WordPress 4.3 [JAZZ]
nefnt eftir jazz goðsögninni [JAZZER]
gerir skrifin fljótlegri,
auðveldara að sérsníða þinn vef
og lykilorðin þín öruggari.
Skoðum betur hvernig
WordPress 4.3 hjálpar
eiganda smáfyrirtækis.
Þetta er Kata,
og vefurinn f. kaffihúsið hennar:
Bolli Schrödingers.
Kata vill sýna viðskiptavinum
matseðil dagsins
svo þeir geti fylgst með
því sem hún ber fram dags daglega.
Í dag ætlar hún að græja það
beint inni í WordPress.
Síðan f. matseðilinn hennar Kötu
mun segja viðskiptavinum hennar
hvað hún er að hell upp á og
hvað er í hádegismatinn þann daginn.
Hún vill laga sniðið til
gera það skýrt og greinilegt
svo viðskiptavinir geti fljótt og örugglega
séð hvað er á tilboði.
Í WordPress 4.3
getur hún breytt því hvernig
textinn lítur út án þess að smella.
Flýtileiðir fyrir snið leyfa henni að búa til
lista, fyrirsagnir, og tilvitnanir,
án þess að trufla flæðið.
Það gerir verkið að
birta daglegan matseðil
auðvelt og fljótlegt,
gefur henni meiri tíma fyrir starfið
við að búa til gott kaffi.
Kominn tími fyrir Kötu að bæta nýju síðunni við
valmyndina í hliðarslánni.
Það er engin þörf á að fara
í stjórnborðið til þess.
Í WordPress 4.3 getur Kata bætt við
nýjum atriðum í sérsníðaranum,
þar sem hún getur forskoðað breytingar
á vefnum hennar áður en hún birtir þær.
Þegar hún skoðar nýju síðuna,
þá þarf hún bara
að smella á "sérsníða", velja "valmyndir",
og bæta nýju síðunni í hliðarvalmyndina.
Þetta var ekki erfitt.
Nú geta viðskiptavinir Kötu skoðað vefinn
hvern dag til að sjá hvað hún býður upp á.
Það er annað nýtt tól
í sérsníðaranum.
Kata getur hlaðið upp táknmynd fyrir vefinn
svo lógóið hennar sést í vafraflipum
og valmyndum bókamerkja.
Viðskiptavinir geta einnig búið til flýtileið
á heimaskjá snjalltækjanna þeirra.
Nú hafa þeir matseðil Kötu,
hvenær sem þeir þurfa hann.
Þetta eru ekki einu breytingarnar í
WordPress 4.3.
Þegar Kata bætir við starfsmanni
inn á vefinn, mun WordPress útbúa
öruggt lykilorð fyrir hann.
Ef starfsmaðurinn breytir því lykilorði,
lætur WordPress vita hvort lykilorðið
er öruggt
Nóg komið af WordPress í dag,
Kata þarf að reka fyrirtæki.
En hún er hamingjusöm að með hverri uppfærslu
verður WordPress betra.
Og í staðinn getur hún haldið
viðskiptavinunum hamingjusömum,
með því að veita þeim upplýsingarnar,
í einum grænum.
WordPress 4.3 [JAZZ]
Fágaðri blanda.