1 00:00:01,520 --> 00:00:07,300 Klukkustund kóðunar Danspartý: Eiginleikar 2 00:00:08,700 --> 00:00:10,300 Ég heiti María. 3 00:00:10,300 --> 00:00:12,760 Ég er stúdent við Washington háskóla 4 00:00:12,760 --> 00:00:15,020 og ég tek þátt í Amazon Future Engineer verkefninu. 5 00:00:16,760 --> 00:00:18,580 Ég elska tölvunarfræði vegna þess 6 00:00:18,580 --> 00:00:21,820 að hún felur í sér að leysa vandamál og að hugsa á gagnrýnan hátt. 7 00:00:21,920 --> 00:00:24,580 Og eftir að hafa eytt mörgum klukkustundum í eitthvað 8 00:00:24,580 --> 00:00:28,540 getur maður fengið út úr því eitthvað virkilega flott og gefandi. 9 00:00:32,800 --> 00:00:37,220 Hingað til hefur þú haft tækifæri til að nota nokkra mismunandi dansara 10 00:00:37,220 --> 00:00:41,440 og þú hefur forritað þá til að gera mismunandi danshreyfingar. 11 00:00:41,440 --> 00:00:44,620 En hvernig virka þessar hreyfingar í raun? 12 00:00:44,620 --> 00:00:49,010 Hver danshreyfing er sett saman úr röð mynda sem við köllum ramma. 13 00:00:49,010 --> 00:00:52,660 Hver rammi er örlítið öðruvísi en næsti rammi á undan honum. 14 00:00:52,660 --> 00:00:56,530 Þegar forritið keyrir sýnir tölvan rammana hvern á eftir öðrum. 15 00:00:56,530 --> 00:01:00,270 Þeir eru sýndir svo hratt að það er eins og dansarinn sé að hreyfast. 16 00:01:00,270 --> 00:01:03,870 Þetta er leyndarmálið bak við allar hreyfimyndir. 17 00:01:03,870 --> 00:01:06,280 Þú getur ekki bara breytt hreyfingum dansara 18 00:01:06,280 --> 00:01:09,340 heldur líka eiginleikum dansarans. 19 00:01:09,340 --> 00:01:13,780 Eiginleikar lýsa hlutum eins og stað dansarans á skjánum, 20 00:01:13,780 --> 00:01:15,960 stærð dansarans, 21 00:01:15,960 --> 00:01:18,300 og lit dansarans. 22 00:01:20,420 --> 00:01:24,700 Til að breyta eiginleikum dansara notar þú "stilla" kubb. 23 00:01:24,700 --> 00:01:29,040 Við skulum nota "stilla" kubb til að gera dansarana minni. 24 00:01:29,040 --> 00:01:32,220 Byrjaðu á að draga kubbinn inn í forritið. 25 00:01:32,220 --> 00:01:35,860 Veldu svo dansarann sem þú vilt breyta 26 00:01:35,860 --> 00:01:39,300 og skrifaðu stærðina fyrir hann á skjánum. 27 00:01:50,640 --> 00:01:52,640 Full stærð er 100. 28 00:01:52,649 --> 00:01:57,539 Ef þú velur lægri tölu gerir það dansarann minni. 29 00:01:57,540 --> 00:02:00,760 Því minni sem dansarinn, því lengra í burtu virðist hann vera. 30 00:02:00,760 --> 00:02:03,720 Þetta er góð leið til að hafa baksviðsdansara. 31 00:02:10,360 --> 00:02:15,680 Með "stilla" kubbnum getur þú líka breytt hæð og breidd, 32 00:02:15,680 --> 00:02:17,080 snúningi, 33 00:02:17,820 --> 00:02:18,980 stað 34 00:02:20,240 --> 00:02:21,840 og lit dansarans. 35 00:02:22,000 --> 00:02:23,960 Með því að nota þessa eiginleika 36 00:02:23,960 --> 00:02:28,140 getur þú gert alls konar breytingar og tengt þær við mismunandi staði í laginu. 37 00:02:28,960 --> 00:02:34,900 Mundu að þú getur bara stillt eiginleika dansara sem þegar er til. 38 00:02:34,900 --> 00:02:39,320 Gættu þess að "stilla" kubburinn komi á eftir "Báu til dansara" kubbnum. 39 00:02:39,330 --> 00:02:41,189 Ekki hika við að gera tilraunir, vera skapandi, 40 00:02:41,189 --> 00:02:42,480 og hafa gaman.