Return to Video

Klukkustund kóðunar - Minecraft: KYNNING

  • 0:00 - 0:05
    Ég heiti Jens Bergensten, en betur
    þekktur sem Jeb. Ég er yfir þróun Minecraft
  • 0:05 - 0:13
    hér hjá mojang.com. Ég var 11 eða 12 ára
    og byrjaði að forrita af því ég vildi
  • 0:13 - 0:18
    búa til leiki. Einn af vinum pabba sagði
    mér að til að búa til leiki þyrfti maður
  • 0:18 - 0:26
    að læra að forrita. Svo þannig byrjaði
    ég. Mér finnst gaman að hanna og spá í
  • 0:26 - 0:33
    uppbyggingu hluta. Það finnst mér
    skemmtilegast við Minecraft. Næsta
  • 0:33 - 0:39
    klukkutímann munt þú læra undirstöðu
    í tölvunarfræði með því að forrita Alex
  • 0:39 - 0:46
    eða Steve og láta þau hreyfast um Minecraft
    heim. Forrit eru venjulega skrifuð,
  • 0:46 - 0:51
    en í dag ætlum við að nota blockly: kerfi
    sem notar færanlega kubba til að skrifa
  • 0:51 - 0:58
    forrit. Bak við tjöldin ertu að búa til
    JavaScript kóða. Hugtökin sem þú munt
  • 0:58 - 1:03
    læra eru þau sem tölvuforritarar nota daglega og sem eru undirstaða tölvunarfræði.
  • 1:03 - 1:10
    Hér hjá Mojang notum við þessi sömu
    hugtök til að láta Minecraft virka.
  • 1:10 - 1:15
    Áður en þú byrjar, velur þú persónu. Ég
    ætla að velja Alex. Við skulum smíða kóða
  • 1:15 - 1:23
    fyrir forrit sem hjálpar henni að hreyfa sig
    um skjáinn. Skjárinn skiptist í þrjá hluta.
  • 1:23 - 1:29
    Vinstra megin er Minecraft leiksvæðið, þar
    sem forritið þitt mun keyra. Leiðbeiningar
  • 1:29 - 1:35
    fyrir hvern áfanga eru fyrir neðan. Þetta
    miðjusvæði er verkfærakassinn og hver
  • 1:35 - 1:41
    kubbur er skipun sem stýrir aðgerðum Alex.
    Hvíta svæðið til hægri er vinnusvæðið og
  • 1:41 - 1:47
    það er hér sem við smíðum forritið. Ef
    við drögum "færa áfram" kubb inn á
  • 1:47 - 1:53
    vinnusvæðið og smellum á "Keyra", hvað
    gerist þá? Alex færist áfram um einn reit.
  • 1:53 - 2:00
    Og hvað ef við viljum gera eitthvað eftir
    að hún hefur færst um einn reit? Þá getum
  • 2:00 - 2:05
    við bætt öðrum kubbi við forritið. Ég ætla
    að velja "snúa til hægri" kubbinn og dreg
  • 2:05 - 2:11
    hann undir "færa áfram" kubbinn þar
    til appelsínugula línan birtist. Þá sleppi
  • 2:11 - 2:17
    ég honum og kubbarnir tveir smella saman.
    Þegar við ýtum aftur á "Keyra" mun Alex
  • 2:17 - 2:23
    gera skipanir á vinnusvæðinu ofan frá og
    niður. Og ef þú vilt einhvern tímann eyða
  • 2:23 - 2:29
    eyða kubbi, þá er nóg að draga hann aftur
    í verkfærakassann. Til að afturkalla
  • 2:29 - 2:34
    breytingar og komast á byrjunarpunkt,
    notar þú Byrja aftur hnappinn upp í
  • 2:34 - 2:41
    hægri horni vinnusvæðisins. Eitt enn, sérðu
    litla þrihyrninginn á snúa kubbunum?
  • 2:41 - 2:47
    Þegar þú sérð svona þríhyrning þýðir það að þú getur valið fleiri kosti.
  • 2:47 - 2:49
    Byrjum að kóða!
Title:
Klukkustund kóðunar - Minecraft: KYNNING
Description:

more » « less
Video Language:
English
Team:
Code.org
Project:
CSF '21-'22
Duration:
02:51

Icelandic subtitles

Revisions Compare revisions