Hæ, ég heiti Alice og ég stjórna vöru- og tækniteymunum hér hjá Code.org og ég vann við þetta kennsluefni sem þú ert að fara í gegnum núna. Þú hefur náð síðasta áfanganum. Til hamingju! Þú hefur lært allt sem þú þarft að vita til að búa til þinn eigin Star Wars leik. Nú eru ekki fleiri fyrirmæli eða þrautir að leysa. Þú gerir þinn eigin leik og ræður hvernig hann virkar. Eitt í viðbót, þú færð nú ný hljóð og nýjar skipanir til að geta gert enn meira. [nemendur tala] Við gerðum leik þar sem þú færð stig þegar þú nærð blöðrusvínum. En vandinn er að í hvert sinn sem þú nærð svíni þá birtist stormsveitarmaður. Á endanum er skjárinn fullur af svínum og þegar þú snertir 10.000 af þeim, vinnur þú. [nemendur tala] Við gerðum leik þar sem þú getur ekki tapað og allt sem þú drepur gefur þér stig. Í mínu forriti sneri ég lyklunum við svo að þegar þú smellir upp, þá fer persónan niður og þegar þú smellir til hægri þá fer persónan til vinstri. Þetta er mjög erfitt! Stundum fær maður forskot, innbyggt forskot ef maður er höfundur leiksins. Náði ég þessu? Jey! Þegar þú ert búin með leikinn, veldu þá að deila svo þú fáir tengil sem þú getur deilt með vinum eða spilað leikinn í símanum. Góða skemmtun!