Ég heiti Jens Bergensten, en betur þekktur sem Jeb. Ég er yfir þróun Minecraft hér hjá mojang.com. Ég var 11 eða 12 ára og byrjaði að forrita af því ég vildi búa til leiki. Einn af vinum pabba sagði mér að til að búa til leiki þyrfti maður að læra að forrita. Svo þannig byrjaði ég. Mér finnst gaman að hanna og spá í uppbyggingu hluta. Það finnst mér skemmtilegast við Minecraft. Næsta klukkutímann munt þú læra undirstöðu í tölvunarfræði með því að forrita Alex eða Steve og láta þau hreyfast um Minecraft heim. Forrit eru venjulega skrifuð, en í dag ætlum við að nota blockly: kerfi sem notar færanlega kubba til að skrifa forrit. Bak við tjöldin ertu að búa til JavaScript kóða. Hugtökin sem þú munt læra eru þau sem tölvuforritarar nota daglega og sem eru undirstaða tölvunarfræði. Hér hjá Mojang notum við þessi sömu hugtök til að láta Minecraft virka. Áður en þú byrjar, velur þú persónu. Ég ætla að velja Alex. Við skulum smíða kóða fyrir forrit sem hjálpar henni að hreyfa sig um skjáinn. Skjárinn skiptist í þrjá hluta. Vinstra megin er Minecraft leiksvæðið, þar sem forritið þitt mun keyra. Leiðbeiningar fyrir hvern áfanga eru fyrir neðan. Þetta miðjusvæði er verkfærakassinn og hver kubbur er skipun sem stýrir aðgerðum Alex. Hvíta svæðið til hægri er vinnusvæðið og það er hér sem við smíðum forritið. Ef við drögum "færa áfram" kubb inn á vinnusvæðið og smellum á "Keyra", hvað gerist þá? Alex færist áfram um einn reit. Og hvað ef við viljum gera eitthvað eftir að hún hefur færst um einn reit? Þá getum við bætt öðrum kubbi við forritið. Ég ætla að velja "snúa til hægri" kubbinn og dreg hann undir "færa áfram" kubbinn þar til appelsínugula línan birtist. Þá sleppi ég honum og kubbarnir tveir smella saman. Þegar við ýtum aftur á "Keyra" mun Alex gera skipanir á vinnusvæðinu ofan frá og niður. Og ef þú vilt einhvern tímann eyða eyða kubbi, þá er nóg að draga hann aftur í verkfærakassann. Til að afturkalla breytingar og komast á byrjunarpunkt, notar þú Byrja aftur hnappinn upp í hægri horni vinnusvæðisins. Eitt enn, sérðu litla þrihyrninginn á snúa kubbunum? Þegar þú sérð svona þríhyrning þýðir það að þú getur valið fleiri kosti. Byrjum að kóða!