Stampy: Hvað skyldi Stacy vera að gera? Stacy: Vó, ég held ég sé á réttum stað. Þetta er ótrúlegt! Mér finnst ég sé komin aftur í Minecraft! Hæ Hvað segirðu gott? Halló? Ó, þarna er laumapúki. En þú gerir ekkert, er það nokkuð? Katie: Stacy? Stacy: Hæ, Katie? Katie: Já! Velkomin í Minecraft. Stacy: Takk! Katie: Komdu inn! Stacy: Þetta er ótrúlegt. Svo þú vinnur hér á hverjum degi og býrð til forrit? Katie: Já það er svolítið magnað. Ég vinn við þróun með Minecraft markaðsteyminu. Stacy: Hvað kanntu mörg forritunarmál? Katie: Á ferli mínum hef ég líklega unnið með meira en tólf. Stacey: Tólf? Katie: Já. Stacy: Heyrðu, ekki vill svo vel að þú vitir eitthvað um þennan litla gaur sem kallar sig "Umbann"? Katie: Umbann gerir það sem Steve eða Alex geta ekki, t.d. að fara yfir hraun. Stacy: Jæja, ég vil læra að kóða, og þau vilja læra að kóða svo hvað er eitt af því fyrsta sem maður þarf að vita þegar maður er að læra? Katie: Nú, þú þarft að læra hvernig á að nota lykkjur. Stacy: Allt í lagi. Katie: Lykkjur eru nokkuð sem forritarar skrifa til að gefa tölvum skipanir sem hægt er að keyra aftur og aftur. Stacy: Ég skil, og ég held að eitthvað af því muni koma í næstu áföngum, svo haltu áfram og prófaðu lykkjur. Í næsta áfanga, getur þú notað lykkju til að færa Umbann eftir slóðinni. Dragðu "endurtaka" kubbinn út á vinnusvæðið og settu "færa áfram" kubbinn innan í. Þetta segir tölvunni að gera sama hlutinn oft í röð án þess að þurfa að draga heila hrúgu af kubbum inn á vinnusvæðið. Þú velur hve oft á að endurtaka með þvi að setja tölu í "endurtaka" kubbinn. Þú getur líka sett snúninga og margar skipanir í "endurtaka" kubbinn en fyrst skaltu prófa að færa Umbann fram um nokkur skref. Mundu að ef þú festist í þraut getur þú alltaf ýtt á bláa "endurstilla" hnappinn og prófað aftur. Ef þú ert að hugsa um að fá góða vinnu eins og hennar Katie, þá ættirðu að smella á "sýna kóða" hnappinn þegar þú klárar hvern áfanga. Það mun sýna þér JavaScript kóðann sem fólk eins og Katie notar þegar þau eru að forrita Minecraft. Jæja, þakka þér kærlega! Katie: Já gangi ykkur öllum vel!