#Netfrelsisdagurinn
#MLKdagur
Berjumst fyrir framtíðina
Þann 18. janúar er ár frá því að lögum um ritskoðun Netsins (SOPA) var hnekkt í BNA.
Þessa helgi er haldið upp á arfleifð Dr. Martin Luthers King yngri.
Ræða hans „Ég á mér draum“ á jafn vel við nú og 1963.
Til að heiðra minningu hans sem boðbera frelsis, biðjum við alla um að deila þesari upptöku af ræðunni.
EN „Ég á mér draum“ er höfundarréttarvarin svo að deiling er lögbrot.
Ef SOPA lögin hefðu tekið gildi væri hægt að fangelsa fólk fyrir það.
Hægt hefði verið að loka vefsíðum fyrir að vera með tengil á það.
Ákall Martin Luter Kings um jafnrétti kynþáttanna er of mikilvægt til að slæm höfundarréttarlög geti ritskoða hana.
Fagnaðu frelsinu og deildu myndbandinu núna.
[„Okkur ber siðferðileg skilda til að brjóta óréttmæt lög“ - Dr. Martin Luther King yngri]
A. PHILLIP RANDOLPH: Mér hlotnast nú sá heiður að kynna fyrir ykkur
siðferðilegan leiðtoga þjóðar vorrar,
Mér hlotnast sú ánægja að kynna fyrir ykkur:
Doktor Martin Luther King yngri
[fagnaðarlæti]
DR. MARTIN LUTHER KING, YNGRI: Með gleði í hjarta hitti ég ykkur í dag
til að skapa sögulega stund
með glæstastustu baráttusamkomu fyrir frelsi í sögu þjóðar vorrar.
[mannfjöldinn klappar]
Fyrir hundrað árum,
skrifaði mikilmenni í sögu Bandaríkjanna, sem við stöndum nú í skugganum af,
undir lög um afnám þrælahalds.
Þessi tímamóta ákvörðun kom
sem ljósgeisli vonar til milljóna negra þræla
sem höfðu hlotið sár af hinu brennandi óréttlæti.
Hún kom sem fagnandi dögun
til að binda enda á nótt fangavistarinnar.
En hundrað árum síðar,
er Negrinn enn ekki frjáls
Hundrað árum síðar,
er l- er líf Negrans enn kreppt í heljargreipum aðskilnaðar
og hlekkjum mismunar.
Hundrað árum síðar
býr Negrinn á eyju fátæktarinnar
í hafsjó efnislegra framfara.
Hundrað árum síðar,
[mannfjöldinn klappar]
er N- er Negrinn enn að horast upp, hornreka í Bandarísku samfélagi
og upplifir sig í útlegð í eigin landi.