Return to Video

Janete Perez explains Functions with Parameters

  • 0:00 - 0:02
    (Janet - Zynga Engineer) Allir geta orðið forritarar.
  • 0:02 - 0:04
    Maður þarf bara að vera svolítið ævintýragjarn,
  • 0:04 - 0:07
    vera tilbúin að læra og hafa góða hugmynd.
  • 0:07 - 0:10
    Til að útskýra föll og stika,
  • 0:10 - 0:14
    get ég notað sem dæmi það að panta sér mat í hádeginu.
  • 0:14 - 0:16
    Segjum að þú sért að panta samloku og drykk.
  • 0:16 - 0:19
    Jæja, þá væru stikarnir
  • 0:19 - 0:23
    hvaða tegund af drykk og hvaða stærð af samloku.
  • 0:23 - 0:25
    Og svo á þennan hátt
  • 0:25 - 0:28
    hafa föll í tölvum stika svo að
  • 0:28 - 0:32
    þú getir tekið fram hve stórt form á að vera eða
  • 0:32 - 0:35
    eða hvaða lit formið á hafa.
  • 0:35 - 0:38
    Hvað ef við viljum að teikna nokkra þríhyrninga og hafa
  • 0:38 - 0:39
    hliðar þeirra í mismunandi stærðum?
  • 0:39 - 0:43
    Nú getur þú notað fall kubbinn okkar og sett inn mismunandi tölur
  • 0:43 - 0:45
    þannig að við getum teiknað mismunandi stór form.
  • 0:45 - 0:48
    Ef þú smellir á stjörnuna í fallinu teikna þríhyrning,
  • 0:48 - 0:51
    getur þú dregið heiti inntaks í inntakskubbinn;
  • 0:51 - 0:53
    og ef þú skrifar svo
  • 0:53 - 0:56
    lengd í staðinn þar sem stendur X og ýtir á Enter
  • 0:56 - 0:59
    þá munt þú búa til lengdarinntak fyrir fallið.
  • 0:59 - 1:02
    Smelltu svo aftur á stjörnuna til að loka því.
  • 1:02 - 1:06
    Næst smellir þú á flokkinn föll
  • 1:06 - 1:10
    og dregur kubbinn lengd inn í færa áfram kubbinn í skilgreiningu þinni á fallinu.
  • 1:10 - 1:15
    Dragðu burt gamla tölukubbinn og nú hefur þú fallkubb
  • 1:15 - 1:18
    þar sem þú getur sett lengdina á hliðum þríhyrningsins.
  • 1:18 - 1:20
    Þetta er kallað fall með stika.
  • 1:20 - 1:24
    Til að nota það smellir þú á flokkinn föll
  • 1:24 - 1:27
    og dregur út fallið teikna þríhyrning með lengd.
  • 1:27 - 1:30
    Nú getur þú notað stærðfræðikubbinn til að setja inn mismunandi tölur
  • 1:30 - 1:33
    til að teikna þríhyrninga í mismunandi stærðum.
  • 1:33 - 1:35
    Prófaðu þetta og brátt verður þú forritunarkempa.
Title:
Janete Perez explains Functions with Parameters
Description:

more » « less
Video Language:
English
Duration:
01:38

Icelandic subtitles

Revisions