(Janet - Zynga Engineer) Allir geta orðið forritarar.
Maður þarf bara að vera svolítið ævintýragjarn,
vera tilbúin að læra og hafa góða hugmynd.
Til að útskýra föll og stika,
get ég notað sem dæmi það að panta sér mat í hádeginu.
Segjum að þú sért að panta samloku og drykk.
Jæja, þá væru stikarnir
hvaða tegund af drykk og hvaða stærð af samloku.
Og svo á þennan hátt
hafa föll í tölvum stika svo að
þú getir tekið fram hve stórt form á að vera eða
eða hvaða lit formið á hafa.
Hvað ef við viljum að teikna nokkra þríhyrninga og hafa
hliðar þeirra í mismunandi stærðum?
Nú getur þú notað fall kubbinn okkar og sett inn mismunandi tölur
þannig að við getum teiknað mismunandi stór form.
Ef þú smellir á stjörnuna í fallinu teikna þríhyrning,
getur þú dregið heiti inntaks í inntakskubbinn;
og ef þú skrifar svo
lengd í staðinn þar sem stendur X og ýtir á Enter
þá munt þú búa til lengdarinntak fyrir fallið.
Smelltu svo aftur á stjörnuna til að loka því.
Næst smellir þú á flokkinn föll
og dregur kubbinn lengd inn í færa áfram kubbinn í skilgreiningu þinni á fallinu.
Dragðu burt gamla tölukubbinn og nú hefur þú fallkubb
þar sem þú getur sett lengdina á hliðum þríhyrningsins.
Þetta er kallað fall með stika.
Til að nota það smellir þú á flokkinn föll
og dregur út fallið teikna þríhyrning með lengd.
Nú getur þú notað stærðfræðikubbinn til að setja inn mismunandi tölur
til að teikna þríhyrninga í mismunandi stærðum.
Prófaðu þetta og brátt verður þú forritunarkempa.