-
Ég var í 8. bekk þegar ég lærði fyrst að forrita.
-
Ég lærði fyrst hvernig á að teikna
-
grænan hring og rauðan ferning á skjáinn.
-
Þú lærir bara þessi grunnatriði og þau eru ekki svo ýkja mörg,
-
og á endanum kemstu á þann stað þar sem þú getur gert nánast hvað sem þú vilt.
-
Tölvunarfræði byggir í raun bara á því að læra hvernig tölvan virkar og hvernig hún hugsar,
-
þannig að þú getur kennt henni að gera nýja hluti.
-
Það sem þú getur gert í tölvunarfræði í dag er frekar magnað.
-
Ég held þetta komist næst því að hafa ofurkrafta.
-
(Tanya: Tölvunarfræðinemandi) Næsta klukkutímann ætlum við að spila leik
-
sem mun kenna þér undirstöðuatriði forritunar.
-
Venjulega forritun er öll í texta en við munum nota Blockly,
-
sem notar sjónræna kubba sem þú dregur og sleppir til að skrifa forrit.
-
Undir húddinu þá ert þú samt að skapa kóða.
-
Til byrjun með ætlum við að byggja upp kóða fyrir forrit sem mun hjálpa
-
þessum "Angry Bird" að fara í gegnum völundarhús til að ná vonda svíninu sem stal eggjum sínum.
-
"Blockly" er skipt í þrjá megin hluta.
-
Á vinstri er völundarhús fuglsins þar sem forritið mun keyra.
-
Leiðbeiningar um hvern áfanga er ritað fyrir neðan völundarhúsið.
-
Þetta miðjusvæði er aðgerðakassinn,
-
og hver kassi er skipun sem að fuglinn skilur.
-
Hvíti svæðið til hægri er kallað vinnusvæðið
-
og þar munum við byggja forritið okkar.
-
Ef ég dreg "færa" kassann yfir í vinnusævðið og ýti á "keyra forrit", hvað gerist þá?
-
Fuglinn færist fram um einn reit.
-
Og hvað ef ég vil fuglinngeri eitthvað meira en að færa sig áfram um einn reit?
-
Ég get þá bætt við öðrum kassa við forritið.
-
Ég ætla að velja "snúa til hægri" kassann og ég draga hann undir
-
"færa áfram" kassann þangað til gul ör birtist
-
og þá sleppi ég kassanum og kassarnir tveir munu smella saman.
-
Þegar ég ýtti á "keyra forrit" aftur, mun fuglinn framkvæma skipanir sem eru staflað,
-
frá efstu til neðstu í vinnusvæðinu okkar.
-
Ef þú vilt einhvern tíma eyða kassa,
-
þá fjarlægir þú hann bara með því að draga hann í ruslið.
-
Eftir að þú hefur ýtt á "keyra forrit", þá getur þú alltaf ýtt á "endurstilla" takkann til að fá fuglinn aftur á byrjunarreit.
-
Nú skulum við ná þessum svínum!