Við getum skapað fullt af frábærum og spennandi tækifærum fyrir okkur inn í framtíðina en við gerum það ekki með því að setja alla í sama hólf Og segja: „Þú vinnur hjá þessu ferðaþjónustufyrirtæki“ „Þú ferð í þetta álver annars færðu ekki neitt“ Við viljum að fólk sé ekki neytt til þess að taka vinnu sem er ekki við þeirra hæfi, sem passar ekki við þeirra menntun eða þeirra reynslu Við þurfum ekki að senda kennara til að afgreiða í ísbúð bara til þess að setja hann í einhverja vinnu Við erum á þeim tímapunkti í sögunni, akkúrat núna Að við erum að sjá fram öldrun þjóðarinnar og við erum að sjá fram á gríðarlegar breytingar út af loftslagsbreytingum Ef að við höfum ekki dug í okkur núna til þess að ráðast í þessar framkvæmdir Þá munum við búa við verra samfélag til lengri tíma, við munum búa við minni samkeppnishæfi og meira óréttlæti