WordPress 4.7 "Vaughan",
nefnt eftir jazzgoðsögninni
Söruh "Sassy" Vaughan
gerir það auðveldara en áður að
setja upp vefinn þinn eftir þínum óskum.
Heilsaðu Carly.
Carly rekur gæludýraverslun
og hana vantar vef.
Carly skoðar hvaða valkosti hún hefur...
... og uppgötvar WordPress.
Með WordPress getur Carly valið úr
þúsundum ókeypis þema sem henta henni.
Carly valdi Twenty Seventeen,
glænýja þemu fyrir WordPress,
búið til með þarfir fyrirtækja í huga.
Twenty Seventeen er fallega hannað
með stórum myndum allstaðar -
fullkomið fyrir lítil fyrirtæki líkt og
gæludýraverslun, eða stór fyrirtæki.
Þar sem þetta er glænýr vefur,
býður Twenty Seventeen upp
á sýnishorn af efni
sem aðstoðar Carly að sjá
hvernig það getur nýst
hennar verslun og farið að
aðlaga að hennar þörfum.
Nýjar flýtileiðir fyrir breytingar
sýna hvaða hluta vefsins hennar
er hægt að breyta
beint úr lifandi forskoðun.
Á meðan hún sníðir þemað til,
tekur Carly eftir því að hún getur bætt
við myndbandi í síðuhaus.
Hún velur myndband sem hún tók af
frænku sinni með hvolp
og bætir því við í síðuhausinn á vefnum
beint úr spjaldtölvunni.
Þar sem hægt er að stofna síður á meðan
sýslað er með valmynd
í sérsníðaranum í WordPress 4.7,
getur Carly haldið áfram að leggja
grunn að vefnum
án þess að rjúfa vinnuflæðið sem hún er í.
Carly vill gera eina breytingu enn
áður en hún er tilbúin til
að deila vefnum -
gera nafnið á versluninni
meira áberandi.
Nýja CSS valblaðið gerir það auðvelt
og sýnir breytingarnar á
meðan þú vinnur þær.
Að því loknu opnar hún glænýja vefinn
fyrir gæludýraverslunina sína.
Carly er ánægð.
WordPress 4.7 býður upp á alla þessa möguleika
og marga fleiri, ásamt spennandi
kostum fyrir forritara
líkt og REST API endapunkta.
WordPress 4.7 Vaughan -
hjálpar þér að gera vefinn þinn,
eins og þú vilt hafa hann.