Tölvur eru virkilega góðar í að endurtaka aðgerðir. Þú getur talið upp í tíu, tuttugu eða hundrað... en tölva getur talið upp í miljarð eða jafnvel biljón. Hún verður ekki leið og það tekur aðeins örfáar sekúndur. Hvort sem það er að telja eða teikna eða eitthvað annað, geta tölvur endurtekið hluti hundrað eða jafnvel biljón sinnum. Í forritun nefnist þetta LYKKJA. LYKKJA er aðferð til að endurtaka kóða aftur og aftur. Í næstu þraut er markmiðið að hjálpa Önnu að búa til ferning með "endurtaka" kubbnum. Kubbar sem þú setur inn í "endurtaka" kubb verða endurteknir í röð, eins oft og þú vilt. Til að teikna ferning getur þú sett inn "færa áfram" og "snúa" kubbana 4 sinnum. Auðveldari leið er að segja tölvunni að fara áfram og snúa um 90 gráður einu sinni og segja henni svo að endurtaka þessar aðgerðir 4 sinnum. Til að gera þetta þarft þú að setja "færa áfram" og "snúa" kubbana inn í "endurtaka" kubb. Mundu að þú getur breytt tölunni í "endurtaka" kubbnum í hvað sem þú vilt, og hann mun endurtaka aðgerðirnar í kubbnum það oft.