Í hvaða bekk ert þú? Öðrum, tíunda bekk, fyrsta bekk Ég var í áttunda bekk þegar ég lærði að forrita. Ég fékk fyrstu tölvuna þegar ég var í sjötta bekk. Það sem ég er spenntur fyrir er að geta leyst vandamál fólks. Maður getur tjáð sig; byggt hluti út frá hugmynd. Tölvunarfræði er grunnurinn að mörgu af því sem nemendur og starfandi fólk mun gera næstu 20 eða 30 árin. Mér líkar forritun af því að ég hef gaman af að hjálpa fólki. Ég fæ tækifæri til að búa eitthvað til sem mun gera lif fólks auðveldara. Ég held að þetta sé það næsta sem við komumst því að hafa ofurkrafta. Að byrja er mikilvægasti hlutinn. Ég er byrjandi og ég vil að þú lærir með mér. Hæ, ég heiti Lyndsey. Ég var í leikhúsfræðum sem aðalgrein, en ég var líka með tölvunarfræði sem aðalgrein. Og nú er ég fyrirsæta, leikkona og skrifa mín eigin öpp. Við skulum nota kóða til að hjálpa Önnu og Elsu þegar þær kanna töfra og fegurð íss. Þú munt búa til snjókorn og mynstur með því að skauta og búa til vetrartöfraland sem þú getur deilt með vinum þínum. Næst klukkutímann, munt þú læra grunnatriði þess að forrita. Hefðbundin forritun er venjulega skrifuð, en við munum nota Blockly sem notar myndræna kubba sem hægt er að draga saman í forrit. Þannig læra meira að segja háskólanemar grunnatriðin. Bak við tjöldin, ertu enn að skrifa kóða. Hugtökin sem þú munt læra eru hugtök sem tölvuforritarar nota á hverjum degi og sem eru undirstaða tölvunarfræði. FORRIT er safn fyrirmæla sem segja tölvu hvað hún á að gera. Við skulum smíða kóða fyrir forrit sem mun hjálpa Elsu að búa til einfalda línu. Við notum þetta svo seinna til að búa til flóknari mynstur. Skjárinn þinn skiptist í þrjá aðalhluta: Vinstra megin er ísinn þar sem þú munt keyra forritið þitt. Leiðbeiningarnar fyrir hvern áfanga eru skrifaðar beint neðan þetta svæði. Þetta miðjusvæði er verkfærakassinn og hver þessara kubba er aðgerð sem Elsa og Anna geta framkvæmt. Hvíta svæðið hægra megin er kallað vinnusvæðið og það er hér sem við munum smíða forritið. Til að hreyfast um ísinn, munt þú nota "færa áfram" kubbinn. Hér segir "færa áfram" kubburinn: "Færa áfram um 100 díla". Þegar við ýtum á Keyra... Hvað gerist? Elsa færist fram um tiltekna vegalengd á skjánum... reyndar 100 díla. Dílar eru í grunninn örlitlir reitir á tölvuskjánum. Hinn kubburinn í þrautinni segir: "Snúa til hægri um 90 gráður". Þegar við notum "snúa hægri" kubbinn, þá lætur hann Elsu snúa um visst mikið. Þú getur leikið þér með hve mikið þú vilt að Elsa snúist. Hornið er mælt miðað við slóðina fyrir framan Elsu, svo að þetta er 90 gráðu snúningur... og þetta er 120 gráðu snúningur. Og mundu að þú getur breytt fjölda díla eða gráða með því að smella á pílurnar við hlið þeirra