Preston: Þó ég segi sjálfur frá, þá er ég frekar góður í parkúr. Lizzy: Förum að sofa svo að það sé dagur þegar Stacy kemur aftur. Stacy: Jæja, ég er komin eftur frá Minecraft skrifstofunum og ég held ég viti hvernig á að leysa vandamálið í leiknum mínum. Ég held ég geti notað fall. Ég ætla bara að opna þetta. Fall er sérstakt sett skipana til að framkvæma sérstakt verk, svolítið eins og uppskrift. Í næstu áföngum færð þú aðgang að föllum sem þú getur notað til að leysa þrautirnar. Skoðaðu kóðann í falli þegar það er á vinnusvæðinu til að sjá hvað það gerir. Finndu svo kubbinn með því nafni í verkfærakassanum og dragðu hann undir "þegar keyrt" kubbinn. Mundu að þú getur notað sama fall í hvert sinn sem þú þarft að keyra sömu skipanir til að gera eitthvað, eins og að byggja brú. Gangi þér vel, ég veit þú getur þetta!