(JR Hildebrand - kappakstursökuþór) Maður kæmist ekki einu sinni í keppnina
ef maður hefði ekki fólk sem er fært í
tölvunarfræði, vegna þess hve miklu af gögnum bílarnir safna.
Og nauðsyn þess að geta haft fólk sem getur skrifað forrit
sem reikna út hvernig maður getur stöðugt bætt frammistöðuna.
Í þessum þrautum verður þú listamaður
sem notar blýant til að teikna mismunandi form.
Svo hvert sem listamaðurinn fer mun hann teikna línu á eftir sér.
Til að hreyfast um myndflötinn, munt þú nota færa áfram kubbinn.
Hér segir færa áfram kubburinn: fara áfram um 100 díla.
Þegar við smellum á keyra, hvað gerist þá?
Listamaðurinn færist fram um ákveðna vegalengd
og sú vegalengd er 100 dílar.
Dílar eru í grunninn pínulítlir ferningar á tölvuskjánum þínum.
Hinn kubburinn sem við höfum í þessari þraut segir: snúa til hægri um níutíu gráður.
Og þegar við drögum hann út.
Þá lætur það listamanninn okkar snúa um ákveðið horn.
Svo þú getur leikið þér með hversu mikið þú vilt að listamaðurinn snúi.
Þetta er 90 gráðu beygja.
Og þetta er 120 gráðu beygja.
Og mundu að þú getur breytt þessum gildum með því að smella á örvarnar
við hliðina á tölunum fyrir díla og gráður.
Njóttu þess að teikna með listamanninum þínum.