WEBVTT 00:00:00.000 --> 00:00:02.000 Ég ætla að tala um spillingu, 00:00:02.000 --> 00:00:05.000 en mig langar að varpa fram 00:00:05.000 --> 00:00:07.000 tveimur ólíkum hlutum. 00:00:07.000 --> 00:00:12.000 Annar er stóra alþjóðlega hagkerfið, 00:00:12.000 --> 00:00:15.000 stóra hnattvædda hagkerfið 00:00:15.000 --> 00:00:18.000 og hinn er lítil og mjög svo takmörkuð 00:00:18.000 --> 00:00:22.000 geta okkar hefðbundnu ríkisstjórna 00:00:22.000 --> 00:00:24.000 og alþjóðlegu stofnunum þeirra 00:00:24.000 --> 00:00:28.000 til að reka og móta þetta hagkerfi. 00:00:28.000 --> 00:00:33.000 Því það er þetta misræmi, 00:00:33.000 --> 00:00:36.000 sem í raun framkallar 00:00:36.000 --> 00:00:38.000 bilaða stjórnhætti. 00:00:38.000 --> 00:00:40.000 Bilaða stjórnhætti á mörgum sviðum: 00:00:40.000 --> 00:00:44.000 a sviði spillingar og umhverfisspjalla, 00:00:44.000 --> 00:00:47.000 a sviði misnotkunar á konum og börnum, 00:00:47.000 --> 00:00:51.000 a sviði loftslagsbreytinga, 00:00:51.000 --> 00:00:54.000 a öllum sviðum sem við virkilega þurfum 00:00:54.000 --> 00:00:59.000 bolmagn til að setja stjórnmál 00:00:59.000 --> 00:01:02.000 aftur í fyrirrúm 00:01:02.000 --> 00:01:04.000 innan hagkerfisins, 00:01:04.000 --> 00:01:08.000 sem ríkir á alþjóðasviðinu. 00:01:09.000 --> 00:01:11.000 Og ég tel að spilling 00:01:11.000 --> 00:01:13.000 og baráttan gegn spillingu 00:01:13.000 --> 00:01:15.000 og áhrif spillingar 00:01:15.000 --> 00:01:17.000 séu sennilega ein athyglisverðasta leiðin 00:01:17.000 --> 00:01:19.000 til að skýra hvað ég á við 00:01:19.000 --> 00:01:22.000 með "gölluðum stjórnháttum". NOTE Paragraph 00:01:22.000 --> 00:01:26.000 Ég skal tala út frá minni eigin reynslu. 00:01:26.000 --> 00:01:29.000 Ég vann áður sem framkvæmdastjóri 00:01:29.000 --> 00:01:32.000 Næróbí skrifstofu Alþjóðabankans 00:01:32.000 --> 00:01:34.000 fyrir Austur-Afríku. 00:01:34.000 --> 00:01:36.000 Á þeim tíma tók ég eftir því 00:01:36.000 --> 00:01:39.000 að spilling - stórtæk spilling, 00:01:39.000 --> 00:01:41.000 kerfislæg spilling - 00:01:41.000 --> 00:01:45.000 var að grafa undan öllu sem við vorum að reyna að gera. 00:01:45.000 --> 00:01:47.000 Og þess vegna byrjaði ég 00:01:47.000 --> 00:01:50.000 ekki bara að reyna að vernda 00:01:50.000 --> 00:01:52.000 störf Alþjóðabankans, 00:01:52.000 --> 00:01:54.000 verkefni okkar, áætlanir okkar, 00:01:54.000 --> 00:01:56.000 gegn spillingu, 00:01:56.000 --> 00:01:59.000 heldur hugsaði ég almennt: Við þurfum kerfi 00:01:59.000 --> 00:02:01.000 til að vernda fólkið 00:02:01.000 --> 00:02:03.000 i þessum heimshluta 00:02:03.000 --> 00:02:06.000 gegn eyðileggingarmætti spillingar. 00:02:06.000 --> 00:02:09.000 Og um leið og ég hóf þessa vinnu 00:02:09.000 --> 00:02:12.000 fékk ég orðsendingar frá Alþjóðabankanum, 00:02:12.000 --> 00:02:14.000 fyrst í stað frá lagadeildinni, 00:02:14.000 --> 00:02:16.000 á þá leið að, "Þú mátt ekki gera þetta. 00:02:16.000 --> 00:02:20.000 Þú ert að hafa afskipti af innri málefnum aðildarríkja okkar. 00:02:20.000 --> 00:02:23.000 Þetta er bannað samkvæmt sáttmála Alþjóðabankans, 00:02:23.000 --> 00:02:26.000 svo ég vil að þú hættir því sem þú ert að gera." NOTE Paragraph 00:02:26.000 --> 00:02:28.000 Á sama tíma stýrði ég fundum 00:02:28.000 --> 00:02:30.000 með styrktaraðilum, til dæmis, 00:02:30.000 --> 00:02:32.000 þar sem hinir ýmsu styrktaraðilar, 00:02:32.000 --> 00:02:35.000 sem mörgum hverjum líkaði vel að vera í Næróbí - 00:02:35.000 --> 00:02:37.000 það er rétt, hún er ein af 00:02:37.000 --> 00:02:39.000 hættulegustu borgum heims, 00:02:39.000 --> 00:02:41.000 en þeim líkaði vel þar því að aðrar borgir 00:02:41.000 --> 00:02:44.000 voru enn óþægilegri. 00:02:44.000 --> 00:02:46.000 Og á þessum fundum tók ég eftir því 00:02:46.000 --> 00:02:48.000 að mörg af verstu verkefnunum - 00:02:48.000 --> 00:02:50.000 sem lögð voru fram 00:02:50.000 --> 00:02:52.000 af skjólstæðingum okkar, ríkisstjórnunum, 00:02:52.000 --> 00:02:54.000 af talsmönnum, 00:02:54.000 --> 00:02:56.000 sem margir hverjir unnu fyrir hönd 00:02:56.000 --> 00:02:58.000 birgja úr norðri - 00:02:58.000 --> 00:03:00.000 að verstu verkefnin 00:03:00.000 --> 00:03:02.000 voru afgreidd fyrst. 00:03:02.000 --> 00:03:04.000 Ég skal gefa ykkur dæmi: 00:03:04.000 --> 00:03:06.000 risastórt orkuverkefni, 00:03:06.000 --> 00:03:09.000 á 300 milljónir dala, 00:03:09.000 --> 00:03:11.000 sem átti að reisa beint inni í 00:03:11.000 --> 00:03:14.000 einu af viðkvæmustu og fallegustu 00:03:14.000 --> 00:03:17.000 svæðunum í vestur Keníu. 00:03:17.000 --> 00:03:19.000 Og við tókum öll eftir því undir eins 00:03:19.000 --> 00:03:22.000 að þetta verkefni hafði engan efnahagslegan ávinning: 00:03:22.000 --> 00:03:26.000 það hafði enga kúnna, enginn myndi kaupa rafmagn þarna, 00:03:26.000 --> 00:03:28.000 enginn hafði áhuga á áveituframkvæmdum. 00:03:28.000 --> 00:03:29.666 Þvert á móti, þá vissum við að þessi framkvæmd 00:03:31.332 --> 00:03:33.000 myndi eyðileggja umhverfið, 00:03:33.000 --> 00:03:35.000 skaða skóglendi meðfram árbökkunum, 00:03:35.000 --> 00:03:37.000 sem voru grundvöllurinn fyrir 00:03:37.000 --> 00:03:39.000 lífsviðurværi hirðingja, 00:03:39.000 --> 00:03:43.000 Samburu og Turkana þjóðflokkanna á þessu svæði. 00:03:43.000 --> 00:03:46.000 Svo allir vissu að þetta var, ekki bara gagnslaust plan, 00:03:46.000 --> 00:03:49.000 heldur beinlínis skemmdarverk, hræðilegt verkefni - 00:03:49.000 --> 00:03:53.000 svo ekki sé minnst á skuldir landsins til framtíðar litið, 00:03:53.000 --> 00:03:55.000 fyrir öll þessi hundruð milljóna dala, 00:03:55.000 --> 00:03:58.000 og það hvernig 00:03:58.000 --> 00:04:00.000 takmörkuðum auðlindum hagkerfisins 00:04:00.000 --> 00:04:03.000 var veitt frá nauðsynlegri verkefnum, 00:04:03.000 --> 00:04:05.000 svo sem skólum, spítölum og slíku. 00:04:05.000 --> 00:04:08.000 Og þótt við höfnuðum öll þessum áformum, 00:04:08.000 --> 00:04:10.000 og enginn styrktaraðili vildi 00:04:10.000 --> 00:04:13.000 tengja nafn sitt við þau, 00:04:13.000 --> 00:04:15.000 þá var þetta það fyrsta sem var framkvæmt. NOTE Paragraph 00:04:15.000 --> 00:04:18.000 Góðu verkefnin, sem við styrktaraðilarnir 00:04:18.000 --> 00:04:20.000 vildum taka undir okkar væng, 00:04:20.000 --> 00:04:22.000 þau tóku mörg ár, vitið þið, 00:04:22.000 --> 00:04:24.000 það þurfti of margar rannsóknir, 00:04:24.000 --> 00:04:26.000 og oft náðu þau ekki fram að ganga. 00:04:26.000 --> 00:04:28.000 En þessi slæmu verkefni, sem voru 00:04:28.000 --> 00:04:30.000 algjörlega eyðileggjandi - fyrir efnahagskerfið 00:04:30.000 --> 00:04:33.000 í margar kynslóðir, fyrir umhverfið, 00:04:33.000 --> 00:04:36.000 fyrir þúsundir fjölskyldna sem þurfti að flytja búferlum - 00:04:36.000 --> 00:04:38.000 þau voru allt í einu sett saman 00:04:38.000 --> 00:04:41.000 af bankasamsteypum, 00:04:41.000 --> 00:04:43.000 af birgjafélögum, 00:04:43.000 --> 00:04:45.000 af tryggingafélögum - 00:04:45.000 --> 00:04:48.000 eins og Hermes í Þýskalandi, o.s.frv. - 00:04:48.000 --> 00:04:50.000 og þau sneru aftur, mjög fljótt, 00:04:50.000 --> 00:04:52.000 rekin af vanheilögu bandalagi 00:04:52.000 --> 00:04:56.000 valdamikilla elíta 00:04:56.000 --> 00:04:58.000 í löndunum þarna 00:04:58.000 --> 00:05:00.000 og birgjanna úr norðri. 00:05:00.000 --> 00:05:02.000 Nú, þessir birgjar 00:05:02.000 --> 00:05:04.000 voru stórfyrirtækin okkar. 00:05:04.000 --> 00:05:07.000 Þau voru þátttakendur í þessu hnattvædda markaðskerfi, 00:05:07.000 --> 00:05:09.000 sem ég gat um í upphafi. 00:05:09.000 --> 00:05:12.000 Þetta voru Siemens fyrirtæki þessa heims, 00:05:12.000 --> 00:05:14.000 frá Frakklandi, frá Bretlandi, frá Japan, 00:05:14.000 --> 00:05:16.000 frá Kanada, frá Þýskalandi, 00:05:16.000 --> 00:05:19.000 og þau voru skipulega keyrð áfram 00:05:19.000 --> 00:05:22.000 af kerfisbundinni, stórfelldri spillingu. 00:05:22.000 --> 00:05:24.000 Við erum ekki að tala um 00:05:24.000 --> 00:05:26.000 50.000 dali hér, 00:05:26.000 --> 00:05:29.000 eða 100 þúsund dali þar, eða eina milljón dala þar. 00:05:29.000 --> 00:05:32.000 Nei, við erum að tala um u,þ.b. 10 til 20 milljónir dala 00:05:32.000 --> 00:05:34.000 á svissneskum bankareikningum, 00:05:34.000 --> 00:05:36.000 á bankareikningum í Liechtenstein, 00:05:36.000 --> 00:05:40.000 er tilheyrðu ráðherrum forsetans, 00:05:40.000 --> 00:05:43.000 háttsettum embættismönnum í ríkisreknum geirum. NOTE Paragraph 00:05:43.000 --> 00:05:45.000 Þetta var sá raunveruleiki sem ég sá 00:05:45.000 --> 00:05:47.000 og það var ekki bara eitt slíkt verkefni: 00:05:47.000 --> 00:05:49.000 Ég sá, myndi ég segja, 00:05:49.000 --> 00:05:51.000 á öllum þeim árum er ég vann í Afríku, 00:05:51.000 --> 00:05:53.000 sá ég hundruð slíkra verkefna. 00:05:53.000 --> 00:05:56.000 Og þannig sannfærðist ég 00:05:56.000 --> 00:05:59.000 um að það er þessi kerfisbundna spilling 00:05:59.000 --> 00:06:02.000 sem er að raska efnahagslegri ákvarðanatöku í þessum löndum, 00:06:02.000 --> 00:06:05.000 sem er megin ástæðan 00:06:05.000 --> 00:06:08.000 fyrir eymdinni, fátæktinni, 00:06:08.000 --> 00:06:10.000 fyrir átökunum, fyrir ofbeldinu, 00:06:10.000 --> 00:06:12.000 fyrir örvæntingunni 00:06:12.000 --> 00:06:14.000 í mörgum þessara landa. 00:06:14.000 --> 00:06:16.000 Það að við skulum í dag hafa 00:06:16.000 --> 00:06:19.000 meira en milljarð fólks undir algjörum fátæktarmörkum, 00:06:19.000 --> 00:06:22.000 það að meira en milljarður fólks 00:06:22.000 --> 00:06:24.000 er án hreins drykkjarvatns í heiminum, 00:06:24.000 --> 00:06:26.000 tvisvar sinnum sú tala, 00:06:26.000 --> 00:06:28.000 yfir tveir milljarðar fólks 00:06:28.000 --> 00:06:30.000 eru án hreinlætisaðstöðu, o.s.frv., 00:06:30.000 --> 00:06:32.000 og veikindin sem af þessu leiðir 00:06:32.000 --> 00:06:35.000 meðal mæðra og barna, 00:06:35.000 --> 00:06:38.000 að enn skuli barnadauði vera 00:06:38.000 --> 00:06:40.000 yfir 10 milljónir á ári, 00:06:40.000 --> 00:06:42.000 börn að deyja undir fimm ára aldri: 00:06:42.000 --> 00:06:45.000 Orsök þessa er, að miklu leyti, 00:06:45.000 --> 00:06:47.000 stórfelld spilling. NOTE Paragraph 00:06:47.000 --> 00:06:50.000 En hvers vegna leyfði Alþjóðabankinn mér 00:06:50.000 --> 00:06:53.000 ekki að vinna þessa vinnu? 00:06:53.000 --> 00:06:56.000 Ég komst að því síðar, 00:06:56.000 --> 00:06:59.000 eftir að ég yfirgaf bankann, í fússi. 00:06:59.000 --> 00:07:02.000 Ástæðan var að aðilar Alþjóðabankans 00:07:02.000 --> 00:07:05.000 töldu að erlendar mútur væru í lagi, 00:07:05.000 --> 00:07:07.000 þar með talið Þýskaland. 00:07:07.000 --> 00:07:09.000 Í Þýskalandi voru erlendar mútur leyfðar. 00:07:09.000 --> 00:07:12.000 Þær voru m.a.s. frádráttarbærar frá skatti. 00:07:12.000 --> 00:07:14.000 Ekki að furða þótt flestir mikilvægustu 00:07:14.000 --> 00:07:17.000 alþjóðlegu rekstraraðilar í Þýskalandi 00:07:17.000 --> 00:07:19.000 en einnig í Frakklandi og Bretlandi 00:07:19.000 --> 00:07:21.000 og Skandínavíu, mútuðu að staðaldri. 00:07:21.000 --> 00:07:24.000 Ekki allir, en flestir þeirra. 00:07:24.000 --> 00:07:26.000 Og þetta er fyrirbærið 00:07:26.000 --> 00:07:29.000 sem ég kalla bilaða stjórnhætti, 00:07:29.000 --> 00:07:31.000 því þegar ég kom svo til Þýskalands 00:07:31.000 --> 00:07:33.000 og stofnaði lítil frjáls félagasamtök (NGO) 00:07:33.000 --> 00:07:37.000 hér í Berlín, í Villa Borsig, 00:07:37.000 --> 00:07:40.000 var okkur sagt: "þið getið ekki aftrað 00:07:40.000 --> 00:07:42.000 þýsku útflytjendunum okkar frá því að múta, 00:07:42.000 --> 00:07:45.000 því við munum missa samningana okkar. 00:07:45.000 --> 00:07:47.000 Við munum tapa fyrir Frökkum, 00:07:47.000 --> 00:07:50.000 við munum tapa fyrir Svíum, við munum tapa fyrir Japönum." 00:07:50.000 --> 00:07:53.000 Og það var því vissulega ákveðið "vandamál fangans" 00:07:53.000 --> 00:07:55.000 sem gerði það mjög erfitt 00:07:55.000 --> 00:07:57.000 fyrir eitt stakt fyrirtæki, 00:07:57.000 --> 00:08:00.000 eitt útflutningsland, 00:08:00.000 --> 00:08:02.000 að segja, "Við ætlum ekki að 00:08:02.000 --> 00:08:05.000 halda áfram þessum dauðans, hörmungar 00:08:05.000 --> 00:08:09.000 hætti stórra fyrirtækja, að múta." NOTE Paragraph 00:08:09.000 --> 00:08:11.000 Svo þetta er það sem ég á við 00:08:11.000 --> 00:08:14.000 með biluðum stjórnháttum, 00:08:14.000 --> 00:08:16.000 því m.a.s. voldug ríkisstjórn, 00:08:16.000 --> 00:08:19.000 eins og er í Þýskalandi, tiltölulega, 00:08:19.000 --> 00:08:21.000 megnaði ekki að segja, 00:08:21.000 --> 00:08:24.000 "Við munum ekki leyfa fyrirtækjum okkar að múta erlendis." 00:08:24.000 --> 00:08:26.000 Þær þurftu hjálp 00:08:26.000 --> 00:08:28.000 og stórfyrirtækin sjálf 00:08:28.000 --> 00:08:30.000 stóðu frammi fyrir þessu vandamáli. 00:08:30.000 --> 00:08:32.000 Mörg þeirra vildu ekki múta. 00:08:32.000 --> 00:08:34.000 Mörg þýsk fyrirtæki, til dæmis, 00:08:34.000 --> 00:08:36.000 eru sannfærð um að þau séu virkilega 00:08:36.000 --> 00:08:38.000 að framleiða hágæða vöru 00:08:38.000 --> 00:08:41.000 á góðu verði, svo þau eru mjög samkeppnishæf. 00:08:41.000 --> 00:08:44.000 Þau eru ekki eins góð í að múta 00:08:44.000 --> 00:08:46.000 og margir erlendir samkeppnisaðilar þeirra 00:08:46.000 --> 00:08:48.000 en þau máttu ekki 00:08:48.000 --> 00:08:50.000 sýna styrk sinn 00:08:50.000 --> 00:08:53.000 því heimurinn var gegnsýrður 00:08:53.000 --> 00:08:55.000 af stórfelldri spillingu. NOTE Paragraph 00:08:55.000 --> 00:08:59.000 Og þess vegna er ég að segja ykkur þetta: 00:08:59.000 --> 00:09:03.000 Það voru almennir borgarar sem tóku af skarið. 00:09:03.000 --> 00:09:05.000 Við höfðum þessi litlu félagasamtök, 00:09:05.000 --> 00:09:07.000 Transparency International. 00:09:07.000 --> 00:09:09.000 Þau byrjuðu að hugsa upp 00:09:09.000 --> 00:09:12.000 undankomuleið úr þessum ógöngum fangans, 00:09:12.000 --> 00:09:16.000 og við þróuðum hugtök 00:09:16.000 --> 00:09:18.000 samstilltra aðgerða, 00:09:18.000 --> 00:09:20.000 í grunninn, að reyna að fá ýmsa samkeppnisaðila 00:09:20.000 --> 00:09:22.000 saman við eitt borð, 00:09:22.000 --> 00:09:24.000 og útskýra fyrir þeim öllum 00:09:24.000 --> 00:09:26.000 hvernig það myndi vera þeim öllum í hag 00:09:26.000 --> 00:09:28.000 að hætta samtímis að múta. 00:09:28.000 --> 00:09:31.000 Og til að gera langa sögu stutta, 00:09:31.000 --> 00:09:33.000 tókst okkur á endanum 00:09:33.000 --> 00:09:35.000 að fá Þýskaland til að undirrita 00:09:35.000 --> 00:09:37.000 með hinum OECD löndunum 00:09:37.000 --> 00:09:39.000 og nokkrum öðrum útflutningsaðilum, NOTE Paragraph 00:09:39.000 --> 00:09:42.000 samning, árið 1997, 00:09:42.000 --> 00:09:44.000 a vegum OECD, 00:09:44.000 --> 00:09:46.000 sem skyldaði alla 00:09:46.000 --> 00:09:48.000 til að breyta lögum sínum 00:09:48.000 --> 00:09:50.000 og gera erlendar mútur sakhæfar. 00:09:50.000 --> 00:09:54.000 (Lófatak) 00:09:54.000 --> 00:09:56.000 Takk fyrir. Ég á við, það er athyglisvert 00:09:56.000 --> 00:09:58.000 að til þess að gera þetta 00:09:58.000 --> 00:10:01.000 urðum við að setjast niður með fyrirtækjunum. 00:10:01.000 --> 00:10:04.000 Við höfðum hér í Berlín, hjá Aspen stofnuninni við Wannsee 00:10:04.000 --> 00:10:06.000 höfðum við fundi með u.þ.b. 00:10:06.000 --> 00:10:08.000 20 athafnamönnum, 00:10:08.000 --> 00:10:10.000 og við ræddum við þá 00:10:10.000 --> 00:10:12.000 hvað mætti gera við alþjóðlegum mútum. 00:10:12.000 --> 00:10:14.000 Á fyrsta fundinum - það voru þrír fundir 00:10:14.000 --> 00:10:16.000 á tveggja ára tímabili. 00:10:16.000 --> 00:10:19.000 Og von Weizsäcker forseti, vel á minnst, 00:10:19.000 --> 00:10:21.000 stýrði fyrsta fundinum, 00:10:21.000 --> 00:10:23.000 til að kveða niður óttann 00:10:23.000 --> 00:10:26.000 á meðal frumkvöðla, 00:10:26.000 --> 00:10:28.000 sem voru ekki vanir því að eiga við 00:10:28.000 --> 00:10:30.000 borgaraleg félagasamtök. 00:10:30.000 --> 00:10:33.000 Og á fyrsta fundinum sögðu þeir allir, 00:10:33.000 --> 00:10:36.000 "Það sem við erum að gera eru ekki mútur." Þetta tíðkast þarna. 00:10:36.000 --> 00:10:39.000 Það er lenska í þessum löndum að heimta þetta. 00:10:39.000 --> 00:10:40.333 Þau fagna því meira að segja. 00:10:41.666 --> 00:10:43.000 Raunar segir Martin Walser 00:10:43.000 --> 00:10:45.000 þetta enn þann dag í dag. 00:10:45.000 --> 00:10:47.000 Þannig að það er enn fullt af fólki 00:10:47.000 --> 00:10:50.000 sem er ekki sannfært um að það þurfi að hætta að múta. 00:10:50.000 --> 00:10:52.000 En strax á öðrum fundinum, 00:10:52.000 --> 00:10:54.000 viðurkenndu þeir að þeir myndu aldrei gera þetta 00:10:54.000 --> 00:10:57.000 sem þeir eru að gera erlendis 00:10:57.000 --> 00:10:59.000 hér í Þýskalandi eða í Bretlandi og víðar. 00:10:59.000 --> 00:11:02.000 Ráðherrar viðurkenndu þetta. 00:11:02.000 --> 00:11:05.000 Og á lokafundinum, hjá Aspen stofnuninni, 00:11:05.000 --> 00:11:08.000 létum við þá alla undirrita opið bréf 00:11:08.000 --> 00:11:10.000 til ríkisstjórnar Kohls, sem þá var, 00:11:10.000 --> 00:11:12.000 og biðja um að hún 00:11:12.000 --> 00:11:14.000 tæki þátt í OECD samningnum. NOTE Paragraph 00:11:14.000 --> 00:11:17.000 Og þetta er, að mínu mati, 00:11:17.000 --> 00:11:19.000 dæmi um mjúkt vald, 00:11:19.000 --> 00:11:21.000 því okkur tókst að sannfæra þá 00:11:21.000 --> 00:11:23.000 um að fara þessa leið með okkur. 00:11:23.000 --> 00:11:26.000 Við höfðum lang-tíma sjónarmið. 00:11:26.000 --> 00:11:28.000 Það var breiðari hópur, 00:11:28.000 --> 00:11:30.000 landfræðilega miklu víðfeðmari, 00:11:30.000 --> 00:11:32.000 sem við vorum að reyna að verja. 00:11:32.000 --> 00:11:34.000 Og þess vegna hafa lögin breyst. 00:11:34.000 --> 00:11:37.000 Þess vegna er Siemens nú í þeim vanda sem þeir eru í 00:11:37.000 --> 00:11:40.000 og þess vegja er MIN í sínum vanda. 00:11:40.000 --> 00:11:43.000 Í sumum hinna landanna er OECD samningnum 00:11:43.000 --> 00:11:45.000 ekki ennþá almennilega framfylgt. 00:11:45.000 --> 00:11:47.000 Og, enn á ný, eru almennir borgarar 00:11:47.000 --> 00:11:50.000 að þrýsta á valdastéttina. NOTE Paragraph 00:11:50.000 --> 00:11:52.000 Í London, til dæmis, 00:11:52.000 --> 00:11:54.000 þegar BAE komst upp með 00:11:54.000 --> 00:11:56.000 stórt spillingar mál, 00:11:56.000 --> 00:12:00.000 þar sem Serious Fraud Office reyndi að lögsækja, 00:12:00.000 --> 00:12:02.000 þar sem 100 milljón pund, 00:12:02.000 --> 00:12:04.000 á hverju ári í áratug, 00:12:04.000 --> 00:12:07.000 til eins ráðamanns í einu sérlega vinveittu landi, 00:12:07.000 --> 00:12:09.000 sem síðan keypti hernaðarútbúnað 00:12:09.000 --> 00:12:13.000 fyrir 44 milljarða punda. 00:12:13.000 --> 00:12:15.000 Mál þetta er ekki lögsótt í Bretlandi. 00:12:15.000 --> 00:12:17.000 Hví ekki? Því þeir telja það 00:12:17.000 --> 00:12:20.000 stríða gegn öryggishagsmunum 00:12:20.000 --> 00:12:22.000 bresku þjóðarinnar. 00:12:22.000 --> 00:12:24.000 Almennir borgarar eru að knýja á 00:12:24.000 --> 00:12:27.000 um að fá lausn á þessum vanda, 00:12:27.000 --> 00:12:29.000 einnig í Bretlandi, 00:12:29.000 --> 00:12:31.000 og í Japan er heldur ekki nægilegt eftirlit 00:12:31.000 --> 00:12:33.000 og þar fram eftir götunum. NOTE Paragraph 00:12:33.000 --> 00:12:35.000 Í Þýskalandi erum við að knýja á um 00:12:35.000 --> 00:12:37.000 fullgildingu samnings Sameinuðu Þjóðanna, 00:12:37.000 --> 00:12:39.000 sem er seinna til kominn. 00:12:39.000 --> 00:12:41.000 Þýskaland er ekki að fullgilda hann. 00:12:41.000 --> 00:12:44.000 Hvers vegna? Því það myndi krefjast þess 00:12:44.000 --> 00:12:47.000 að spilling aðstoðarmanna 00:12:47.000 --> 00:12:49.000 yrði gerð saknæm. 00:12:49.000 --> 00:12:51.000 Við höfum kerfi í Þýskalandi þar sem 00:12:51.000 --> 00:12:54.000 ekki er leyfilegt að múta opinberum starfsmanni, 00:12:54.000 --> 00:12:57.000 en það er í lagi að múta aðstoðarmanni. 00:12:57.000 --> 00:13:00.000 Þetta er leyfilegt undir þýskum lögum 00:13:00.000 --> 00:13:02.000 og þingmenn vilja ekki breyta þessu 00:13:02.000 --> 00:13:04.000 og þess vegna geta þeir ekki undirritað 00:13:04.000 --> 00:13:07.000 samning S.Þ. gegn erlendum mútum - 00:13:07.000 --> 00:13:09.000 eitt sárafárra landa, sem eru að 00:13:09.000 --> 00:13:12.000 prédika heiðarleika og góða stjórnhætti alls staðar í heiminum, 00:13:12.000 --> 00:13:14.000 en geta ekki fullgilt samninginn, 00:13:14.000 --> 00:13:17.000 sem okkur tókst að koma á blað 00:13:17.000 --> 00:13:20.000 í um 160 löndum um allan heim. NOTE Paragraph 00:13:20.000 --> 00:13:22.000 Ég sé að tími minn er á þrotum. 00:13:22.000 --> 00:13:24.000 Ég ætla að reyna að nefna nokkrar 00:13:24.000 --> 00:13:27.000 niðurstöður af því sem hefur gerst. 00:13:27.000 --> 00:13:31.000 Ég trúi að það sem við höfum áorkað 00:13:31.000 --> 00:13:34.000 í baráttunni gegn spillingu 00:13:34.000 --> 00:13:36.000 sé einnig hægt að koma til leiðar 00:13:36.000 --> 00:13:38.000 á öðrum sviðum bilaðra stjórnhátta. 00:13:38.000 --> 00:13:40.000 Sameinuðu Þjóðirnar hafa nú 00:13:40.000 --> 00:13:42.000 alfarið snúist á sveif með okkur. 00:13:42.000 --> 00:13:46.000 Alþjóðabankinn hefur breyst úr Sál í Pál; undir stjórn Wolfensohn 00:13:46.000 --> 00:13:49.000 urðu þeir, myndi ég segja, sterkasta 00:13:49.000 --> 00:13:51.000 stofnun gegn spillingu í heiminum. 00:13:51.000 --> 00:13:53.000 Flest stórfyrirtæki 00:13:53.000 --> 00:13:55.000 eru nú alveg sannfærð um 00:13:55.000 --> 00:13:57.000 að þau þurfi að setja sér 00:13:57.000 --> 00:13:59.000 sterka stefnu 00:13:59.000 --> 00:14:01.000 gegn mútum og slíku. 00:14:01.000 --> 00:14:04.000 Og þetta er mögulegt vegna þess að borgarasamfélagið 00:14:04.000 --> 00:14:06.000 gekk til liðs við fyrirtækin 00:14:06.000 --> 00:14:08.000 og ríkisstjórnirnar 00:14:08.000 --> 00:14:10.000 í því að greina vandann, 00:14:10.000 --> 00:14:12.000 í að þróa úrræði, 00:14:12.000 --> 00:14:15.000 framkvæma umbætur 00:14:15.000 --> 00:14:18.000 og síðan hafa eftirlit með umbótunum. NOTE Paragraph 00:14:18.000 --> 00:14:21.000 Auðvitað, ef almenn félög borgara 00:14:21.000 --> 00:14:23.000 vilja gegna þessu hlutverki 00:14:23.000 --> 00:14:27.000 verða þau að vaxa upp í þessa ábyrgð. 00:14:27.000 --> 00:14:30.000 Ekki eru öll almenn félög góð. 00:14:30.000 --> 00:14:33.000 Ku Klux Klan eru almenn samtök. 00:14:33.000 --> 00:14:35.000 Svo við verðum að vera meðvituð 00:14:35.000 --> 00:14:37.000 um að borgarasamfélagið 00:14:37.000 --> 00:14:39.000 verður að taka sig á sjálft. 00:14:39.000 --> 00:14:41.000 Almenn félög verða að hafa miklu meira 00:14:41.000 --> 00:14:43.000 gagsæi í fjármálum sínum. 00:14:43.000 --> 00:14:46.000 Það verður að vera breiðari þátttaka í stjórnun 00:14:46.000 --> 00:14:49.000 margra almennra félagasamtaka. 00:14:49.000 --> 00:14:52.000 Við þurfum líka meiri fagmennsku meðal stjórnenda félagasamtaka. 00:14:52.000 --> 00:14:55.000 Þess vegna höfum við sett á stofn stjórnskipulags skóla 00:14:55.000 --> 00:14:57.000 og miðstöð fyrir borgaraleg félög hér í Berlín, 00:14:57.000 --> 00:15:00.000 því við erum sannfærð um að flestar menntastofnanir 00:15:00.000 --> 00:15:02.000 og rannsóknarsetur í Þýskalandi 00:15:02.000 --> 00:15:04.000 og á meginlandi Evrópu yfirleitt, 00:15:04.000 --> 00:15:06.000 leggi ekki enn nægilega áherslu á 00:15:06.000 --> 00:15:08.000 að virkja almenning 00:15:08.000 --> 00:15:11.000 og þjálfa leiðtoga borgarasamfélagsins. NOTE Paragraph 00:15:11.000 --> 00:15:14.000 En það sem ég segi af eigin reynslu: 00:15:14.000 --> 00:15:17.000 ef borgarasamfélagið stendur sig vel 00:15:17.000 --> 00:15:20.000 og vinnur með öðrum aðilum - 00:15:20.000 --> 00:15:22.000 sér í lagi ríkisstjórnum, 00:15:22.000 --> 00:15:25.000 og alþjóðlegum stofnunum þeirra, 00:15:25.000 --> 00:15:28.000 og einnig stórum alþjóðlegum aðilum, 00:15:28.000 --> 00:15:30.000 sérstaklega þeim sem hafa sett sér reglur 00:15:30.000 --> 00:15:32.000 um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja - 00:15:32.000 --> 00:15:35.000 þá er í þessum töfraþríhyrningi 00:15:35.000 --> 00:15:37.000 milli borgarasamfélagsins, 00:15:37.000 --> 00:15:39.000 ríkisstjórnar og einkageirans, 00:15:39.000 --> 00:15:41.000 gífurlegt tækifæri 00:15:41.000 --> 00:15:45.000 fyrir okkur öll til að skapa betri heim. NOTE Paragraph 00:15:45.000 --> 00:15:47.000 Þakka ykkur fyrir. NOTE Paragraph 00:15:47.000 --> 00:15:49.000 (Lófatak)