0:00:01.033,0:00:03.301 Í rétt rúmlega ár höfum við verið að byggja 0:00:03.301,0:00:06.333 virkilega spennandi verkefni fyrir vefinn sem kallast GNU MediaGoblin 0:00:06.333,0:00:09.104 MediaGoblin er útgáfukerfi fyrir margmiðlunarefni 0:00:09.104,0:00:13.698 sem getur hýst hljóð, myndbönd, myndir og fleira. 0:00:13.698,0:00:15.533 Þetta er frjáls hugbúnaður sem hver sem er getur keyrt. 0:00:15.533,0:00:17.168 ... og aðlagað að sínum þörfum. 0:00:17.168,0:00:20.573 Það getur gert fullt af svölum hlutum, eins og að styðja við margar tegundir af margmiðlunarefni, 0:00:20.573,0:00:24.498 frá myndum, til myndbanda, til hljóðskráa. 0:00:24.498,0:00:27.312 Þetta þýðir að þú getur haft allt margmiðlunarefnið þitt á einum stað. 0:00:27.312,0:00:29.441 Kerfið er hannað með viðbætur í huga. 0:00:29.441,0:00:31.674 Þú getur bætt við nýjum margmiðlunartegundum, 0:00:31.674,0:00:34.967 jafnvel einhverju rosalegu eins og textamyndefni.[br]Af hverju ekki? 0:00:34.967,0:00:38.240 MediaGoblin er að þróast í virkilega töff hugbúnað 0:00:38.240,0:00:40.237 sem hjálpar vefnum að verða að fallegri stað. 0:00:40.237,0:00:42.501 Við þurfum samt ÞÍNA hjálp til að ná því markmiði! 0:00:42.501,0:00:45.969 Netið og veraldarvefurinn voru hönnuð til að vera dreifð kerfi. 0:00:45.969,0:00:51.367 Það er frábært því það gerir alþjóðlegt og fjölbreytt samtal mögulegt. 0:00:51.367,0:00:56.967 Það er líka mjög áreiðanlegt kerfi. Ef einn vefþjónn hverfur af einhverri ástæðu, 0:00:56.967,0:00:59.170 verður Netið samt ennþá til staðar. 0:00:59.170,0:01:03.705 John Gilmore sagði: „Netið sér ritstýringu sem kerfisgalla... 0:01:03.705,0:01:05.776 ... og beinir notendum framhjá honum.“ 0:01:05.776,0:01:07.875 Nýlega hefur Netið samt verið að færa sig í aðra átt... 0:01:07.875,0:01:11.938 Í auknum mæli hefur áreiðanlegi vefurinn sem samanstendur af minni vefsíðum 0:01:11.938,0:01:15.467 breyst í stórar, mjög miðlægar vefsíður 0:01:15.467,0:01:18.935 Þessu fylgja nokkur vandamál. 0:01:18.935,0:01:21.938 Eitt af þeim er að því miðlægari sem vefurinn verður, 0:01:21.938,0:01:25.234 því auðveldara er það fyrir samtök að gera ritstjórn sjálfvirka, 0:01:25.234,0:01:27.736 annaðhvort í gegnum miðlæga rekstraraðilann sjálfan 0:01:27.736,0:01:31.341 eða í gegnum þrýsting af hálfu annarra aðila. 0:01:31.341,0:01:36.639 Í svona miðlægu kerfi getur Netið ekki beint notendum framhjá kerfisgöllum lengur. 0:01:36.639,0:01:40.433 Kerfið er mun viðkvæmara en áður. 0:01:40.433,0:01:42.734 Á dreifðum vef 0:01:42.734,0:01:45.036 lifir kerfið áfram jafnvel þótt lítill hluti þess detti út. 0:01:45.036,0:01:47.903 Hvað ef ljómsyndir allra væru á Flickr 0:01:47.903,0:01:52.141 og Flickr myndi hverfa? Hvað myndi gerast ef YouTube myndi hverfa? 0:01:52.141,0:01:55.170 Hvað myndi gerast við öll kattamyndböndin á Netinu? 0:01:55.170,0:01:59.264 Þetta yrði fjölda-kattar-morð! 0:01:59.264,0:02:03.806 ...og það leiðir til daprari veraldarvefs. 0:02:03.806,0:02:04.588 Þess vegna erum við að búa til MediaGoblin. 0:02:04.588,0:02:07.732 MediaGoblin er umhugað um frelsi og að setja valdið aftur í hendurnar á notendum. 0:02:07.732,0:02:11.821 Þetta er GNU verkefni, einmitt af því að okkur er annt um frelsi. 0:02:11.821,0:02:17.234 ...og við höfum gert fullt af ótrúlega svölum hlutum. 0:02:17.234,0:02:20.803 Við höfum stuðning við flestar tegundir af efni... 0:02:20.803,0:02:22.435 ...og meiri stuðningur er á leiðinni bráðum! 0:02:22.435,0:02:25.140 Við höfum stuðning við mismunandi þemu þannig að kerfið getur litið út eins og þú vilt. 0:02:25.140,0:02:29.257 Við höfum stuðning við OpenStreetMap þannig að þú getur séð hvar myndirnar þínar voru teknar! 0:02:29.257,0:02:32.600 Við höfum athugasemdakerfi og fleira sem vefnotendur eru vanir. 0:02:32.600,0:02:34.986 Þetta er alvöruhugbúnaður og þú getur keyrt hann eins og þú vilt! 0:02:34.986,0:02:37.373 Síðasta eitt og hálfa árið höfum við notið aðstoða meira en 50 forritara 0:02:37.373,0:02:41.367 og gefið út nokkrar stærri útgáfur. 0:02:41.367,0:02:45.042 Þetta eru virkilega spennandi tímar! 0:02:45.042,0:02:45.542 Við þurfum samt þína hjálp! 0:02:45.542,0:02:48.300 MediaGoblin er kominn mjög langt á veg 0:02:48.300,0:02:48.800 en það er fullt af öðru dóti[br]sem hugbúnaðurinn þarf á að halda 0:02:48.800,0:02:52.404 til þess að geta orðið[br]besti margmiðlunar-hýsingar-hugbúnaðurinn í heimi. 0:02:52.404,0:02:55.777 Augljósasta þörfin er kerfissamhæfing. 0:02:55.777,0:02:57.934 Kerfissamhæfing er það sem gerir tölvupóst mögulegan: 0:02:57.934,0:03:00.245 Þú og vinir þínir geta verið á mismunandi netþjónum 0:03:00.245,0:03:03.433 en að senda tölvupóst á milli virkar eins og þið séuð á sama netþjóninum. 0:03:03.433,0:03:06.133 Við viljum að margmiðlunarhýsing virki á sama hátt. 0:03:06.133,0:03:09.735 StatusNet, samhæfða örbloggsþjónustan 0:03:09.735,0:03:12.470 hefur rutt veginn fyrir fullt af virkni sem við þurfum... 0:03:12.470,0:03:15.302 en að matreiða myndbönd, hljóð og myndir 0:03:15.302,0:03:19.033 hefur sín eigin vandamál og það er þess vegna sem við þurfum þína hjálp. 0:03:19.033,0:03:22.403 Við höfum fullt af góðum forriturum og við vitum hvernig á að búa þetta allt saman til! 0:03:22.403,0:03:24.637 MediaGoblin þarf samt einbeitta forritara 0:03:24.637,0:03:27.534 svo verkefnið geti fengið þá athygli sem það þarf. 0:03:27.534,0:03:30.981 Þetta er líka þekkt sem[br]„forritarar-þurfa-að-borða-vandamálið“ 0:03:30.981,0:03:33.970 Við höfum góða verkáætlun og við þurfum þig til að hjálpa til með fjárframlagi 0:03:33.970,0:03:37.580 svo við getum ráðið forritarana og hönnuðina okkar 0:03:37.580,0:03:40.201 til þess að byggja einingarnar sem MediaGoblin[br]þarf á að halda 0:03:40.201,0:03:42.242 til að verða það sem MediaGoblin getur orðið. 0:03:42.242,0:03:44.569 Forritararnir eru tilbúnir, 0:03:44.569,0:03:47.572 tilbúnir til að eyða klukkutímum í forritun en við þurfum þinn stuðning. 0:03:47.572,0:03:49.000 Takk fyrir að hlusta. 0:03:49.000,0:03:50.467 Endilega sýndu MediaGoblin stuðning 0:03:50.467,0:03:55.037 og hjálpaðu okkur að gera heimsins fallegustu margmiðlunarframtíð að veruleika!