Vá! Þrjár þrautir í viðbót leystar! Og við höfum veitt...lax. Ekki eins spennandi og hrúgur af gulli en við tökum það sem við fáum. Og ég hef á tilfinningunni að þessi skel muni koma að góðu gagni seinna. Hvað skyldi leynast í þessum rústum. Kannske önnur vísbending! Kíkjum inn. Ég heiti Netty og velkomin í rústirnar mínar. Við erum alltaf að taka ákvarðanir sem byggjast á skilyrðum. Ef það lítur út fyrir rigningu, þá grípum við regnhlíf. Ef við erum svöng, fáum við okkur að borða. Ef við sjáum laumupúka, hlaupum við í öfuga átt. Tölvur taka líka svona ákvarðanir. Þær geta reyndar brugðist við skilyrðum með því að nota kóða. Til að forrita svona viðbrögð með kóðaskipunum velur þú "ef slóð" kubb. Veldu fellilistann til að gera skipunina. Til dæmis, ef þú notar skipunina "ef slóð til hægri" og setur "snúa hægri" í skilyrðið, þá mun Steve þegar hann kemur að opinni slóð til hægri alltaf snúa til hægri. Ef það er engin opnun til hægri, þá mun hann ekki snúa til hægri. Þessar skilyrtu "ef" skipanir gagnast þegar þú kóðar fyrir óþekktar aðstæður svo sem í dularfullum rústum í neðansjávarhellum. Prófaðu að nota "ef" kubbana og láttu reyna á kóðann þinn! Vá! Rústirnar hennar Netty voru meiriháttar. Ég verð að fara að flytja að heiman. Jæja, hvað finnst þér? Eru skilyrðin rétt svo við getum klárað síðustu þrautirnar? Látum reyna á það.