Ég byrjaði í Pírötum, mig langaði bara til þess að breyta hlutum Mér fundust hvatarnir í samfélaginu okkar vera furðulegir og mig langaði að hrista upp í þessu og hafa áhrif, sérstaklega eftir hrunið Ég fann hvað mér fannst samfélagið okkar vera orðið sturlað Og þá, þegar Píratar voru stofnaðir, þá fór ég á fund Ég hitti þetta fólk og mér fannst allir stórskrítnir og ógeðslega skemmtilegir Út af því að ég er náttúrulega stórskrítin sjálf og fannst ég alveg komin heim Að því leyti að þarna var fólk að tala um hugmyndir sínar Deila hugmyndum á lýðræðislegan hátt, það var það sem náði mér mest Það var þessi hugmynd um valddreifinguna, að dreifa lýðræðinu og þar af leiðandi Að dreifa ábyrgðinni líka, það eru einhverjir einstaklingar inni á þingi sem taka ákvarðanir en almenningur fær ofboðslega litla aðkomu að þeirri ákvarðanatöku og það gerir það að verkum að það eru mjög fáir aðilar sem bera ábyrgð Mér finnst, í heiminum í dag, með þeim áskorunum sem eru framundan Að við þurfum að vera hugrakkari, við þurfum að geta tekið stórar ákvarðanir Prufa okkur áfram með nýjar hugmyndir og nýja hugmyndafræði Við verðum að fara að hugsa öðruvísi í efnahagsmálum Við verðum að fara að hugsa öðruvísi um hvernig við komum fram við hvort annað Við þurfum meiri tíma til að sinna áhugamálum, til að vera með fjölskyldu og ástvinum Huga að geðheilbrigði og heilsunni okkar Við þurfum að skapa hérna aðeins umhyggjusamara samfélag Þess vegna er ég Pírati!