Í þessu myndbandi munum við kynna okkur neikvæðar tölur
og líka læra smávegis um hvernig við leggjum þær saman og drögum frá
Núna, þegar þú mætir þeim í fyrsta skipti líta þær út fyrir að vera mjög skrýtið fyrirbæri
Þegar við teljum hluti, þá erum við að telja jákvæðar tölur
Hvað þýðir þá neikvæð tala eiginlega
En, þegar við hugsum um það, þá hefur þú líklega hitt fyrir neikvæða tölu í daglegu lífi
En áður en að ég gef þér dæmi, þá er almenna hugsunin um neikvæða tölu, tala sem er minni en 0
minni en 0
Og ef það hljómar furðulega og óhlutstætt fyrir þig, hugsum þá aðeins um það í samhengi
Ef við erum að mæla hitastig, gæti verið Celcius eða Farenheit
en látum sem við séum að mæla í celcius
og leyfðu mér að teikna litla talnalínu sem við getum mælt hitastig á.
Svo, segjum að það sé 0 gráður á celcius, 1 gráður á celcius, 2 gráður á celcius, 3 gráður á celcius.
Núna, segjum að það sé nokkuð kaldur dagur og það sé 3 gráður hiti á celcius
Og einhver sem spáir fram í tímann segir þér að það verði 4 gráðum kaldara næsta dag
Svo, hversu kalt verður þá? Hvernig getum við sýnt þann kulda
Ef það myndi aðeins verða 1 gráðu kaldara myndi verða 2 gráður, en við verðum að fara 4 gráðum kaldara
Ef það yrði 2 gráðum kaldara, myndi verða 1 gráðu hiti
Ef það yrði 3 gráðum kaldara, myndi verða 0 gráðu hiti
En 3 gráður er ekki nóg, það þarf að verða 4 gráðum kaldara, svo við þurfum að fara einni gráðu undir 0
Og einn fyrir neðan núll köllum við mínus 1