1 00:00:00,000 --> 00:00:02,840 Eitt mikilvægasta hugtak í tölvunarfræði 2 00:00:02,840 --> 00:00:08,110 er hvernig á að búa til nýjar skipanir; hvernig á að bæta eigin orðum í tölvutungumál. 3 00:00:08,571 --> 00:00:13,072 Flest tölvutungumál hafa aðeins um hundrað orð eða skipanir 4 00:00:13,072 --> 00:00:18,252 og listin felst í að skilgreina þín eigin orð úr þessum kóðaeiningum. 5 00:00:18,252 --> 00:00:20,200 Við erum alltaf að gera þetta í íþróttum. 6 00:00:20,952 --> 00:00:26,930 Til dæmis í körfubolta lærir maður að rekja boltann, hvernig á að gefa fyrir, hvernig á að taka frákast. 7 00:00:26,930 --> 00:00:30,911 Þegar maður hefur lært þessar undirstöðuhreyfingar, lærir maður nýjar hreyfingar 8 00:00:30,911 --> 00:00:34,714 og setur saman þessar hreyfingar i fléttur eins og "verja og velta" eða "gefa og fara" 9 00:00:34,714 --> 00:00:37,503 og þaðan í enn flóknari leikfléttur. 10 00:00:37,503 --> 00:00:43,201 Þegar maður hefur lært fléttu og gefið henni nafn, kunna allir í liðinu að gera hana. 11 00:00:43,201 --> 00:00:47,344 Á sama hátt þegar maður hefur kennt tölvu hvernig á að gera aðgerð einu sinnu, 12 00:00:47,344 --> 00:00:49,086 getur maður notað sömu röð af skipunum, 13 00:00:49,086 --> 00:00:53,721 og búið til eigið nafn á þessa aðgerð, svo að auðveldara sé að endurtaka hana seinna. 14 00:00:53,721 --> 00:00:58,973 Þegar þú skilgreinir þína eigin skipun og gefur henni nafn, er hún kölluð FALL. 15 00:00:59,613 --> 00:01:00,868 Þegar þú ert að forrita með kubbum, 16 00:01:00,868 --> 00:01:05,355 getur þú notað föll ef það er röð aðgerða sem þú vilt nota mörgum sinnum. 17 00:01:05,355 --> 00:01:09,177 Til dæmis hefur þú skrifað kóða til að búa til ferning. 18 00:01:09,177 --> 00:01:13,344 Þú gætir skilgreint hann sem fall og látið það heita "teikna ferning". 19 00:01:13,344 --> 00:01:18,926 Nú hefurðu nýjan kubb sem þú getur notað oft til að búa til marga ferninga. 20 00:01:19,816 --> 00:01:23,353 Mörg einföld föll geta verið notuð til að búa til flóknari mynstur. 21 00:01:24,073 --> 00:01:25,519 Í næstu þraut 22 00:01:25,519 --> 00:01:28,112 hefurðu kóðann sem þú skrifaðir nýlega til að búa til hring 23 00:01:28,112 --> 00:01:31,842 tiltækan í sem nýtt fall sem getur teiknað hringi í mismunandi stærð. 24 00:01:31,842 --> 00:01:37,329 Getur þú notað það til að hjálpa Elsu að búa til nýtt fallegt mynstur í snjónum?