Við getum skapað fullt af frábærum
og spennandi tækifærum
fyrir okkur inn í framtíðina en við gerum
það ekki með því að setja alla í sama hólf
Og segja: „Þú vinnur hjá þessu
ferðaþjónustufyrirtæki“
„Þú ferð í þetta álver annars
færðu ekki neitt“
Við viljum að fólk sé ekki neytt til
þess að taka vinnu sem er
ekki við þeirra hæfi, sem passar ekki við
þeirra menntun eða þeirra reynslu
Við þurfum ekki að senda kennara
til að afgreiða í ísbúð
bara til þess að setja hann í einhverja vinnu
Við erum á þeim tímapunkti í sögunni,
akkúrat núna
Að við erum að sjá fram öldrun þjóðarinnar
og við erum að sjá fram á gríðarlegar breytingar
út af loftslagsbreytingum
Ef að við höfum ekki dug í okkur núna
til þess að ráðast í þessar framkvæmdir
Þá munum við búa við verra samfélag til
lengri tíma, við munum búa við
minni samkeppnishæfi og meira
óréttlæti