Return to Video

Star Wars with Blockly - Hour of Code: Events

  • 0:00 - 0:05
    Hæ, ég heiti Charita Carter. Ég er ein
    af yfirmönnum ímyndarmótunar hjá
  • 0:05 - 0:10
    skemmtigarðadeild Walt Disney. Ég ber
    ábyrgð á að leiða teymi sem búa til
  • 0:10 - 0:16
    leiktækin sem gestir okkar fá að
    upplifa. Við erum alltaf að leita leiða
  • 0:16 - 0:21
    til að bæta upplifun gestanna og
    tölvutæknin er þar í aðalhlutverki.
  • 0:21 - 0:28
    Til hamingju, þér tókst það! Þú forritaðir
    BB-8. Nú held ég að við séum tilbúin í
  • 0:28 - 0:33
    erfiðari hluti. Gerum það. Nú hefur þú
    lært undirstöðuatriði í forritun svo við
  • 0:33 - 0:39
    ætlum að fara aftur í tímann og þú býrð
    til þinn eigin leik með R2-D2 og C3PO.
  • 0:39 - 0:46
    Til þess þurfum við að læra um hlut sem
    forritarar nota daglega: þetta eru ATVIK.
  • 0:46 - 0:51
    ATVIK segja forritinu að hlusta eða bíða
    eftir að eitthvað gerist og þegar það
  • 0:51 - 0:57
    gerist, þá framkvæmir forritið aðgerð. Dæmi
    um atvik eru að fylgjast með hvort mús er smellt,
  • 0:57 - 1:03
    hvort ýtt er á örvarlykil eða slegið á skjá.
    Hér ætlum við að láta R2-D2 færast upp til að
  • 1:03 - 1:07
    koma skilaboðum til flugmanns uppreisnarinnar
    og síðan fara niður að hinum flugmanninum.
  • 1:07 - 1:13
    Við notum ATVIK til að láta hann færast, þegar spilarinn notar upp/niður örvarlyklana, eða
  • 1:13 - 1:20
    upp/niður hnappana. Við notum "þegar upp ör" atvikskubbinn og tengjum "færa upp" kubbinn
  • 1:20 - 1:25
    við hann. Þegar spilarinn ýtir á upp örina, keyrir kóðinn sem er tengdur við "þegar upp ör" kubbinn.
  • 1:25 - 1:29
    Og við gerum það sama til að láta R2-D2
    færast niður.
  • 1:29 - 1:35
    Í stað þess að skrifa allan kóðann til að stjórna vélmenninu fyrirfram, getum við látið R2-D2
  • 1:35 - 1:41
    bregðast við atvikum hnappa sem færa hann
    um skjáinn. Skref fyrir skref, er leikurinn þinn
  • 1:41 - 1:44
    að verða gagnvirkari.
Title:
Star Wars with Blockly - Hour of Code: Events
Description:

Byrjaðu að læra á http://code.org/

Vertu í sambandi!
• á Twitter https://twitter.com/codeorg
• á Facebook https://www.facebook.com/Code.org
• á Instagram https://instagram.com/codeorg
• á Tumblr https://blog.code.org
• á LinkedIn https://www.linkedin.com/company/code-org
• á Google+ https://google.com/+codeorg

more » « less
Video Language:
English
Team:
Code.org
Project:
Hour of Code
Duration:
01:48

Icelandic subtitles

Revisions