0:00:00.000,0:00:03.320 Tölvur eru virkilega góðar í að endurtaka aðgerðir. 0:00:03.320,0:00:07.106 Þú getur talið upp í tíu, tuttugu eða hundrað... 0:00:07.106,0:00:11.956 en tölva getur talið upp í miljarð eða jafnvel biljón. 0:00:11.956,0:00:14.586 Hún verður ekki leið og það tekur aðeins örfáar sekúndur. 0:00:14.586,0:00:23.296 Hvort sem það er að telja eða teikna eða eitthvað annað, geta tölvur endurtekið hluti hundrað eða jafnvel biljón sinnum. 0:00:23.296,0:00:26.821 Í forritun nefnist þetta LYKKJA. 0:00:26.821,0:00:30.586 LYKKJA er aðferð til að endurtaka kóða aftur og aftur. 0:00:30.586,0:00:36.403 Í næstu þraut er markmiðið að hjálpa Önnu að búa til ferning með "endurtaka" kubbnum. 0:00:36.403,0:00:43.713 Kubbar sem þú setur inn í "endurtaka" kubb verða endurteknir í röð, eins oft og þú vilt. 0:00:43.713,0:00:48.840 Til að teikna ferning getur þú sett inn "færa áfram" og "snúa" kubbana 4 sinnum. 0:00:48.900,0:00:58.950 Auðveldari leið er að segja tölvunni að fara áfram og snúa um 90 gráður einu sinni og segja henni svo að endurtaka þessar aðgerðir 4 sinnum. 0:00:59.030,0:01:04.594 Til að gera þetta þarft þú að setja "færa áfram" og "snúa" kubbana inn í "endurtaka" kubb. 0:01:04.754,0:01:11.908 Mundu að þú getur breytt tölunni í "endurtaka" kubbnum í hvað sem þú vilt, og hann mun endurtaka aðgerðirnar í kubbnum það oft.