Velkomin í Klukkustund kóðunar... Ég er Kathleen Kennedy, framleiðandi Star Wars: The Force Awakens. Í dag munt þú vinna með BB-8. BB-8 er hringlaga vélmenni. Öllum athöfnum og hreyfingum hans er stjórnað af tölvuforriti. Forritun hefur áhrif allar atvinnugreinar, allt frá markaðssetningu til heilsugæslu til kvikmyndagerðar. Hundruðir forritara unnu saman til að gera kvikmynd eins og The Force Awakens. Hæ, ég heitir Rachel Rose. Ég vinn við rannsóknir og þróun hjá ILM og ég stjórna teyminu sem þróar hreyfingu og leikverur. Í The Force Awakens ber ég ábyrgð á að hjálpa listamanninum að þróa grindur, en það eru þeir hlutar leikveru sem hreyfa hana svo hún virðist sannfærandi í óra, órafjarlægu sólkerfi. Næsta klukkutímann ætlum við að smíða okkar eigin Star Wars leik sem mun kenna þér undirstöðuhugtök í forritun. Venjulega eru forrit skrifuð en við ætlum að nota kubba hér sem við getum fært til að skrifa forritin. Fyrst ætlum við að vinna með Rey og forrita BB-8 til að ganga og safna öllum brotamálminum. Skjárinn þinn skiptist í þrjá hluta. Vinstra megin er Star Wars leiksvæðið þar sem kóðinn keyrir. Leiðbeiningar fyrir hvern áfanga eru skrifaðar fyrir neðan leiksvæðið. Þetta svæði í miðjunni er verkfærakassinn og hver þessara kubba er skipun sem BB-8 skilur. Hvíta svæðið til hægri er kallað vinnusvæðið og það er hér sem við munum smíða forritið okkar. Ef ég dreg moveLeft kubbinn inn á vinnusvæðið, hvað gerist? BB-8 færist til vinstri um einn reit. Og hvað ef ég við að BB-8 geri eitthvað á eftir færa-vinstri kubbnum? Þá get ég bætt öðrum kubbi við forritið. Ég ætlað velja moveUp kubbinn og draga hann inn undir moveLeft kubbinn þar til hann lýsist upp. Þá sleppi ég honum og kubbarnir tveir smella saman. Þegar ég smelli aftur á Keyra, mun BB-8 gera skipanirnar sem hefur verið staflað saman á vinnusvæðinu. Ef þú vilt fjarlægja kubb þarftu bara að losa hann úr stæðunni og draga hann aftur í verkfærakassann. Eftir að þú ýtir á Keyra getur þú alltaf ýtt á Endurstilla hnappinn til að færa BB-8 á byrjunarreit.