Verkefni án tölvu | Internetið
(Amy Hirotaka - Code.org) Þetta verkefni útskýrir,
á einfaldan hátt hvernig netið virkar.
Við útskýrum öll hugtökin sem þú þarft á einfaldan hátt,
þannig að nemendur geti líkt eftir því að senda skilaboð, svo sem tölvupóst.
Nemendur munu senda skilaboð með því að þykjast vera
ein af þremur sendingaraðferðum:
þráðlaust internet (WIFI), DSL eða ljósleiðari.
Nemendur sem leika þráðlaust,
verða að hafa skilaboðin sem þeir eru að flytja á höfðinu,
vegna þess að þráðlaust er líklegast til að týna upplýsingum.
Þeir nemendur sem þykjast vera DSL eða breiðband
munu bera skilaboðin á á handarbakinu
þar sem þeir eru aðeins ólíklegri til að týna upplýsingum.
Og nemendurnir sem leika ljósleiðara
fá að bera þau með báðum höndum.
Þetta verkefni er frábær leið til að skilja
eitthvað sem mörg okkar nota á hverjum degi.