Return to Video

Damsel in Distress: Part 1 - Tropes vs Women in Video Games

  • 0:00 - 0:02
    "Mario!"
  • 0:03 - 0:05
    "Ó! Hjálp!"
  • 0:25 - 0:30
    Velkomin í þáttaröðina okkar þar sem við skoðum
    hlutverk og birtingarmyndir kvenna í tölvuleikjum
  • 0:30 - 0:36
    Í þáttunum könnum við þau minni, frásagnartól
    og munstur sem oftast tengjast konum í tölvuleikjum
  • 0:36 - 0:39
    á kerfisbundinn hátt
    með heildarmyndina í huga.
  • 0:39 - 0:43
    Í þáttaröðinni verða margir vinsælir leikir og
    ástsælar sögupersónur rýndar á gagnrýninn hátt.
  • 0:43 - 0:46
    en munið, að það er bæði mögulegt,
    og jafnvel nauðsynlegt,
  • 0:46 - 0:53
    að hafa ánægju af listformi, en vera um leið
    gagnrýninn á galla þess og neikvæðar hliðar.
  • 0:53 - 0:57
    En komun okkur að efninu,
    og sökkvum okkur í að kanna Yngismær í neyð.
  • 0:58 - 1:01
    Við skulum byrja á sögunni um
    leikinn sem enginn fékk að spila.
  • 1:01 - 1:09
    Árið 1999, vann fyrirtækið 'Rare' að gerð frumsamins
    leiks fyrir Nintendo 64, sem hét Dinosaur Planet
  • 1:09 - 1:14
    Í leiknum átti önnur af spilanlegu aðalpersónunum
    að vera 16 ára hetja að nafni Krystal.
  • 1:14 - 1:19
    Hún þurfti að ferðast um tímann, berjast við
    forsöguleg skrímsli með galdrastafnum sínum
  • 1:19 - 1:24
    og bjarga heiminum. Hún var sterk,
    hún gat allt og hún var hetja.
  • 1:24 - 1:27
    "Og hver ert þú, dýrastelpa?"
  • 1:27 - 1:29
    "Ég heiti Krystal"
  • 1:40 - 1:42
    Ansi svalt, ekki satt?
  • 1:42 - 1:45
    Eða það hefði verið það.
    Leikurinn var nefnilega aldrei gefinn út.
  • 1:45 - 1:50
    Þegar þróun verkefnisins var alveg að ljúka,
    grínaðist frægi leikjahönnuðurinn, Shigeru Miyamoto
  • 1:50 - 1:55
    með að honum finndist að þetta ætti frekar að
    verða þriðji leikurinn í Star Fox leikjaseríunni sinni.
  • 1:55 - 1:57
    Sem var einmitt það sem hann og Nintendo
    gerðu á næstu tveimur árum.
  • 1:57 - 2:03
    Þeir endurskrifuðu og -hönnuðu leikinn og gáfu hann út
    sem Star Fox Adventures fyrir Game Cube árið 2002
  • 2:03 - 2:09
    Í þessari endurbættu útgáfu var Krystal, sem hafði
    verið aðalpersónan, orðin að Yngismær í neyð
  • 2:09 - 2:13
    og situr, megnið af leiknum, föst í kristalsfangelsi
  • 2:13 - 2:16
    og bíður eftir að vera bjargað
    af nýju aðal hetjunni, Fox McCloud.
  • 2:16 - 2:19
    Hasarsenunum í leiknum, sem voru
    upprunalega samdar fyrir Krystal
  • 2:19 - 2:22
    var breytt þannig að Fox kom í staðinn.
  • 2:22 - 2:25
    Krystal var klædd í efnisminni og kynferðislegri fatnað.
  • 2:26 - 2:29
    "Vá! Hún er falleg!!"
  • 2:36 - 2:38
    "Hvað er ég að gera?"
  • 2:38 - 2:44
    Og, já. Þarna er spiluð hallærisleg saxafóntónlist
    til að það sé alveg á tæru
  • 2:44 - 2:48
    að hún er núna girnileg, jafnvel
    meðan hún er meðvitundarlaus.
  • 2:48 - 2:56
    Til að kóróna allt saman, notar Fox núna galdrastafinn
    hennar í baráttu sinni til að bjarga henni.
  • 2:56 - 2:59
    Sagan um það hvernig Krystal breyttist úr
    aðal hetjunni í sínu eigin magnaða ævintýri
  • 2:59 - 3:02
    í framtakslaust fórnarlamb í leik einhvers annars
  • 3:02 - 3:06
    sýnir hvernig Yngismær í neyð minnið
    gerir kvenpersónur valdalausar
  • 3:06 - 3:09
    og sviptir þær tækifærinu á að vera
    hetjur upp á sitt einsdæmi
  • 3:10 - 3:15
    Á ensku kallast Yngismær í neyð 'Damsel in distress',
    sem er á frönsku 'demoiselle en détresse'.
  • 3:15 - 3:17
    'Demoiselle' þýðir bara 'ung kona'
  • 3:17 - 3:24
    en 'détresse' má þýða sem, hræðsla eða örvænting
    þess sem er yfirgefinn, hjálparlaus eða í hættu.
  • 3:24 - 3:27
    Sem minni, er Yngismær í neyð, frásagnartól
  • 3:27 - 3:30
    þar sem kvenpersóna er sett í háskalegar aðstæður
  • 3:30 - 3:35
    sem hún sleppur ekki úr að sjálfsdáðum
    og þarf að vera bjargað af karlpersónu,
  • 3:35 - 3:39
    og er oftast helsta hvatning eða markmið
    aðalpersónunnar í sögunni.
  • 3:39 - 3:42
    Í tölvuleikjum er þetta oftast gert með mannráni
  • 3:42 - 3:46
    en yngismærin getur líka
    t.d. verið fryst eða andsetin.
  • 3:46 - 3:51
    Oft er yngismærin fjölskyldumeðlimur
    hetjunnar eða hann ástfanginn af henni -
  • 3:51 - 3:57
    prinsessur, eiginkonur, kærustur
    og systur eru gjarnan notaðar.
  • 3:57 - 4:02
    Vissulega er Yngismær í neyð nokkrum
    þúsundum ára eldri en tölvuleikir.
  • 4:02 - 4:07
    Minnið er hægt að rekja til forngrísku
    goðsagnarinnar um Perseus.
  • 4:07 - 4:11
    Í goðsögninni er sæskrímsli í þann
    mund að gleypa Andrómedu
  • 4:11 - 4:14
    þar sem hún er bundin nakin við klett, sem mannfórn.
  • 4:14 - 4:19
    Perseus drepur skrímslið, bjargar prinsessunni
    og gerir hana að eiginkonu sinni.
  • 4:19 - 4:25
    Á miðöldum var Yngismær í neyð algengt minni
    í fjölmörgum kvæðabálkum, og ævintýrum.
  • 4:25 - 4:29
    Björgun varnarlausrar konu var oft
    sett fram sem grunnur að öllu
  • 4:29 - 4:33
    eða tilgangur lífins í
    rómönsum og ljóðum þessa tíma,
  • 4:33 - 4:39
    um farand-riddara í ævintýraleit til að
    sanna hetjulund sína, krafta og dygð.
  • 4:39 - 4:43
    Í byrjun 20.aldar urðu kvenkyns
    fórnarlömb, uppáhalds klisja
  • 4:43 - 4:49
    á upphafsárum bandaríska kvikmyndaiðnaðarins,
    af því hún var einfalt frásagnartól fyrir bíótjaldið.
  • 4:49 - 4:55
    Frægt dæmi er stuttmynd frá 1913 um Keystone
    löggurnar - *Barney Oldfield's Race for a Life*
  • 4:55 - 5:01
    en þar er hið klassíska atriði: Kona bundin við
    járnbrautarteina af illmenni með yfirvaraskegg.
  • 5:04 - 5:07
    Um þetta leyti birtist sagnaminnið um risa-
    apann, sem nemur öskrandi konu á brott
  • 5:07 - 5:12
    og nær mikilli útbreiðslu og vinsældum
    í öllum tegundum miðlunar.
  • 5:12 - 5:15
    t.d. er ástkona Tarsans, Jane,
    hremmd af groddalegum mannapa.
  • 5:15 - 5:20
    í reyfara Edgar Rice Burroughs
    frá 1912 *Tarsan og aparnir.*
  • 5:20 - 5:24
    Árið 1930 notaði Walt Disney þetta
    minni, í Mikka mús teiknimynd
  • 5:24 - 5:26
    sem hét *The Gorilla Mystery*.
  • 5:29 - 5:35
    Myndefnið var einnig notað af bandaríska hernum
    á auglýsinga veggspjaldi fyrir Fyrri heimstyrjöldina.
  • 5:35 - 5:39
    En árið 1933 gerðist tvennt,
    sem fimmtíu árum síðar
  • 5:39 - 5:46
    gerði það að Yngismær í neyð minnið varð
    grunnvallar þáttur í tölvulekjum sem miðli.
  • 5:46 - 5:52
    Annars vegar, Paramount Pictures kynnti
    til sögunnar teiknimyndirnar um Stjána bláa.
  • 5:52 - 5:59
    Formúlan í flestum stuttmyndunum var Stjáni
    að bjarga Stínu Stöng frá mannræningjum.
  • 5:59 - 6:05
    Hins vegar, í marsmánuði, frumsýndi RKO
    kvikmyndaverið hina gríðarvinsælu King Kong
  • 6:05 - 6:11
    þar sem risa api rænir ungri konu og er loks drepinn
    meðan hann reynir að halda yfirráðum yfir henni.
  • 6:13 - 6:17
    Spólum nú áfram til 1981, þegar
    japanska fyrirtækið Nintendo
  • 6:17 - 6:20
    fékk ungum hönnuði að nafni Shigeru Miyamoto
  • 6:20 - 6:24
    það verkefni að búa til nýjan leik í
    spilakassa á Bandaríkjamarkað.
  • 6:24 - 6:28
    Í byrjun var hugmyndin að gera leik
    með Stjána bláa í aðalhlutverki
  • 6:28 - 6:31
    en þegar Nintendo tókst ekki að tryggja sér réttinn
  • 6:31 - 6:37
    bjó Miyamoto til sínar eigin persónur til að fylla í
    eyðurnar, með sterkri tilvísan í *King Kong*
  • 6:40 - 6:44
    Hetja leiksins 'Jump Man' hafði það hlutverk
    að bjarga yngismeyju sem hét 'Lady'
  • 6:44 - 6:47
    sem hafði verið numin á brott af risa apa.
  • 6:47 - 6:51
    Í seinni útgáfum fékk hún nafnið 'Pauline'.
  • 6:52 - 6:57
    Jafnvel þótt Donkey Kong sé e.t.v. frægasti
    gamli spilakassaleikurinn með Yngismær í neyð
  • 6:57 - 6:59
    þá var hann ekki fyrsta skiptið sem
    Miyamoto notaði þetta minni.
  • 6:59 - 7:05
    Tveimur árum fyrr hafði hann
    aðstoðað við hönnun leiksins 'Sheriff'.
  • 7:05 - 7:08
    Í honum var kvenlegt hrúgald af punktum
  • 7:08 - 7:12
    kallað 'Beauty' (Hin Fallega),
    sem þurfti að bjarga frá flokki bófa.
  • 7:12 - 7:18
    Hetjan fær svo 'sigurkoss' í verðlaun
    fyrir hugrekki sitt, í lokin.
  • 7:18 - 7:21
    Nokkrum árum síðar, endurnýtti Miyamoto
    hönnun sína að Donkey Kong.
  • 7:21 - 7:25
    Pauline varð fyrirmyndin að nýrri
    yngismær, prinsessunni 'Toadstool'
  • 7:25 - 7:29
    og 'Jump Man' breyttist í vel þekktan pípara.
  • 7:40 - 7:45
    Prinsessan 'Peach' er að mörgu leyti
    dæmigerðasta útgáfan af Yngismær í neyð.
  • 7:45 - 7:51
    Þessi ólánssama prinsessa er í fjórtan af
    grunn-leikjunum í Super Mario Bros röðinni
  • 7:51 - 7:53
    og henni er rænt í þrettán þeirra.
  • 8:02 - 8:05
    Norður Ameríska útgáfan af
    Super Mario Bros 2, frá 1988
  • 8:05 - 8:10
    er eini leikurinn í grunn-leikjaröðinni
    þar sem Peach er ekki rænt
  • 8:10 - 8:12
    og er jafnframt eini leikurinn þar sem
    leikmen geta valið að spila sem hún,
  • 8:12 - 8:16
    þó rétt sé að taka fram að sá leikur átti
    upphaflega ekki að verða Mario leikur.
  • 8:16 - 8:20
    Leikurinn var upphaflega gefinn út
    í Japan með allt öðru heiti
  • 8:20 - 8:22
    kallaður "Yume Kōjō: Doki Doki Panic"
  • 8:22 - 8:27
    sem mætti þýða sem "Draumasmiðja: Stressandi panikk"
  • 8:38 - 8:46
    Nintendo í Bandaríkjunum fannst upprunalegi japanski
    Super Mario Bros 2 of erfiður og líkur fyrsta leiknum
  • 8:46 - 8:51
    svo þeir breyttu "Doki Doki Panic" til að
    innihalda Mario og Luigi í staðinn.
  • 8:51 - 8:55
    En í Japanska leiknum var hægt
    að spila fjórar persónur.
  • 8:59 - 9:04
    Svo hönnuðirnir ákváðu að nota Toad og
    Prinsessuna til að fylla í seinustu tvö hólfin
  • 9:04 - 9:08
    til að vinna út frá teikningum sem voru til fyrir.
  • 9:08 - 9:13
    Svo í raun og veru, var Peach
    eiginlega óvart spilanleg þarna.
Title:
Damsel in Distress: Part 1 - Tropes vs Women in Video Games
Description:

This video explores how the Damsel in Distress became one of the most widely used gendered clichés in the history of gaming and why the trope has been core to the popularization and development of the medium itself. 

As a trope the Damsel in Distress is a plot device in which a female character is placed in a perilous situation from which she cannot escape on her own and must then be rescued by a male character, usually providing a core incentive or motivation for the protagonist's quest.

ABOUT THE VIDEO SERIES
The Tropes vs Women in Video Games project aims to examine the plot devices and patterns most often associated with female characters in gaming from a systemic, big picture perspective. This series will include critical analysis of many beloved games and characters, but remember that it is both possible (and even necessary) to simultaneously enjoy media while also being critical of it's more problematic or pernicious aspects.

MORE INFO
For more examples of the Damsel in Distress see our Tumblr for this series:
http://tropesversuswomen.tumblr.com

Visit http://www.feministfrequency.com for more information, videos and a full transcript. English language captions coming soon!

This video series is created by Anita Sarkeesian and the project was funded by 6968 awesome backers on Kickstarter.com

ABOUT COMMENTS
Comments are currently closed (for obvious reasons) however, please feel free to share and embed this video on your own blogs and social media networks to facilitate discussions on the topic.

For more information on Cyber mobs and gendered online harassment, you can watch my TEDxWomen talk on the topic: https://www.youtube.com/watch?v=GZAxwsg9J9Q

more » « less
Video Language:
English
Team:
Feminist Frequency
Duration:
23:35

Icelandic subtitles

Incomplete

Revisions Compare revisions