Hæ! Þú kemur tímanlega. Velkomin í Neðansjávarferðina Ég er að fara að leita að fjársjóðum í hafdjúpunum og það gleður mig að fá hjálp þína. Hver veit hvað bíður í dularfullum óravíddum hafdjúpsins? Við munum hitta fyrsta leiðsögumanninn okkar hér. Velkomin í ævintýrið! Til að ljúka ferðinni þarf að leysa röð þrauta með því að nota kóða. Það virkar svona. Skjárinn þinn skiptist aðallega í þrjá hluta. Vinstra megin sérðu Minecraft heiminn. Í miðjunni er verkfærakassinn þar sem þú finnur skipanir til að kóða með. Og stóra svæðið hægra megin er vinnusvæðið. Þar raðar þú saman skipunum til að byggja upp forritið og stjórna hreyfingum þínum. Leiðbeiningar fyrir hvern áfanga eru efst á skjánum. Smelltu á plús-táknið til að skipta á milli stuttra og langra leiðbeininga. Þú dregur kubba úr verkfærakassanum inn á vinnusvæðið, raðar þeim saman, og smellir svo á hnappinn Keyra til að framkvæma skipanirnar. Þú gætir þurft að prófa þig áfram til að finna lausn og sumar þrautir hafa fleiri en eina lausn, svo það er í lagi að gera tilraunir. Ef þú smellir á Endurstilla getur þú keyrt forritið aftur frá byrjun. Ef þú þarft að fjarlægja skipun skaltu bara draga hana aftur í verkfærakassann. Mundu að smella á Keyra til sjá hvernig kóðinn þinn virkar. Jæja hættum þessu slóri, ágæti ferðafélagi. Drífum í að kóða til að finna fjársjóði. Skjátextar gerðir af Amara.org samfélaginu