WordPress 4.7 "Vaughan", nefnt eftir jazzgoðsögninni Söruh "Sassy" Vaughan gerir það auðveldara en áður að setja upp vefinn þinn eftir þínum óskum. Heilsaðu Carly. Carly rekur gæludýraverslun og hana vantar vef. Carly skoðar hvaða valkosti hún hefur... ... og uppgötvar WordPress. Með WordPress getur Carly valið úr þúsundum ókeypis þema sem henta henni. Carly valdi Twenty Seventeen, glænýja þemu fyrir WordPress, búið til með þarfir fyrirtækja í huga. Twenty Seventeen er fallega hannað með stórum myndum allstaðar - fullkomið fyrir lítil fyrirtæki líkt og gæludýraverslun, eða stór fyrirtæki. Þar sem þetta er glænýr vefur, býður Twenty Seventeen upp á sýnishorn af efni sem aðstoðar Carly að sjá hvernig það getur nýst hennar verslun og farið að aðlaga að hennar þörfum. Nýjar flýtileiðir fyrir breytingar sýna hvaða hluta vefsins hennar er hægt að breyta beint úr lifandi forskoðun. Á meðan hún sníðir þemað til, tekur Carly eftir því að hún getur bætt við myndbandi í síðuhaus. Hún velur myndband sem hún tók af frænku sinni með hvolp og bætir því við í síðuhausinn á vefnum beint úr spjaldtölvunni. Þar sem hægt er að stofna síður á meðan sýslað er með valmynd í sérsníðaranum í WordPress 4.7, getur Carly haldið áfram að leggja grunn að vefnum án þess að rjúfa vinnuflæðið sem hún er í. Carly vill gera eina breytingu enn áður en hún er tilbúin til að deila vefnum - gera nafnið á versluninni meira áberandi. Nýja CSS valblaðið gerir það auðvelt og sýnir breytingarnar á meðan þú vinnur þær. Að því loknu opnar hún glænýja vefinn fyrir gæludýraverslunina sína. Carly er ánægð. WordPress 4.7 býður upp á alla þessa möguleika og marga fleiri, ásamt spennandi kostum fyrir forritara líkt og REST API endapunkta. WordPress 4.7 Vaughan - hjálpar þér að gera vefinn þinn, eins og þú vilt hafa hann.