Klukkustund kóðunar - Minecraft: Endurtekningarlykkjur
-
0:04 - 0:08Stampy: Hvað skyldi Stacy vera að gera?
-
0:13 - 0:17Stacy: Vó, ég held ég sé á réttum stað.
-
0:17 - 0:19Þetta er ótrúlegt!
-
0:19 - 0:22Mér finnst ég sé komin aftur í Minecraft!
-
0:22 - 0:24Hæ
-
0:24 - 0:25Hvað segirðu gott?
-
0:25 - 0:27Halló?
-
0:27 - 0:31Ó, þarna er laumapúki. En þú gerir
ekkert, er það nokkuð? -
0:31 - 0:31Katie: Stacy?
-
0:31 - 0:32Stacy: Hæ, Katie?
-
0:32 - 0:33Katie: Já!
-
0:33 - 0:34Velkomin í Minecraft.
-
0:34 - 0:35Stacy: Takk!
-
0:35 - 0:37Katie: Komdu inn!
-
0:38 - 0:40Stacy: Þetta er ótrúlegt.
-
0:40 - 0:43Svo þú vinnur hér á hverjum degi
og býrð til forrit? -
0:43 - 0:44Katie: Já það er svolítið magnað.
-
0:44 - 0:47Ég vinn við þróun með Minecraft
markaðsteyminu. -
0:47 - 0:49Stacy: Hvað kanntu mörg forritunarmál?
-
0:49 - 0:52Katie: Á ferli mínum hef ég líklega
unnið með meira en tólf. -
0:52 - 0:53Stacey: Tólf?
-
0:53 - 0:54Katie: Já.
-
0:54 - 0:58Stacy: Heyrðu, ekki vill svo vel að þú
vitir eitthvað um þennan litla gaur -
0:58 - 0:59sem kallar sig "Umbann"?
-
0:59 - 1:06Katie: Umbann gerir það sem Steve eða
Alex geta ekki, t.d. að fara yfir hraun. -
1:06 - 1:10Stacy: Jæja, ég vil læra að kóða, og þau
vilja læra að kóða svo hvað er eitt af -
1:10 - 1:13því fyrsta sem maður þarf að vita
þegar maður er að læra? -
1:13 - 1:16Katie: Nú, þú þarft að læra hvernig
á að nota lykkjur. -
1:16 - 1:17Stacy: Allt í lagi.
-
1:17 - 1:21Katie: Lykkjur eru nokkuð sem
forritarar skrifa til að gefa tölvum -
1:21 - 1:22skipanir sem hægt er að keyra
aftur og aftur. -
1:22 - 1:26Stacy: Ég skil, og ég held að eitthvað af
því muni koma í næstu áföngum, -
1:26 - 1:29svo haltu áfram og prófaðu lykkjur.
-
1:29 - 1:33Í næsta áfanga, getur þú notað lykkju
til að færa Umbann eftir slóðinni. -
1:33 - 1:38Dragðu "endurtaka" kubbinn út
á vinnusvæðið og settu -
1:38 - 1:39"færa áfram" kubbinn innan í.
-
1:39 - 1:44Þetta segir tölvunni að gera sama
hlutinn oft í röð án þess að þurfa -
1:44 - 1:46að draga heila hrúgu af kubbum
inn á vinnusvæðið. -
1:46 - 1:51Þú velur hve oft á að endurtaka með
þvi að setja tölu í "endurtaka" kubbinn. -
1:51 - 1:56Þú getur líka sett snúninga og
margar skipanir í "endurtaka" kubbinn -
1:56 - 1:59en fyrst skaltu prófa að færa Umbann
fram um nokkur skref. -
1:59 - 2:03Mundu að ef þú festist í þraut getur
þú alltaf ýtt á bláa "endurstilla" -
2:03 - 2:04hnappinn og prófað aftur.
-
2:04 - 2:09Ef þú ert að hugsa um að fá góða vinnu
eins og hennar Katie, þá ættirðu að -
2:09 - 2:11smella á "sýna kóða" hnappinn
þegar þú klárar hvern áfanga. -
2:11 - 2:15Það mun sýna þér JavaScript kóðann
sem fólk eins og Katie notar þegar þau -
2:15 - 2:17eru að forrita Minecraft.
-
2:17 - 2:18Jæja, þakka þér kærlega!
-
2:18 - 2:20Katie: Já gangi ykkur öllum vel!
- Title:
- Klukkustund kóðunar - Minecraft: Endurtekningarlykkjur
- Description:
-
Byrjaðu að læra á http://code.org/
Vertu í sambandi!
• á Twitter https://twitter.com/codeorg
• á Facebook https://www.facebook.com/Code.org
• á Instagram https://instagram.com/codeorg
• á Tumblr https://blog.code.org
• á LinkedIn https://www.linkedin.com/company/code-org
• á Google+ https://google.com/+codeorg - Video Language:
- English
- Team:
- Code.org
- Project:
- CSF '21-'22
- Duration:
- 02:26
Jon Georgsson edited Icelandic subtitles for Minecraft Hour of Code - Repeat Loops | ||
Jon Georgsson edited Icelandic subtitles for Minecraft Hour of Code - Repeat Loops |