Ég er Lydia Winters, vörumerkisstjóri Mojang Við gerðum smá leik sem heitir Minecraft. Uppáhald mitt í Minecraft er að kanna. Ég elska að kanna hella og sjá hvað ég finn. Ég er ekki forritari en mér finnst spennandi að fara í gegnum Minecraft kennsluna og læra að kóða sjálf. Síðasti áfanga þurfti marga "færa áfram" kubba. Það væri miklu auðveldara ef við gætum bara sagt tölvunni að endurtaka "færa áfram" fjórum eða fimm sinnum. Við erum heppin að tölvur eru mjög góðar í að endurtaka skipanir með lykkjum. Þegar við byggjum Minecraft notum við lykkjur til að setja allt upphaflega efnið til að búa til nýjan heim. Það eru mörg þúsund blokkir. Við notum lykkjur fyrir smáatriði, til dæmis til að láta fætur Alex hreyfast fram og aftur þegar hún gengur. Endurtekningarlykkjur eru öflugur hluti af forritun. Nóttin er að koma svo í næstu áföngum ætlum við að byggja hús til að vera örugg. Við ætlum að nota lykkjukubbinn til að gera þetta mjög auðveldlega. Til að byggja vegg í húsinu getum við annaðhvort sagt Alex að fara áfram og setja planka fjórum sinnum eða við getum sagt henni að fara áfram og setja einn planka, síðan tekið þá skipun og notað endurtaka kubbinn til að láta hana gera þessa aðgerð mörgum sinnum. Svo smellum við á endurtaka kubbinn og segjum henni hve oft við viljum að hún endurtaki þessa aðgerð. Nú skulum við byggja húsið áður en nóttin skellur á! Góða skemmtun.