Kevin Systrom hjá Instagram útskýrir díla og hvernig litasíur virka
-
0:01 - 0:04Svolítið um díla
-
0:08 - 0:10(myndavél smellur) Fínt.
-
0:12 - 0:14Ég bjó til Instagram ásamt félaga mínum
-
0:14 - 0:19Mike. Upphaflega sáum við í farsímanum
tækifæri til að skapa eitthvað nýtt. Því -
0:19 - 0:23í fyrsta skipti var fólk á ferðinni með
tölvu í vasanum. Og við ákváðum -
0:23 - 0:27að það að deila myndum væri líklega
stærsta tækifærið næstu fimm árin og -
0:27 - 0:32eitthvað sem lá okkur nærri hjarta,
eitthvað sem við vildum eyða tíma í. Það -
0:32 - 0:37er fínt að segja að maður sé með app eða
hugmynd sem gerir x, y eða z, en ef það leysir -
0:37 - 0:43ekki raunverulegt vandamál mun fólk ekki nota það. Og spurningin er: Hvaða vandamál ertu að leysa?
-
0:44 - 0:48(Piper - Ljósmyndari) Þegar fólk stóð fyrst frammi fyrir því hvernig ætti að sýna mynd
-
0:48 - 0:51á skjá, varð að finna upp aðferð til að
umbreyta myndinni í gögn. Árið 1957 -
0:51 - 0:57tók einn af fyrstu tölvunarfræðingum, Russel Kirsch, mynd af umgum syni sínum og skannaði
-
0:57 - 1:01hana. Það var fyrsta stafræna myndin, kornótt svart-hvít ungabarnamynd -- og þannig varð
-
1:01 - 1:08díllinn til! Dílar eru athyglisverð hugmynd
því að maður sér þá ekki mjög auðveldlega. -
1:08 - 1:13En samt ef þú notar stækkunargler og ferð
alveg upp að skjá getur þú séð að í raun er -
1:13 - 1:18skjárinn samsettur af örsmáum punktum af ljósi. Það sem er enn áhugaverðara er að þessir
-
1:18 - 1:22litlu ljósdílar eru í raun margir litlir dílar af ljósi í mismunandi litum.
-
1:22 - 1:28Það er rauður, grænn og blár. Dílarnir til samans, úr fjarlægð, búa til mynd en í reynd eru
-
1:28 - 1:33þeir bara lítil ljós sem eru kveikt eða slökkt. Til samans skapa þeir myndir og
-
1:33 - 1:37það sem þú sérð hvern einasta dag þegar
þú notar tölvuna. Þú átt eftir að heyra -
1:37 - 1:42orðið upplausn mjög mikið, bæði í tölvunarfræði
og framleiðendur tækja munu tala -
1:42 - 1:48um hana. Upplausn er í grunninn þær víddir
sem þú getur notað til að mæla hve margir -
1:48 - 1:53dílar eru á skjánum. Hér áður þegar ég var í framhaldsskóla var hún 640 sinnum
-
1:53 - 1:58480 dílar. Í dag er hún miklu meiri.
Og svo snýst þetta ekki bara um upplausn -
1:58 - 2:02heldur líka þéttleika. Til dæmis hafa farsímar
í dag sama fjölda lítilla ljósa -
2:02 - 2:07sem nefnast dílar en í samanþjappaðra
rými og það er það sem gefur manni skarpari -
2:07 - 2:14myndir. Svo hvernig vistar maður þessi gildi
í skrá? Það sem maður gerir er að vista -
2:14 - 2:19rauð, græn og blá gildi í litlum
þrenningum. Með mismunandi gildum -
2:19 - 2:29sem hvert myndar einn díl. Gildin ná frá 0
til 255. 0 mundi vera mjög dimmt, -
2:29 - 2:38255 mundi vera mjög bjart. Þrenning
svona gilda saman myndar einn stakan díl. -
2:38 - 2:43Myndskrá, hvort sem það er jpeg, gif, png, o.s.frv., inniheldur miljónir af þessum RGB (rautt-grænt-blátt)
-
2:43 - 2:48þrenningum. Svo hvernig geymir tölvan öll þessi gögn? Öll tölvu- og myndgögn eru
-
2:48 - 2:53táknuð með bitum. Biti hefur tvær stöður:
hann er á eða hann er af. En í stað á og af -
2:53 - 3:01nota tölvur 1 og 0 - tvíundir! Myndskrá er í raun bara safn af 1 og 0.
-
3:01 - 3:08En af hverju eru RGB gildi frá 0 til 255?
Í raun er hver rás litar, RGB, er táknuð -
3:08 - 3:14með 8 bitum, sem saman er nefnd bæti.
Ef þú þekkir tvíundarkerfið þá veistu -
3:14 - 3:20að hæsta talan sem 8 bitar geta táknað er 255. 255 er sama og átta 1 í röð.
-
3:20 - 3:29Og sú lægsta er 0 eða átta 0 í röð. Þess
vegna gefur 0 til 255 okkur 256 mismunandi -
3:29 - 3:36styrkleika fyrir hverja litarás. Við getum
táknað díl með litnum túrkís til dæmis -
3:36 - 3:43í okkar hefðbundna tugakerfi sem 64 (fyrir smá rautt), 224 (fyrir mikið af grænu)
-
3:43 - 3:54og 208 (fyrir blátt). En tölva mundi vista
hann sem 0100 0000 1110 0000 -
3:54 - 4:031101 0000. Við notum 24 tvíundarstafi til að tákna þennan eina díl. Svo að frekar en nota tvíundir
-
4:03 - 4:08nota stafrænir listamenn oft sextándakerfið (hex) til að tákna liti. Þá getum við táknað sama
-
4:08 - 4:16litinn túrkís með aðeins sex hexstöfum: 40 E0 D0. Sem er miklu styttra,
-
4:16 - 4:22Segjum að þú viljir breyta litum myndarinnar. Hvernig gerir maður það? Í grunninn þá
-
4:22 - 4:26eru vörpunaraðferðir sem hafa fyrir inntak gildi dílsins. Svo maður tekur inn
-
4:26 - 4:31rautt, grænt og blátt gildi, sem táknar þann lit. Svo er þessu varpað
-
4:31 - 4:37með reikningsaðferð yfir í ný rauð, græn og blá gildi. Segjum að við vildum gera
-
4:37 - 4:42mynd dekkri. Ein leið að gera það er að taka rauðu, grænu og bláu gildin sem
-
4:42 - 4:49koma fyrir og segjum við drögum fasta tölu frá hverju þeirra, segjum draga frá 50.
-
4:49 - 4:54Að sjálfsögðu getum við ekki farið neðar en 0, en maður dregur bara 50 frá hverju þeirra og
-
4:54 - 5:02það er útkoman. Svo að inntakið er R,G,B og útkoman er R-50, G-50 og B-50. Það sem þú
-
5:02 - 5:06sérð er að þú hefur tekið mynd með vissa
birtu, og þú færð út mynd með miklu dekkri -
5:06 - 5:12birtu. Það sem margir átta sig ekki á með Instagram er að upphaflega hélt fólk
-
5:12 - 5:17að það væri aðferð til að breyta myndum, til að láta myndirnar vera flottari á einhvern hátt eða
-
5:17 - 5:22gamaldags. Og það sem það þróaðist í var í raun miklu mikilvægara, það var aðferð til að
-
5:22 - 5:27tengja fólk. Það snýst ekki bara um að sjá
myndir af vinum og fjölskyldu, heldur -
5:27 - 5:32að geta uppgötvað hluti sem eru að gerast út um allan heim. Hvort sem það eru óeirðir erlendir,
-
5:32 - 5:38samfélagshreyfing, þú getur innbyrt þessar upplýsingar á sjónrænan hátt.
-
5:38 - 5:41Og það gerði okkur kleift að vaxa mjög hratt og verða alþjóðlegur vettvangur.
-
5:43 - 5:49Lærðu meira á studio.code.org.
- Title:
- Kevin Systrom hjá Instagram útskýrir díla og hvernig litasíur virka
- Description:
-
Hlustaðu á meðstofnanda Instagram útskýra hvernig myndefni er táknað með tvíundum og hvernig myndasíur virka. Þetta myndband er hluti af röð myndbandsfyrirlestra Code.org fyrir framhaldsskólanámskeiðið Undirstöðuatriði tölvunarfræði (Computer Science Principles). Nánari upplýsingar um innihald námskeiðsins eru á http://code.org/educate/csp. Önnur kennslumyndbönd frá Code.org má finna á http://code.org/educate/videos.
- Video Language:
- English
- Duration:
- 05:50
Jon Georgsson edited Icelandic subtitles for Instagram's Kevin Systrom explains pixels and how filters work |