Það sem að ég tel að sé með mikilvægustu málefnum Þó svo að þau séu mjög mörg Það er að styrkja geðheilbrigðismál á Íslandi og vinna mjög markvisst Að því að koma geðrækt inn í grunnskóla og menntaskóla Niðurgreiða sálfræðiþjónustu tafarlaust Hvernig sé ég framtíðina fyrir mér? Að það væri meiri jöfnuður, að við myndum uppræta spillingu og tryggja það Að fólk fái framærslu, framfærslu sem er þannig að fólk þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur og fólk geti gert það sem það vill Það geti skapað, það geti verið partur af okkar efnahag og menningu Verið meðtekin í samfélagið, hvort sem að þú ert með sjúkdóma eða ert fíkill Þú fáir jöfn tækifæri eins og allir aðrir Píratar eru öðruvísi því að Píratar starfa alltaf og eru alltaf gagnrýnin á sjálfa sig og aðra og þeir vinna alltaf eftir nýjustu upplýsingum Við erum ekki með geðþóttaákvarðanir vegna þess að „mér finnst þetta“ eða „þetta hentar mér og mínum lífsstíl“ Nei, við erum að skoða hvað virkar, hvað hefur virkað, hvað hafa rannsóknir sýnt Hvar eru gögnin og hvernig ætlum við að framkvæma hlutina Við erum ekki að gera þetta út af eiginhagsmunasemi