Return to Video

Samlagning almennra brota með ólíkum nefnara

  • 0:00 - 0:05
    Við erum beðin um að leggja saman 4/9 og 11/12 og skrifa svarið okkar niður
  • 0:05 - 0:07
    sem almennt brot. Þ.e.a.s að einfalda og skrifa það svar
  • 0:07 - 0:09
    sem almennt brot.
  • 0:09 - 0:12
    Hér eru brotin tvö sem við ætlum að leggja saman, en við
  • 0:12 - 0:14
    erum með ólíka nefnara (talan fyrir neðan strik)
  • 0:14 - 0:16
    Þegar þú leggur saman brot þarftu alltaf að byrja á því að
  • 0:16 - 0:17
    athuga nefnarana.
  • 0:17 - 0:19
    Ef þeir eru eins, þá getur þú lagt saman, en ef þeir eru ólíkir
  • 0:19 - 0:22
    eins og hér, þá þarftu að breyta þeim þannig að þeir hafi
  • 0:22 - 0:23
    sama nefnara.
  • 0:23 - 0:28
    Það sem við þurfum þá að gera er að finna tölu sem bæði 9 og 12
  • 0:28 - 0:31
    ganga uppí og það verður þá nýji samnefnarinn
  • 0:31 - 0:34
    okkar, og þú munt sjá hvers vegna bæði 9 og 12 verða að
  • 0:34 - 0:35
    ganga uppí þá tölu.
  • 0:35 - 0:37
    Reynum þá að finna út þessa tölu. Það eru tvær
  • 0:37 - 0:40
    leiðir til að finna út það sem við getum kallað minnsta
  • 0:40 - 0:44
    sameiginlega margfeldi, minnstu töluna sem er bæði
  • 0:44 - 0:47
    margfeldi af 9 og 12
  • 0:47 - 0:49
    Ein leið er bara að skoða öll margfeldi af 9 og
  • 0:49 - 0:51
    athuga hvort hægt er að deila einhverju þeirra með 12.
  • 0:51 - 0:55
    Ef við byrjum með 9 - við getur gert það hér.
  • 0:55 - 0:57
    Þá höfum við 9, sem ekki er deilanlegt með 12
  • 0:57 - 1:00
    18 er ekki deilanlegt með 12
  • 1:00 - 1:03
    27 er ekki deilanlegt með 12
  • 1:03 - 1:06
    36, bíddu, það er deilanlegt með 12.
  • 1:06 - 1:07
    Það er 12 sinnum 3.
  • 1:07 - 1:12
    Svon 9 gengur uppí 36 og 12 gengur uppí 36.
  • 1:12 - 1:14
    Það sem við viljum þá gera er að skrifa brotin samnefnd
  • 1:14 - 1:18
    Við ætlum að skrifa 4/9 sem eitthvað deilt með 36, og við
  • 1:18 - 1:24
    ætlum að skrifa 11/12 sem eitthvað deilt með 36.
  • 1:24 - 1:27
    Til að breyta 9 í 36 þá þurfum við að
  • 1:27 - 1:33
    margfalda 9 með 4 ekki satt?
  • 1:33 - 1:38
    9 sinnum 4 eru sama sem 36.
  • 1:38 - 1:40
    Nú getur þú einfaldlega margfaldað nefnarann með 4.
  • 1:40 - 1:44
    Þú þarft líka að margfalda teljarann (töluna uppi) með því sama.
  • 1:44 - 1:46
    Svo ef þú margfaldar teljarann með 4 þá færðu 4
  • 1:46 - 1:48
    sinnum 4 sama sem 16
  • 1:48 - 1:52
    SVo 4/9 eru nákvæmlega það sama og 16/36
  • 1:52 - 1:56
    Ef þú vilt einfalda þetta í 4/9 þá þarftu að deila
  • 1:56 - 1:58
    teljaranum og nefnaranum með 4.
  • 1:58 - 2:00
    Nú, gerum við þetta sama hérna megin.
  • 2:00 - 2:08
    36, 12 sinnum 3, við margföldum 12 með 3 til að fá 36
  • 2:08 - 2:10
    Ef við gerum þetta við nefnarann þá verðum við líka að
  • 2:10 - 2:14
    gera þetta við teljarann, svo 11 sinnum 3 eru 33.
  • 2:14 - 2:17
    Þannig erum við búin að umrita bæði brotin
  • 2:17 - 2:20
    þannig að þau hafa sama nefnara.
  • 2:20 - 2:23
    Báðir nefnarar þeirra eru 36.
  • 2:23 - 2:24
    Nú erum við tilbúin að leggja saman.
  • 2:24 - 2:29
    Ef þú leggur saman þessar tvær stærðir þá erum við með 36 hér, því að
  • 2:29 - 2:33
    við erum að vinna með þrítugustu og sjöttu hluta og
  • 2:33 - 2:35
    við erum þá með 16 plús 33 í teljaranum.
  • 2:35 - 2:36
    Skrifum þetta niður.
  • 2:36 - 2:41
    16 plús 33 í teljaranum.
  • 2:41 - 2:45
    Og 16 plús 33 eru?
  • 2:45 - 2:48
    6 plús 33 eru 39 og þá þurfum við að
  • 2:48 - 2:50
    bæta við 10 svo útkoman er 49.
  • 2:50 - 2:57
    Við erum þá komin með 49/36
  • 2:57 - 2:59
    En, getum við einfaldað þetta?
  • 2:59 - 3:04
    49 er 7 í öðru veldi svo þættir hennar eru 1, 7 og 49.
  • 3:04 - 3:06
    Þessi tala hefur 1 - hún hefur fullt af þáttum,
    en hún er ekki
  • 3:06 - 3:13
    deilanleg með 7 þannig að við getum ekki stytt
    neitt frekar
  • 3:13 - 3:14
    En við getum samt einfaldað
  • 3:14 - 3:16
    Teljarinn er stærri en nefnarinn
  • 3:16 - 3:18
    Við skulum því einfalda.
  • 3:18 - 3:25
    Þá þurfum við að deila 49 með 36.
  • 3:25 - 3:27
    Hversu oft ganga 36 uppí 49?
  • 3:27 - 3:29
    Bara einu sinni svo við fáum 1.
  • 3:29 - 3:31
    Hversu mikið er afgangs?
    (Hver er leifin?)
  • 3:31 - 3:36
    Ef við deilum 49 með 36 einu sinni, eða einu sinni 36 eru 36
  • 3:36 - 3:39
    þá eru 13 eftir til að ná uppí 49.
  • 3:39 - 3:43
    Svo útkoman er 1 og 13/36
  • 3:43 - 3:46
    Við getum reiknað þetta út ef þið viljið
  • 3:46 - 3:49
    Við höfum 49 deilt 36.
  • 3:49 - 3:51
    36 gengur einu sinni uppí 49.
  • 3:51 - 3:54
    1 sinni 36 eru 36 og við drögum frá.
  • 3:54 - 3:56
    9 mínus 6 eru 3.
  • 3:56 - 3:58
    4 mínus 3 eru 1.
  • 3:58 - 4:01
    Afgangurinn er þá 13.
  • 4:01 - 4:04
    Það er þá svarið: 1 og 13/36
Title:
Samlagning almennra brota með ólíkum nefnara
Description:

U02_L3_T1_we2 Adding Fractions with Unlike Denominators

more » « less
Video Language:
English
Duration:
04:06

Icelandic subtitles

Revisions