami minn var veikur, það var [br]allt og sumt. 0:14:10.789,0:14:14.820 Með réttri hjálp gæti mér kannski batnað[br]einn góðan veðurdag. 0:14:15.740,0:14:18.943 Ég komst í samband við sjúklinga [br]um allan heim 0:14:19.466,0:14:21.220 og við hófum baráttuna. 0:14:21.863,0:14:25.034 Við höfum fyllt upp í tómið[br]með einhverju stórkostlegu 0:14:25.698,0:14:27.190 en það er ekki nóg. 0:14:28.662,0:14:32.699 Ég veit ekki hvort ég get nokkurn tímann[br]hlaupið aftur 0:14:32.723,0:14:34.620 eða gengið að einhverju ráði 0:14:34.644,0:14:38.553 eða hreyft mig á þann hátt sem ég get[br]aðeins látið mig dreyma um núna. 0:14:39.143,0:14:42.233 En ég er mjög þakklát fyrir hversu langt[br]mér hefur miðað. 0:14:43.955,0:14:45.440 Framfarir eru hægar 0:14:45.464,0:14:46.756 þær ganga upp 0:14:47.310,0:14:48.566 og niður 0:14:49.222,0:14:52.135 en mér batnar örlítið á hverjum degi. 0:14:54.013,0:14:57.932 Ég man hvernig það var að vera föst inni [br]í svefnherbergi, 0:14:58.548,0:15:01.496 þegar ég hafði ekki séð sólina [br]mánuðum saman 0:15:03.226,0:15:05.314 Ég hélt ég myndi deyja þar. 0:15:06.961,0:15:08.528 En ég er hér í dag 0:15:09.255,0:15:10.537 með ykkur 0:15:11.513,0:15:13.574 og það er kraftaverk. 0:15:16.606,0:15:20.225 Ég veit ekki hvað hefði gerst ef ég hefði[br]ekki verið svona heppin; 0:15:20.377,0:15:22.554 ef ég hefði veikst fyrir daga internetsins 0:15:22.995,0:15:24.969 ef ég hefði ekki fundið þetta samfélag. 0:15:25.777,0:15:28.505 Ég hefði líklega svipt mig lífi 0:15:29.028,0:15:30.935 líkt og svo margir hafa gert. 0:15:32.094,0:15:35.318 Hve mörgum lífum hefði verið hægt að [br]bjarga fyrir mörgum áratugum 0:15:35.957,0:15:37.860 hefðum við spurt réttu spurninganna? 0:15:38.626,0:15:40.775 Hversu mörgum lífum getum við [br]bjargað í dag 0:15:41.592,0:15:43.754 ef við ákveðum að ganga í málin? 0:15:45.205,0:15:48.248 Jafnvel þótt við finnum raunverulega orsök[br]fyrir mínum sjúkdómi 0:15:48.881,0:15:50.470 mun þetta gerast aftur ef við breytum[br] 0:15:52.380,0:15:54.756 ekki stofnunum okkar og menningu. 0:15:55.658,0:15:57.652 Þessi sjúkdómur hefur kennt mér 0:15:57.676,0:16:00.604 að vísindi og læknisfræði eru afskaplega [br]mannleg fyrirbæri. 0:16:01.153,0:16:03.744 Læknar, vísindafólk og þeir sem [br]marka stefnuna 0:16:03.768,0:16:06.655 eru ekki ónæmir fyrir þeim fordómum 0:16:07.568,0:16:09.147 sem við þekkjum öll. 0:16:11.377,0:16:14.429 Við verðum að líta á heilsu kvenna frá[br]fleiri hliðum. 0:16:15.119,0:16:19.221 Ónæmiskerfi okkar kallar á [br]jafnréttisbaráttu ekki síður en 0:16:19.245,0:16:20.827 aðrir hlutar líkamans. 0:16:21.253,0:16:23.597 Við verðum að hlusta á sögur [br]sjúklinganna og við 0:16:24.542,0:16:27.107 verðum að vera tilbúin að segja[br]„ég veit það ekki“. 0:16:28.024,0:16:30.376 „Ég veit það ekki“ er yndislegt. 0:16:31.235,0:16:33.827 „Ég veit það ekki“ er þar sem [br]uppgötvunin hefst. 0:16:35.365,0:16:36.787 Ef við getum gert það, 0:16:37.447,0:16:41.142 ef við getum horfst í augu við allt það[br]sem við ekki vitum, 0:16:41.166,0:16:43.118 þá getum við kannski, frekar en að óttast 0:16:43.142,0:16:45.653 óvissuna, fagnað henni með forvitni. 0:16:46.342,0:16:47.693 Þakka ykkur fyrir. 0:16:52.096,0:16:53.336 Takk fyrir. 0:16:48.096,0:16:52.096 Íslenskur texti[br]Eyrún Sigrúnardóttir