Hvað hefur Fíkniefnastríðið gert heiminum? Lítið á morðin og upplausnina í Mexíkó, Mið-Ameríku og mörgum öðrum heimshlutum, svarti markaðurinn á heimsmælikvarða metinn á 300 milljarða bandaríkjadala árlega, fangelsi í Bandaríkjunum yfirfull sem og annars staðar, lögregla og her dregin í óvinnandi stríð sem brýtur gegn grunnmannréttindum og almennir borgarar bara vona að þeir lendi ekki á milli, á meðan notar fleira fólk meiri fíkniefni en nokkur tímann áður. Þetta er saga lands míns með áfengisbannið og Al Capone, fimmtíuföld. Þess vegna særir það mig sérstaklega sem Bandaríkjamann, að við höfum verið drifkrafturinn bak við hið alþjóðlega fíkniefnastríð. Spyrjið hvers vegna svo mörg lönd glæpavæða fíkniefni sem þau hafa ekki heyrt um, hvers vegna sáttmálar Sameinuðu- þjóðanna um fíkniefni leggja áherslu á glæpavæðingu fremur en heilsu, jafnvel hvers vegna fjárveitingar ætlaðar baráttu gegn misnotkun fíkniefna renni ekki til hjálparstofnana heldur refsistofnana, og þið finnið gamla góða B.N.A. Hvers vegna gerðum við þetta? Sumir, sérstaklega íbúar Rómönsku-Ameríku, telja þetta ekki snúast um fíkniefni. Að þetta sé bragð til að greiða fyrir framgangi pólitískra áhrifa Bandaríkjanna. Það er þó í grunninn rangt. Við viljum ekki að glæpamenn og skæruliðar, fjármagnaðir með ólöglegum fíkniefnapeningum, ógni eða taki yfir aðrar þjóðir. Nei, raunin er að Bandaríkin eru óð þegar kemur að fíkniefnum. Ég meina, það vorum við sem héldum að við gætum bannað áfengi. Hugsið um alþjóðlega fíkniefnastríðið okkar, ekki sem skynsamlega stefnu, heldur sem alþjóðlega vörpun innlendrar geðveilu. (Lófatak) En hér eru góðu fréttirnar. Nú leiða Rússar Fíkniefnastríðið, ekki við. Flestir stjórnmálamenn í mínu landi vilja nú hætta við Fíkniefnastríðið, fækka fólki í fangelsi, ekki fjölga og ég get stoltur sagt sem Bandaríkjamaður að við stöndum nú fremst í heiminum í endurmótun reglna um marijúana. Það er nú löglegt í læknisfræðilegum tilgangi í nærri helmingi okkar 50 ríkja. Milljónir manna geta keypt maríjúanað sitt, lyfin sín, hjá sölustöðum með leyfi frá ríkinu, og yfir helmingur samlanda minna telja tíma til kominn að lögleiða og leggja skatta á maríjúana svipað og áfengi. Það er það sem Colorado og Washington gera, og Úrúgvæ, og önnur lönd eru líkleg til að fylgja eftir. Þetta er það sem ég geri; vinn að því að enda fíkniefnastríðið. Ég held það hafi byrjað í æsku minni í nokkuð trúaðri fjölskyldu með siðferðiskennd, elsti sonur rabbína, fór í háskóla þar sem ég reykti maríjúana og líkaði það. (Hlátur) Mér líkaði drykkja líka, en það var augljóst að áfengi var hættulegra af þessu tvennu en við vinirnir gátum verið handteknir fyrir að reykja jónu. Þessi hræsni hélt áfram að pirra mig svo ég skrifaði doktorsritgerðina mína um alþjóðlega fíkniefnastjórnun. Ég talaði mig inn í Innanríkisráðuneytið. Ég fékk öryggisheimild. Ég tók viðtöl við fíkniefna- lögreglumenn og aðra löggæslufulltrúa í Evrópu og N- og S Ameríku og ég spurði þá: „Hvað telur þú vera svarið?“ Í Rómönsku-Ameríku sögðu þeir við mig: „Þú getur ekki stoppað framleiðsluna. Svarið liggur í Bandaríkjunum, í því að draga úr eftirspurninni.“ Svo ég fer heim og tala við fólkið sem sér um fíkniefnavarnir þar, og það segir: „Þú veist, Ethan, að þú getur ekki hindrað eftirspurnina. Lausnin er hinu megin. Þú verður að hindra framleiðsluna.“ Svo ég fer og tala við tollverðina sem reyna að stoppa fíkniefnin á landamærunum, og þeir segja: „Þú stoppar þau ekki hérna. Lausnin er þarna, í því að draga úr framleiðslu og eftirspurn.“ Og þá áttaði ég mig á því: Allir sem taka þátt í þessu telja svarið liggja á því svæði sem þeir þekkja hvað verst. Það var þá sem ég byrjaði að lesa allt sem ég gat um geðvirk lyf: söguna, vísindin, stjórnmálin, allt um þau, og því meira sem maður les, því betur sér maður hvernig úthugsuð, upplýst, gáfuleg leið leiddi hingað, en stjórnmálin og lögin í mínu landi leiddu okkur hingað. Og þessi mismunur blasti við mér sem ótrúlegt vitsmunalegt og siðferðislegt púsluspil. Það hefur að líkindum aldrei verið til fíkniefnalaust samfélag. Nánast hvert einasta samfélag hefur innbyrt geðvirk efni til að takast á við sársauka, auka orku, blanda geði, jafnvel ná sambandi við Guð. Löngun okkar til að breyta hugarástandi okkar kann að vera jafn djúpstæð og löngun okkar í mat, félagsskap og kynlíf. Svo okkar raunverulega áskorun er að læra hvernig megi lifa með fíkniefnum svo þau valdi sem minnstum skaða og í nokkrum tilfellum sem mestum ávinningi. Ég skal segja ykkur frá öðru sem ég lærði, að ástæðan fyrir að sum lyf eru lögleg en önnur ekki hef lítið sem ekkert að gera með vísindi eða heilsu eða áhættu af notkun þeirra, en mikið að gera með hverjir nota og hverjir eru taldir nota tiltekin lyf. Seint á 19. öld, þegar flest þeirra lyfja sem nú eru ólögleg voru lögleg, voru megin neytendur ópíumefna í mínu landi og öðrum löndum, miðaldra hvítar konur, sem notuðu þau til að lina þjáningar og verki þegar fá önnur verkjalyf voru í boði. Engum datt í hug að glæpavæða þau þá þar sem enginn vildi setja ömmu í fangelsi. En þegar hundruðir þúsunda Kínverja byrjuðu að flytja til landsins og vinna hörðum höndum við járnbrautir og í námum og síðan slaka á um kvöldin líkt og þeir höfðu gert í gamla landinu með nokkrum teygum af ópíum pípunni, þá sástu fyrstu lögin sem bönnuðu fíkniefni í Kaliforníu og Nevada, drifin áfram af kynþáttafordóma- blöndnum ótta um að Kínverjar breyttu hvítum konum í ópíum-háða kynlífsþræla. Fyrstu lögin sem bönnuðu kókaín má einnig rekja til kynþáttafordómablandins ótta við svarta menn að sniffa þetta hvíta duft og gleyma sínum rétta stað í samfélagi suðurríkjanna. Og fyrstu lögin til að banna maríjúana, voru vegna ótta við Mexíkóska innflytjendur í vestur- og suðvesturríkjunum. Og það sem var raunin í mínu landi er einnig raunin í mörgum öðrum, bæði varðandi rætur lagasetningarinnar og framkvæmd. Segjum sem svo, og ég ýki bara örlítið: Ef aðalneytendur kókaíns væru vel stæðir eldri hvítir menn og aðalneytendur Viagra væru ungir svartir menn, væri reykjanlegt kókaín auðveldlega aðgengilegt með lyfseðli frá lækni en sala á Viagra myndi kosta þig fimm til tíu ár í fangelsi. (Lófatak) Ég var áður prófessor sem kenndi þetta. Nú er ég aðgerðarsinni, mannréttindaaðgerðarsinni, og það sem drífur mig áfram er skömmin yfir að tilheyra þessari annars stórkostlegu þjóð sem telur innan við fimm prósent íbúa heimsins en nærri fjórðung fanga heimsins. Það er fólkið sem ég hitti sem hefur misst einhvern sem það elskar vegna fíkniefnatengds ofbeldis eða í fangelsi eða ofskammt eða alnæmi vegna þess að fíkniefnastefna okkar leggur áherslu á glæpavæðingu fremur en heilsu. Það er gott fólk sem hefur misst störf sín, heimili sín, frelsi sitt, jafnvel börn sín til ríkisins, ekki vegna þess að það skaði einhvern heldur vegna þess að þau völdu að nota ákveðið lyf frekar en annað. Svo, er lögleiðing svarið? Um það er ég óviss. Þrjá daga í viku tel ég svo vera, þrjá daga í viku tel ég svo ekki vera, á sunnudögum efast ég. En þar sem í dag er þriðjudagur, leyfi ég mér að segja að það að lögleiða og skattleggja flest þeirra lyfja sem nú eru ólögleg myndi stórminnka glæpina, ofbeldið spillinguna og svörtu markaðina, og vandamálin sem fylgja menguðum og eftirlitslausum lyfjum, og auka öryggi almennings, og gera mögulega betri nýtingu á skattfé almennings. Ég meina, markaðirnir með maríjúana, kókaín, heróín og metamfetamín eru alþjóðlegir vörumarkaðir líkt og alþjóðlegir markaðir með áfengi, tóbak, kaffi, sykur og svo margt fleira. Þar sem er eftirspurn mun verða framboð. Sláið út einn framleiðanda og annar mun óhjákvæmilega koma fram. Fólk lítur gjarnan á bann sem hina endanlegu reglusetningu þegar það í raun stendur fyrir endalok reglusetningar og glæpamenn taka við. Þess vegna er það að nota refsilöggjöf og lögreglu til að reyna stjórna síbreytilegum alþjóðlegum vörumarkaði uppskrift að stórslysi. Það sem við raunverulega þurfum að gera er að draga fíkniefnamarkaði undirheima upp á yfirborðið og setja þeim eins skynsamlegar reglur og við getum til að lágmarka bæði skaða af fíkniefnunum og þann skaða sem fylgir bannstefnu. Þegar kemur að maríjúana þýðir þetta augljóslega löggjöf og skattlagning líkt og á áfengi. Ávinningurinn af því er gífurlegur og áhættan smávægileg. Munu fleiri nota maríjúana? Mögulega, en það verða ekki ungmenni, því það verður ekki lögleitt fyrir þau, og hreint út sagt hafa þau nú þegar bestan aðgang að maríjúana. Ég held það muni verða eldra fólk. Fólk á fimmtugs-, sjötugs- og níræðisaldri sem kemst að því að það vill frekar smá maríjúana en drykk á kvöldin eða svefntöflu eða að það hjálpi því með liðagigtina eða sykursýkina eða kryddi jafnvel upp langlíft hjónaband. (Hlátur) Það gæti því á heildina litið bætt heilsu almennings. Hvað varðar önnur fíkniefni, lítið til Portúgal, þar sem enginn fer í fangelsi fyrir vörslu fíkniefna, og stjórnvöld hafa raunverulega ákveðið að líta á fíkn sem heilsuvandamál. Lítið til Sviss, Þýskalands, Hollands, Danmerkur, Englands, þar sem fólk sem hefur verið háð heróíni í mörg ár og marg oft reynt að hætta en ekki tekist það geta fengið heróín og aðstoð á heilsugæslustöðvum og áhrifin eru augljós: Misnotkun ólöglegra lyfja, sjúkdómum, ofskömmtum, glæpum og handtökum fækkar, heilsa og vellíðan aukast, skattborgarar græða, og margir neytendur jafnvel venjast af fíkniefnunum. Lítið til Nýja-Sjálands sem lögfesti nýlega heimild til sölu á ákveðnum upplyftingarlyfjum, að því gefnu að öryggi þeirra væri staðfest. Lítið hingað til Brasilíu og nokkurra annarra landa þar sem merkilegt geðvirkt efni, ayahuasca, getur verið keypt og notað löglega svo lengi sem það er vegna trúarathafna. Lítið til Bólivíu og Perú, þar sem margskonar vörur gerðar úr kóka-laufi, upprunaefnis kókaíns, eru seld löglega til almennings án sjáanlegs skaða á heilsu almennings. Ég meina, ekki gleyma að Coca-Cola innihélt kókaín fram til 1900, og að við best vitum var ekki meira ávanabindandi en Coca-Cola í dag. Hugsið hins vegar um sígarettur: Ekkert getur krækt í þig og drepið þig jafn auðveldlega og sígarettur. Þegar rannsakendur spyrja heróínfíkla hvaða fíkniefni erfiðast er að venja sig af, segja flestir sígarettur. Þrátt fyrir það hefur í mínu landi, sem og öðrum, helmingur þeirra sem ánetjast hefur sígarettum, hætt að reykja án þess að vera handteknir eða settir í fangelsi eða sendir í „meðferð“ af saksóknara eða dómara. Það sem dugði voru skattahækkanir, tíma- og staðsetningartakmarkanir á sölu og notkun og áhrifaríkar herferðir gegn reykingum. Gætum við dregið enn meira úr reykingum með því að banna þær? Líklega. En ímyndið ykkur fíkniefnastríðs-martröðina sem myndi fylgja. Svo áskoranir dagsins í dag eru tvær. Fyrri er áskorunin er vandamál við reglubreytingar, að hanna og koma í framkvæmd öðrum valkostum en árangurslausri bannstefnu ásamt því að bæta regluverk í kringum og lifa með þeim lyfjum sem nú eru lögleg. En seinni áskorunin er erfiðari, því hún snýst um okkur. Hindranir í vegi endurmótunar eru ekki bara á vegum fangelsisiðnaðarins eða annarra hagsmunaaðila sem vilja halda hlutunum í núverandi mynd, heldur innra með okkur öllum. Það er ótti okkar og skortur á þekkingu og ímyndunarafli sem stendur í vegi raunverulegrar endurmótunar. Og í grunninn held ég að þetta snúist um krakkana, og þrá allra foreldra til að vernda börn sín, og óttann um að einhvern vegin muni fíkniefni ná til þeirra, og setji börnin okkar í hættu. Í rauninni virðist stundum sem að Fíkniefnastríðið sé réttlætt sem ein stór barnaverndarlöggjöf, sem hvaða unga manneskja sem er, getur sagt ykkur að það er ekki. Svo það sem ég segi við unglinga er: Í fyrsta lagi, ekki nota fíkniefni. Í öðru lagi, ekki nota fíkniefni. Í þriðja lagi, ef þú notar fíkniefni, þá eru nokkrir hlutir sem ég vil að þú vitir af, því að markmið mitt sem foreldri þitt er, að þú komir heill heim í lok kvölds, að þú fáir að fullorðnast og lifa heilbrigðu lífi. Það er mín speki við kennslu um fíkniefni: Öryggið á oddinn. Svo ég hef helgað líf mitt því að byggja stofnun og hreyfingu fólks sem trúir því að við þurfum að snúa baki við misheppnaðri bannstefnu fortíðarinnar og taka opnum örmum lyfjalöggjöf byggðri á vísindum, samúð, heilsu og mannréttindum, þar sem fólk með mismunandi stjórnmálaskoðanir og mismunandi bakgrunn, þar sem fólk sem elskar fíkniefni, fólk sem hatar fíkniefni, og fólki sem er alveg sama um fíkniefni, en öll teljum við að Fíkniefnastríðið, þetta afturhaldssama, hjartalausa og hörmulega Fíkniefnastríð, þurfi að binda endi á. Þakka ykkur fyrir. (Lófatak) Þakka ykkur, þakka ykkur. Chris Anderson: Ethan, til hamingju - þó nokkuð góð viðbrögð. Þetta var áhrifamikill fyrirlestur. Ekki alveg allir sem stóðu upp til að klappa samt, og ég giska á að nokkrir hér, og mögulega nokkrir sem fylgjast með á netinu, þekki ungling eða vin, eða einhvern sem veiktist, eða jafnvel dó af völdum ofskammts. Það fólk hefur líklega nálgast þig áður. Hvað segirðu við það? Ethan: Chris, það merkilegasta sem hefur gerst nýlega er að ég hef hitt fleiri og fleiri sem hafa misst systkini eða barn vegna ofskammts, og fyrir 10 árum, vildu þau bara smala saman öllum fíkniefnasölunum og skjóta þá til að leysa vandamálið. Það sem þau hafa komist að er að Fíkniefnastríðið verndaði börnin þeirra alls ekki. Ef eitthvað jók það líkurnar á að börnin þeirra lentu í hættu. Svo nú eru þau að verða hluti af hreyfingunni til endurmótunar lyfjalöggjafar. Það er annað fólk sem á börn, annað barnið er háð áfengi en hitt kókaíni eða heróíni, og það veltir fyrir sér: Af hverju fær annað barnið að taka eitt skref í einu í átt til betrunar en hitt þarf sífellt að takast á við fangelsi lögreglu og glæpamenn? Svo allir eru að átta sig á, að Fíkniefnastríðið verndar ekki nokkurn mann. CA: Sérstaklega í B.N.A. mjakast ekkert áfram í flestum pólitískum málum. Eru raunverulegar líkur á nokkurri framför á þessu sviði á næstu fimm árum? Mér finnst það mjög merkilegt. Ég fæ símtöl frá blaðamönnum sem segja við mig: „Ethan, svo virðist sem þau einu tvö mál sem miðar eitthvað áfram í bandarískum stjórnmálum, séu maríjúana lagabreytingar og hjónabönd samkynhneigðra. Hvað ertu að gera rétt?“ Svo sjáum við samvinnu beggja flokka, repúblikanar í þinginu og á löggjafarþingum ríkja að hleypa í gegn frumvörpum með stuðningi meirihluta demókrata, svo við höfum farið frá því að vera einskonar utangarðsmál, óttalegasta málefni bandarískra stjórnmála, yfir í að vera eitt það farsælasta. Ethan, þakka þér kærlega fyrir mæta á TEDGlobal. Þakka þér kærlega Chris. Þakka þér. (Lófatak)