Hvers vegna við þurfum að enda Fíkniefnastríðið
-
0:01 - 0:05Hvað hefur Fíkniefnastríðið gert heiminum?
-
0:05 - 0:07Lítið á morðin og upplausnina í Mexíkó,
-
0:07 - 0:11Mið-Ameríku og mörgum öðrum heimshlutum,
-
0:11 - 0:13svarti markaðurinn á heimsmælikvarða
-
0:13 - 0:15metinn á 300 milljarða
bandaríkjadala árlega, -
0:15 - 0:19fangelsi í Bandaríkjunum yfirfull
sem og annars staðar, -
0:19 - 0:21lögregla og her dregin í óvinnandi stríð
-
0:21 - 0:25sem brýtur gegn grunnmannréttindum
og almennir borgarar -
0:25 - 0:28bara vona að þeir lendi ekki á milli,
-
0:28 - 0:30á meðan notar fleira fólk
-
0:30 - 0:32meiri fíkniefni en nokkur tímann áður.
-
0:32 - 0:35Þetta er saga lands míns með áfengisbannið
-
0:35 - 0:38og Al Capone, fimmtíuföld.
-
0:38 - 0:41Þess vegna særir það mig sérstaklega
-
0:41 - 0:44sem Bandaríkjamann,
að við höfum verið drifkrafturinn -
0:44 - 0:47bak við hið alþjóðlega fíkniefnastríð.
-
0:47 - 0:49Spyrjið hvers vegna svo
mörg lönd glæpavæða -
0:49 - 0:50fíkniefni sem þau hafa ekki heyrt um,
-
0:50 - 0:53hvers vegna sáttmálar Sameinuðu-
þjóðanna um fíkniefni -
0:53 - 0:56leggja áherslu á glæpavæðingu
fremur en heilsu, -
0:56 - 0:58jafnvel hvers vegna fjárveitingar
-
0:58 - 1:00ætlaðar baráttu gegn misnotkun fíkniefna
-
1:00 - 1:02renni ekki til hjálparstofnana
heldur refsistofnana, -
1:02 - 1:06og þið finnið gamla góða B.N.A.
-
1:06 - 1:08Hvers vegna gerðum við þetta?
-
1:08 - 1:11Sumir, sérstaklega íbúar Rómönsku-Ameríku,
-
1:11 - 1:13telja þetta ekki snúast um fíkniefni.
-
1:13 - 1:15Að þetta sé bragð til að greiða fyrir
-
1:15 - 1:18framgangi pólitískra áhrifa Bandaríkjanna.
-
1:18 - 1:22Það er þó í grunninn rangt.
-
1:22 - 1:24Við viljum ekki að
glæpamenn og skæruliðar, -
1:24 - 1:27fjármagnaðir með
ólöglegum fíkniefnapeningum, -
1:27 - 1:30ógni eða taki yfir aðrar þjóðir.
-
1:30 - 1:34Nei, raunin er að Bandaríkin eru óð
-
1:34 - 1:36þegar kemur að fíkniefnum.
-
1:36 - 1:38Ég meina, það vorum
við sem héldum -
1:38 - 1:40að við gætum bannað áfengi.
-
1:40 - 1:42Hugsið um alþjóðlega
fíkniefnastríðið okkar, -
1:43 - 1:45ekki sem skynsamlega stefnu,
-
1:45 - 1:48heldur sem alþjóðlega vörpun
-
1:48 - 1:51innlendrar geðveilu.
-
1:51 - 1:54(Lófatak)
-
1:54 - 1:56En hér eru góðu fréttirnar.
-
1:56 - 1:59Nú leiða Rússar Fíkniefnastríðið,
ekki við. -
1:59 - 2:00Flestir stjórnmálamenn í mínu landi
-
2:00 - 2:02vilja nú hætta við Fíkniefnastríðið,
-
2:02 - 2:05fækka fólki í fangelsi, ekki fjölga
-
2:05 - 2:07og ég get stoltur sagt sem Bandaríkjamaður
-
2:07 - 2:09að við stöndum nú fremst í heiminum
-
2:09 - 2:11í endurmótun reglna um marijúana.
-
2:11 - 2:13Það er nú löglegt í
læknisfræðilegum -
2:13 - 2:15tilgangi í nærri helmingi okkar 50 ríkja.
-
2:15 - 2:17Milljónir manna geta
keypt maríjúanað sitt, -
2:17 - 2:20lyfin sín, hjá sölustöðum
með leyfi frá ríkinu, -
2:20 - 2:23og yfir helmingur samlanda
minna telja tíma til kominn -
2:23 - 2:26að lögleiða og leggja skatta á maríjúana
-
2:26 - 2:27svipað og áfengi.
-
2:27 - 2:29Það er það sem Colorado og
Washington gera, -
2:29 - 2:34og Úrúgvæ, og önnur
lönd eru líkleg til að fylgja eftir. -
2:34 - 2:36Þetta er það sem ég geri;
-
2:36 - 2:40vinn að því að enda fíkniefnastríðið.
-
2:40 - 2:43Ég held það hafi byrjað í æsku minni
-
2:43 - 2:45í nokkuð trúaðri fjölskyldu
með siðferðiskennd, -
2:45 - 2:47elsti sonur rabbína,
-
2:47 - 2:49fór í háskóla þar sem ég
-
2:49 - 2:53reykti maríjúana
-
2:53 - 2:55og líkaði það.
(Hlátur) -
2:55 - 2:57Mér líkaði drykkja líka,
en það var augljóst -
2:57 - 3:00að áfengi var hættulegra af þessu tvennu
-
3:00 - 3:02en við vinirnir gátum verið handteknir
-
3:02 - 3:03fyrir að reykja jónu.
-
3:03 - 3:06Þessi hræsni hélt áfram að
pirra mig svo ég -
3:06 - 3:09skrifaði doktorsritgerðina mína
um alþjóðlega fíkniefnastjórnun. -
3:09 - 3:11Ég talaði mig inn í Innanríkisráðuneytið.
-
3:11 - 3:12Ég fékk öryggisheimild.
-
3:12 - 3:16Ég tók viðtöl við fíkniefna-
lögreglumenn og aðra löggæslufulltrúa -
3:16 - 3:18í Evrópu og N- og S Ameríku
-
3:18 - 3:19og ég spurði þá:
-
3:19 - 3:21„Hvað telur þú vera svarið?“
-
3:21 - 3:24Í Rómönsku-Ameríku sögðu þeir við mig:
-
3:24 - 3:27„Þú getur ekki stoppað framleiðsluna.
-
3:27 - 3:29Svarið liggur í Bandaríkjunum,
-
3:29 - 3:30í því að draga úr eftirspurninni.“
-
3:30 - 3:33Svo ég fer heim og tala við fólkið
-
3:33 - 3:35sem sér um fíkniefnavarnir þar,
og það segir: -
3:35 - 3:39„Þú veist, Ethan, að þú getur
ekki hindrað eftirspurnina. -
3:39 - 3:42Lausnin er hinu megin.
Þú verður að hindra framleiðsluna.“ -
3:42 - 3:44Svo ég fer og tala við tollverðina
-
3:44 - 3:47sem reyna að stoppa
fíkniefnin á landamærunum, -
3:47 - 3:50og þeir segja: „Þú stoppar þau ekki hérna.
-
3:50 - 3:52Lausnin er þarna,
-
3:52 - 3:55í því að draga úr
framleiðslu og eftirspurn.“ -
3:55 - 3:56Og þá áttaði ég mig á því:
-
3:56 - 3:59Allir sem taka þátt í þessu
-
3:59 - 4:01telja svarið liggja á því svæði
-
4:01 - 4:04sem þeir þekkja hvað verst.
-
4:04 - 4:07Það var þá sem ég byrjaði
að lesa allt sem ég gat -
4:07 - 4:10um geðvirk lyf:
söguna, vísindin, -
4:10 - 4:12stjórnmálin, allt um þau,
-
4:12 - 4:14og því meira sem maður les,
-
4:14 - 4:16því betur sér maður hvernig úthugsuð,
-
4:16 - 4:20upplýst, gáfuleg leið leiddi hingað,
-
4:20 - 4:22en stjórnmálin og lögin í mínu landi
-
4:22 - 4:24leiddu okkur hingað.
-
4:24 - 4:28Og þessi mismunur blasti
við mér sem ótrúlegt -
4:28 - 4:32vitsmunalegt og siðferðislegt púsluspil.
-
4:34 - 4:36Það hefur að líkindum aldrei verið til
-
4:36 - 4:39fíkniefnalaust samfélag.
-
4:39 - 4:41Nánast hvert einasta samfélag
-
4:41 - 4:43hefur innbyrt geðvirk efni
-
4:43 - 4:47til að takast á við sársauka,
auka orku, blanda geði, -
4:47 - 4:49jafnvel ná sambandi við Guð.
-
4:49 - 4:52Löngun okkar til að
breyta hugarástandi okkar -
4:52 - 4:54kann að vera jafn djúpstæð og löngun okkar
-
4:54 - 4:58í mat, félagsskap og kynlíf.
-
4:58 - 5:00Svo okkar raunverulega áskorun
-
5:00 - 5:03er að læra hvernig megi
lifa með fíkniefnum -
5:03 - 5:06svo þau valdi sem minnstum skaða
-
5:06 - 5:10og í nokkrum tilfellum
sem mestum ávinningi. -
5:10 - 5:12Ég skal segja ykkur frá öðru sem ég lærði,
-
5:12 - 5:15að ástæðan fyrir að sum lyf
eru lögleg en önnur ekki -
5:15 - 5:18hef lítið sem ekkert að gera
með vísindi eða heilsu -
5:18 - 5:20eða áhættu af notkun þeirra,
-
5:20 - 5:22en mikið að gera með hverjir nota
-
5:22 - 5:25og hverjir eru taldir nota tiltekin lyf.
-
5:25 - 5:27Seint á 19. öld,
-
5:27 - 5:31þegar flest þeirra lyfja sem
nú eru ólögleg voru lögleg, -
5:31 - 5:33voru megin neytendur
ópíumefna í mínu landi -
5:33 - 5:37og öðrum löndum, miðaldra hvítar konur,
-
5:37 - 5:40sem notuðu þau til að
lina þjáningar og verki -
5:40 - 5:42þegar fá önnur verkjalyf voru í boði.
-
5:42 - 5:44Engum datt í hug að glæpavæða þau þá
-
5:44 - 5:47þar sem enginn vildi
setja ömmu í fangelsi. -
5:47 - 5:50En þegar hundruðir þúsunda Kínverja
-
5:50 - 5:52byrjuðu að flytja til landsins
-
5:52 - 5:54og vinna hörðum höndum
við járnbrautir og í námum -
5:54 - 5:56og síðan slaka á um kvöldin
-
5:56 - 5:58líkt og þeir höfðu gert í gamla landinu
-
5:58 - 6:00með nokkrum teygum af ópíum pípunni,
-
6:00 - 6:02þá sástu fyrstu lögin
sem bönnuðu fíkniefni -
6:02 - 6:04í Kaliforníu og Nevada,
-
6:04 - 6:07drifin áfram af kynþáttafordóma-
blöndnum ótta um að Kínverjar -
6:07 - 6:08breyttu hvítum konum
-
6:08 - 6:11í ópíum-háða kynlífsþræla.
-
6:11 - 6:14Fyrstu lögin sem bönnuðu
kókaín má einnig rekja til -
6:14 - 6:18kynþáttafordómablandins ótta við svarta
menn að sniffa þetta hvíta duft -
6:18 - 6:20og gleyma sínum rétta stað
-
6:20 - 6:22í samfélagi suðurríkjanna.
-
6:22 - 6:24Og fyrstu lögin til að banna maríjúana,
-
6:24 - 6:26voru vegna ótta við
Mexíkóska innflytjendur -
6:26 - 6:30í vestur- og suðvesturríkjunum.
-
6:30 - 6:32Og það sem var raunin í mínu landi
-
6:32 - 6:35er einnig raunin í mörgum öðrum,
-
6:35 - 6:37bæði varðandi rætur lagasetningarinnar
-
6:37 - 6:41og framkvæmd.
-
6:41 - 6:42Segjum sem svo,
-
6:42 - 6:45og ég ýki bara örlítið:
-
6:45 - 6:48Ef aðalneytendur kókaíns
-
6:48 - 6:50væru vel stæðir eldri hvítir menn
-
6:50 - 6:53og aðalneytendur Viagra
-
6:53 - 6:55væru ungir svartir menn,
-
6:55 - 6:58væri reykjanlegt kókaín auðveldlega
aðgengilegt með lyfseðli frá lækni -
6:58 - 7:01en sala á Viagra myndi kosta þig
fimm til tíu ár í fangelsi. -
7:01 - 7:05(Lófatak)
-
7:05 - 7:09Ég var áður prófessor sem kenndi þetta.
-
7:09 - 7:12Nú er ég aðgerðarsinni,
mannréttindaaðgerðarsinni, -
7:12 - 7:15og það sem drífur mig áfram er skömmin
-
7:15 - 7:18yfir að tilheyra þessari
annars stórkostlegu þjóð -
7:18 - 7:20sem telur innan við
fimm prósent íbúa heimsins -
7:20 - 7:24en nærri fjórðung fanga heimsins.
-
7:24 - 7:26Það er fólkið sem ég hitti
sem hefur misst einhvern -
7:26 - 7:29sem það elskar vegna
fíkniefnatengds ofbeldis eða í fangelsi -
7:29 - 7:30eða ofskammt eða alnæmi
-
7:30 - 7:33vegna þess að fíkniefnastefna
okkar leggur áherslu -
7:33 - 7:34á glæpavæðingu
fremur en heilsu. -
7:34 - 7:37Það er gott fólk sem
hefur misst störf sín, -
7:37 - 7:41heimili sín, frelsi sitt, jafnvel börn sín
-
7:41 - 7:45til ríkisins, ekki vegna þess
að það skaði einhvern -
7:45 - 7:48heldur vegna þess að þau
völdu að nota ákveðið lyf -
7:48 - 7:51frekar en annað.
-
7:51 - 7:55Svo, er lögleiðing svarið?
-
7:55 - 7:57Um það er ég óviss.
-
7:57 - 8:00Þrjá daga í viku tel ég svo vera,
þrjá daga í viku tel ég svo ekki vera, -
8:00 - 8:03á sunnudögum efast ég.
-
8:03 - 8:05En þar sem í dag er þriðjudagur,
-
8:05 - 8:10leyfi ég mér að segja að
það að lögleiða og skattleggja -
8:10 - 8:12flest þeirra lyfja sem nú eru ólögleg
-
8:12 - 8:15myndi stórminnka glæpina, ofbeldið
-
8:15 - 8:16spillinguna og svörtu markaðina,
-
8:16 - 8:19og vandamálin sem fylgja
menguðum og eftirlitslausum lyfjum, -
8:19 - 8:21og auka öryggi almennings,
-
8:21 - 8:24og gera mögulega betri nýtingu
-
8:24 - 8:26á skattfé almennings.
-
8:26 - 8:30Ég meina, markaðirnir
með maríjúana, kókaín, -
8:30 - 8:32heróín og metamfetamín
-
8:32 - 8:34eru alþjóðlegir vörumarkaðir
-
8:34 - 8:37líkt og alþjóðlegir markaðir
með áfengi, tóbak, -
8:37 - 8:40kaffi, sykur og svo margt fleira.
-
8:40 - 8:43Þar sem er eftirspurn
-
8:43 - 8:45mun verða framboð.
-
8:45 - 8:47Sláið út einn framleiðanda og annar
-
8:47 - 8:49mun óhjákvæmilega koma fram.
-
8:49 - 8:51Fólk lítur gjarnan á bann
-
8:51 - 8:54sem hina endanlegu reglusetningu
-
8:54 - 8:58þegar það í raun stendur
fyrir endalok reglusetningar -
8:58 - 9:02og glæpamenn taka við.
-
9:02 - 9:04Þess vegna er það að
nota refsilöggjöf og lögreglu -
9:04 - 9:07til að reyna stjórna
-
9:07 - 9:10síbreytilegum alþjóðlegum vörumarkaði
-
9:10 - 9:13uppskrift að stórslysi.
-
9:13 - 9:16Það sem við raunverulega þurfum að gera
-
9:16 - 9:18er að draga fíkniefnamarkaði undirheima
-
9:18 - 9:21upp á yfirborðið
-
9:21 - 9:25og setja þeim eins
skynsamlegar reglur og við getum -
9:25 - 9:28til að lágmarka bæði skaða af fíkniefnunum
-
9:28 - 9:31og þann skaða sem fylgir bannstefnu.
-
9:31 - 9:35Þegar kemur að maríjúana
þýðir þetta augljóslega -
9:35 - 9:37löggjöf og skattlagning líkt og á áfengi.
-
9:37 - 9:41Ávinningurinn af því er gífurlegur
og áhættan smávægileg. -
9:41 - 9:43Munu fleiri nota maríjúana?
-
9:43 - 9:47Mögulega, en það verða ekki ungmenni,
-
9:47 - 9:49því það verður ekki lögleitt fyrir þau,
-
9:49 - 9:51og hreint út sagt hafa þau nú þegar
-
9:51 - 9:53bestan aðgang að maríjúana.
-
9:53 - 9:55Ég held það muni verða eldra fólk.
-
9:55 - 9:58Fólk á fimmtugs-, sjötugs- og
-
9:58 - 10:01níræðisaldri sem kemst að því
að það vill frekar smá maríjúana -
10:01 - 10:04en drykk á kvöldin eða svefntöflu
-
10:04 - 10:08eða að það hjálpi því
með liðagigtina eða sykursýkina -
10:08 - 10:13eða kryddi jafnvel upp langlíft
hjónaband. (Hlátur) -
10:13 - 10:16Það gæti því á heildina litið
bætt heilsu almennings. -
10:16 - 10:19Hvað varðar önnur fíkniefni,
-
10:19 - 10:21lítið til Portúgal,
þar sem enginn fer í fangelsi -
10:21 - 10:23fyrir vörslu fíkniefna,
-
10:23 - 10:25og stjórnvöld hafa raunverulega ákveðið
-
10:25 - 10:27að líta á fíkn sem heilsuvandamál.
-
10:27 - 10:29Lítið til Sviss, Þýskalands, Hollands,
-
10:29 - 10:31Danmerkur, Englands,
þar sem fólk sem hefur -
10:31 - 10:33verið háð heróíni í mörg ár
-
10:33 - 10:35og marg oft reynt að
hætta en ekki tekist það -
10:35 - 10:38geta fengið heróín og aðstoð
-
10:38 - 10:41á heilsugæslustöðvum
og áhrifin eru augljós: -
10:41 - 10:44Misnotkun ólöglegra lyfja, sjúkdómum,
-
10:44 - 10:48ofskömmtum, glæpum og handtökum fækkar,
-
10:48 - 10:51heilsa og vellíðan aukast,
-
10:51 - 10:52skattborgarar græða,
-
10:52 - 10:56og margir neytendur jafnvel
venjast af fíkniefnunum. -
10:56 - 10:59Lítið til Nýja-Sjálands
sem lögfesti nýlega -
10:59 - 11:02heimild til sölu á
ákveðnum upplyftingarlyfjum, -
11:02 - 11:05að því gefnu að öryggi þeirra
væri staðfest. -
11:05 - 11:08Lítið hingað til Brasilíu
og nokkurra annarra landa -
11:08 - 11:11þar sem merkilegt geðvirkt efni,
-
11:11 - 11:14ayahuasca, getur verið
keypt og notað löglega -
11:14 - 11:17svo lengi sem það er vegna trúarathafna.
-
11:17 - 11:19Lítið til Bólivíu og Perú,
-
11:19 - 11:22þar sem margskonar
vörur gerðar úr kóka-laufi, -
11:22 - 11:24upprunaefnis kókaíns,
-
11:24 - 11:25eru seld löglega til almennings
-
11:25 - 11:28án sjáanlegs skaða á heilsu almennings.
-
11:28 - 11:32Ég meina, ekki gleyma að
Coca-Cola innihélt kókaín fram til 1900, -
11:32 - 11:35og að við best vitum var
ekki meira ávanabindandi -
11:35 - 11:38en Coca-Cola í dag.
-
11:38 - 11:42Hugsið hins vegar um sígarettur:
-
11:42 - 11:47Ekkert getur krækt í þig og
drepið þig jafn auðveldlega og sígarettur. -
11:47 - 11:49Þegar rannsakendur spyrja heróínfíkla
-
11:49 - 11:53hvaða fíkniefni erfiðast er að
venja sig af, segja flestir sígarettur. -
11:53 - 11:55Þrátt fyrir það hefur í
mínu landi, sem og öðrum, -
11:55 - 11:58helmingur þeirra sem
ánetjast hefur sígarettum, -
11:58 - 12:00hætt að reykja
-
12:00 - 12:03án þess að vera handteknir
eða settir í fangelsi -
12:03 - 12:05eða sendir í „meðferð“
-
12:05 - 12:07af saksóknara eða dómara.
-
12:07 - 12:10Það sem dugði voru skattahækkanir,
-
12:10 - 12:13tíma- og staðsetningartakmarkanir
á sölu og notkun -
12:13 - 12:17og áhrifaríkar herferðir gegn reykingum.
-
12:17 - 12:20Gætum við dregið enn meira úr reykingum
-
12:20 - 12:24með því að banna þær?
-
12:24 - 12:25Líklega.
-
12:25 - 12:28En ímyndið ykkur
fíkniefnastríðs-martröðina -
12:28 - 12:31sem myndi fylgja.
-
12:31 - 12:34Svo áskoranir dagsins í dag
-
12:34 - 12:36eru tvær.
-
12:36 - 12:39Fyrri er áskorunin er
vandamál við reglubreytingar, -
12:39 - 12:42að hanna og koma í
framkvæmd öðrum valkostum -
12:42 - 12:45en árangurslausri bannstefnu
-
12:45 - 12:48ásamt því að bæta regluverk í kringum
-
12:48 - 12:52og lifa með þeim lyfjum sem nú eru lögleg.
-
12:52 - 12:55En seinni áskorunin er erfiðari,
-
12:55 - 12:59því hún snýst um okkur.
-
12:59 - 13:02Hindranir í vegi endurmótunar
-
13:02 - 13:04eru ekki bara á vegum fangelsisiðnaðarins
-
13:04 - 13:07eða annarra hagsmunaaðila sem vilja halda
-
13:07 - 13:08hlutunum í núverandi mynd,
-
13:08 - 13:12heldur innra með okkur öllum.
-
13:12 - 13:16Það er ótti okkar og skortur á þekkingu
-
13:16 - 13:23og ímyndunarafli sem stendur í
vegi raunverulegrar endurmótunar. -
13:23 - 13:27Og í grunninn held ég að
þetta snúist um krakkana, -
13:27 - 13:31og þrá allra foreldra
til að vernda börn sín, -
13:31 - 13:34og óttann um að einhvern vegin
muni fíkniefni ná til þeirra, -
13:34 - 13:36og setji börnin okkar í hættu.
-
13:36 - 13:38Í rauninni virðist stundum sem
-
13:38 - 13:40að Fíkniefnastríðið sé réttlætt
-
13:40 - 13:44sem ein stór barnaverndarlöggjöf,
-
13:44 - 13:48sem hvaða unga manneskja sem er,
getur sagt ykkur að það er ekki. -
13:48 - 13:52Svo það sem ég segi við unglinga er:
-
13:52 - 13:56Í fyrsta lagi, ekki nota fíkniefni.
-
13:56 - 13:59Í öðru lagi, ekki nota fíkniefni.
-
13:59 - 14:03Í þriðja lagi, ef þú notar fíkniefni,
-
14:03 - 14:05þá eru nokkrir hlutir
sem ég vil að þú vitir af, -
14:05 - 14:09því að markmið mitt sem foreldri þitt er,
-
14:09 - 14:12að þú komir heill heim í lok kvölds,
-
14:12 - 14:16að þú fáir að fullorðnast
og lifa heilbrigðu lífi. -
14:16 - 14:22Það er mín speki við kennslu um
fíkniefni: Öryggið á oddinn. -
14:22 - 14:25Svo ég hef helgað líf mitt því
-
14:25 - 14:28að byggja stofnun og hreyfingu fólks
-
14:28 - 14:31sem trúir því að við
þurfum að snúa baki við -
14:31 - 14:33misheppnaðri bannstefnu fortíðarinnar
-
14:33 - 14:35og taka opnum örmum
lyfjalöggjöf byggðri á vísindum, -
14:35 - 14:38samúð, heilsu og mannréttindum,
-
14:38 - 14:41þar sem fólk með
mismunandi stjórnmálaskoðanir -
14:41 - 14:43og mismunandi bakgrunn,
-
14:43 - 14:45þar sem fólk sem elskar fíkniefni,
-
14:45 - 14:46fólk sem hatar fíkniefni,
-
14:46 - 14:48og fólki sem er alveg sama um fíkniefni,
-
14:48 - 14:52en öll teljum við að Fíkniefnastríðið,
-
14:52 - 14:56þetta afturhaldssama, hjartalausa
og hörmulega Fíkniefnastríð, -
14:56 - 14:59þurfi að binda endi á.
-
14:59 - 15:01Þakka ykkur fyrir.
-
15:01 - 15:06(Lófatak)
-
15:15 - 15:18Þakka ykkur, þakka ykkur.
-
15:18 - 15:20Chris Anderson: Ethan,
-
15:20 - 15:23til hamingju - þó nokkuð góð viðbrögð.
-
15:23 - 15:26Þetta var áhrifamikill fyrirlestur.
-
15:26 - 15:29Ekki alveg allir sem stóðu
upp til að klappa samt, -
15:29 - 15:31og ég giska á að nokkrir hér,
-
15:31 - 15:33og mögulega nokkrir
sem fylgjast með á netinu, -
15:33 - 15:37þekki ungling eða vin,
-
15:37 - 15:40eða einhvern sem veiktist,
-
15:40 - 15:42eða jafnvel dó af völdum ofskammts.
-
15:42 - 15:45Það fólk hefur líklega
nálgast þig áður. -
15:45 - 15:47Hvað segirðu við það?
-
15:47 - 15:49Ethan: Chris, það
merkilegasta sem hefur -
15:49 - 15:51gerst nýlega er að ég hef
hitt fleiri og fleiri -
15:51 - 15:54sem hafa misst systkini eða barn
-
15:54 - 15:55vegna ofskammts,
-
15:55 - 15:57og fyrir 10 árum, vildu þau bara smala
-
15:57 - 15:59saman öllum fíkniefnasölunum
og skjóta þá -
15:59 - 16:00til að leysa vandamálið.
-
16:00 - 16:02Það sem þau hafa komist að
-
16:02 - 16:05er að Fíkniefnastríðið verndaði
börnin þeirra alls ekki. -
16:05 - 16:06Ef eitthvað jók það líkurnar á
-
16:06 - 16:08að börnin þeirra lentu í hættu.
-
16:08 - 16:10Svo nú eru þau að verða hluti af
-
16:10 - 16:12hreyfingunni til endurmótunar
lyfjalöggjafar. -
16:12 - 16:13Það er annað fólk sem á börn,
-
16:13 - 16:17annað barnið er háð áfengi
en hitt kókaíni eða heróíni, -
16:17 - 16:18og það veltir fyrir sér:
-
16:18 - 16:21Af hverju fær annað barnið að
taka eitt skref í einu -
16:21 - 16:22í átt til betrunar
-
16:22 - 16:24en hitt þarf sífellt
að takast á við fangelsi -
16:24 - 16:25lögreglu og glæpamenn?
-
16:25 - 16:27Svo allir eru að átta sig á,
-
16:27 - 16:29að Fíkniefnastríðið
verndar ekki nokkurn mann. -
16:29 - 16:32CA: Sérstaklega í B.N.A.
mjakast ekkert áfram -
16:32 - 16:33í flestum pólitískum málum.
-
16:33 - 16:35Eru raunverulegar líkur á nokkurri
-
16:35 - 16:38framför á þessu sviði á næstu fimm árum?
-
16:38 - 16:40Mér finnst það mjög merkilegt.
Ég fæ símtöl -
16:40 - 16:42frá blaðamönnum sem segja við mig:
-
16:42 - 16:44„Ethan, svo virðist sem þau einu tvö mál
-
16:44 - 16:47sem miðar eitthvað áfram
í bandarískum stjórnmálum, -
16:47 - 16:49séu maríjúana lagabreytingar
og hjónabönd samkynhneigðra. -
16:49 - 16:51Hvað ertu að gera rétt?“
-
16:51 - 16:53Svo sjáum við samvinnu beggja flokka,
-
16:53 - 16:56repúblikanar í þinginu
-
16:56 - 16:59og á löggjafarþingum ríkja
að hleypa í gegn frumvörpum -
16:59 - 17:01með stuðningi meirihluta demókrata,
-
17:01 - 17:03svo við höfum farið frá því að
vera einskonar utangarðsmál, -
17:03 - 17:05óttalegasta málefni
bandarískra stjórnmála, -
17:05 - 17:07yfir í að vera eitt það farsælasta.
-
17:07 - 17:10Ethan, þakka þér kærlega fyrir mæta á
TEDGlobal. -
17:10 - 17:13Þakka þér kærlega Chris.
Þakka þér. (Lófatak)
- Title:
- Hvers vegna við þurfum að enda Fíkniefnastríðið
- Speaker:
- Ethan Nadelmann
- Description:
-
Er Fíkniefnastríðið að valda meiri skaða en það gerir gagn? Í djörfum fyrirlestri ber Ethan Nadelmann fram þá bón að við bindum enda á þá „afturhaldssömu, hjartalausu og hörmulegu“ stefnu að traðka niður viðskipti með fíkniefni. Hann veitir tvær stórar ástæður fyrir því að við ættum að einbeitum okkur frekar að skynsamlegu regluverki.
- Video Language:
- English
- Team:
- closed TED
- Project:
- TEDTalks
- Duration:
- 17:26
Dimitra Papageorgiou approved Icelandic subtitles for Why we need to end the War on Drugs | ||
Eyrun Sigrunardottir accepted Icelandic subtitles for Why we need to end the War on Drugs | ||
Eyrun Sigrunardottir edited Icelandic subtitles for Why we need to end the War on Drugs | ||
Amaranta Heredia Jaén edited Icelandic subtitles for Why we need to end the War on Drugs | ||
Amaranta Heredia Jaén edited Icelandic subtitles for Why we need to end the War on Drugs | ||
Amaranta Heredia Jaén approved Icelandic subtitles for Why we need to end the War on Drugs | ||
Amaranta Heredia Jaén rejected Icelandic subtitles for Why we need to end the War on Drugs | ||
Ragnar Thor edited Icelandic subtitles for Why we need to end the War on Drugs |