1 00:00:00,761 --> 00:00:04,975 Hvað hefur Fíkniefnastríðið gert heiminum? 2 00:00:04,975 --> 00:00:07,152 Lítið á morðin og upplausnina í Mexíkó, 3 00:00:07,152 --> 00:00:10,999 Mið-Ameríku og mörgum öðrum heimshlutum, 4 00:00:10,999 --> 00:00:12,799 svarti markaðurinn á heimsmælikvarða 5 00:00:12,799 --> 00:00:15,375 metinn á 300 milljarða bandaríkjadala árlega, 6 00:00:15,375 --> 00:00:18,817 fangelsi í Bandaríkjunum yfirfull sem og annars staðar, 7 00:00:18,817 --> 00:00:21,495 lögregla og her dregin í óvinnandi stríð 8 00:00:21,495 --> 00:00:24,757 sem brýtur gegn grunnmannréttindum og almennir borgarar 9 00:00:24,757 --> 00:00:27,738 bara vona að þeir lendi ekki á milli, 10 00:00:27,738 --> 00:00:30,100 á meðan notar fleira fólk 11 00:00:30,100 --> 00:00:32,361 meiri fíkniefni en nokkur tímann áður. 12 00:00:32,361 --> 00:00:34,656 Þetta er saga lands míns með áfengisbannið 13 00:00:34,656 --> 00:00:37,783 og Al Capone, fimmtíuföld. 14 00:00:37,783 --> 00:00:41,336 Þess vegna særir það mig sérstaklega 15 00:00:41,336 --> 00:00:44,465 sem Bandaríkjamann, að við höfum verið drifkrafturinn 16 00:00:44,465 --> 00:00:46,501 bak við hið alþjóðlega fíkniefnastríð. 17 00:00:46,501 --> 00:00:48,503 Spyrjið hvers vegna svo mörg lönd glæpavæða 18 00:00:48,503 --> 00:00:50,292 fíkniefni sem þau hafa ekki heyrt um, 19 00:00:50,292 --> 00:00:53,318 hvers vegna sáttmálar Sameinuðu- þjóðanna um fíkniefni 20 00:00:53,318 --> 00:00:55,540 leggja áherslu á glæpavæðingu fremur en heilsu, 21 00:00:55,540 --> 00:00:57,884 jafnvel hvers vegna fjárveitingar 22 00:00:57,884 --> 00:00:59,809 ætlaðar baráttu gegn misnotkun fíkniefna 23 00:00:59,809 --> 00:01:02,290 renni ekki til hjálparstofnana heldur refsistofnana, 24 00:01:02,300 --> 00:01:05,639 og þið finnið gamla góða B.N.A. 25 00:01:05,639 --> 00:01:07,817 Hvers vegna gerðum við þetta? 26 00:01:07,817 --> 00:01:11,033 Sumir, sérstaklega íbúar Rómönsku-Ameríku, 27 00:01:11,033 --> 00:01:12,846 telja þetta ekki snúast um fíkniefni. 28 00:01:12,846 --> 00:01:15,009 Að þetta sé bragð til að greiða fyrir 29 00:01:15,009 --> 00:01:18,167 framgangi pólitískra áhrifa Bandaríkjanna. 30 00:01:18,167 --> 00:01:21,530 Það er þó í grunninn rangt. 31 00:01:21,530 --> 00:01:24,443 Við viljum ekki að glæpamenn og skæruliðar, 32 00:01:24,443 --> 00:01:26,803 fjármagnaðir með ólöglegum fíkniefnapeningum, 33 00:01:26,803 --> 00:01:29,629 ógni eða taki yfir aðrar þjóðir. 34 00:01:29,629 --> 00:01:34,200 Nei, raunin er að Bandaríkin eru óð 35 00:01:34,200 --> 00:01:35,980 þegar kemur að fíkniefnum. 36 00:01:35,980 --> 00:01:38,260 Ég meina, það vorum við sem héldum 37 00:01:38,260 --> 00:01:39,866 að við gætum bannað áfengi. 38 00:01:39,866 --> 00:01:42,149 Hugsið um alþjóðlega fíkniefnastríðið okkar, 39 00:01:43,110 --> 00:01:44,885 ekki sem skynsamlega stefnu, 40 00:01:44,885 --> 00:01:47,627 heldur sem alþjóðlega vörpun 41 00:01:47,627 --> 00:01:51,114 innlendrar geðveilu. 42 00:01:51,114 --> 00:01:54,160 (Lófatak) 43 00:01:54,160 --> 00:01:55,827 En hér eru góðu fréttirnar. 44 00:01:55,827 --> 00:01:58,800 Nú leiða Rússar Fíkniefnastríðið, ekki við. 45 00:01:58,800 --> 00:02:00,470 Flestir stjórnmálamenn í mínu landi 46 00:02:00,470 --> 00:02:02,201 vilja nú hætta við Fíkniefnastríðið, 47 00:02:02,201 --> 00:02:04,833 fækka fólki í fangelsi, ekki fjölga 48 00:02:04,833 --> 00:02:06,995 og ég get stoltur sagt sem Bandaríkjamaður 49 00:02:06,995 --> 00:02:08,946 að við stöndum nú fremst í heiminum 50 00:02:08,946 --> 00:02:11,166 í endurmótun reglna um marijúana. 51 00:02:11,166 --> 00:02:12,892 Það er nú löglegt í læknisfræðilegum 52 00:02:12,892 --> 00:02:14,912 tilgangi í nærri helmingi okkar 50 ríkja. 53 00:02:14,912 --> 00:02:17,354 Milljónir manna geta keypt maríjúanað sitt, 54 00:02:17,354 --> 00:02:20,190 lyfin sín, hjá sölustöðum með leyfi frá ríkinu, 55 00:02:20,190 --> 00:02:23,270 og yfir helmingur samlanda minna telja tíma til kominn 56 00:02:23,270 --> 00:02:25,643 að lögleiða og leggja skatta á maríjúana 57 00:02:25,643 --> 00:02:27,320 svipað og áfengi. 58 00:02:27,320 --> 00:02:29,407 Það er það sem Colorado og Washington gera, 59 00:02:29,407 --> 00:02:33,673 og Úrúgvæ, og önnur lönd eru líkleg til að fylgja eftir. 60 00:02:33,673 --> 00:02:36,161 Þetta er það sem ég geri; 61 00:02:36,161 --> 00:02:39,967 vinn að því að enda fíkniefnastríðið. 62 00:02:39,967 --> 00:02:42,626 Ég held það hafi byrjað í æsku minni 63 00:02:42,626 --> 00:02:45,205 í nokkuð trúaðri fjölskyldu með siðferðiskennd, 64 00:02:45,205 --> 00:02:47,241 elsti sonur rabbína, 65 00:02:47,241 --> 00:02:49,412 fór í háskóla þar sem ég 66 00:02:49,412 --> 00:02:52,762 reykti maríjúana 67 00:02:52,762 --> 00:02:54,980 og líkaði það. (Hlátur) 68 00:02:54,980 --> 00:02:57,455 Mér líkaði drykkja líka, en það var augljóst 69 00:02:57,455 --> 00:02:59,750 að áfengi var hættulegra af þessu tvennu 70 00:02:59,750 --> 00:03:01,667 en við vinirnir gátum verið handteknir 71 00:03:01,667 --> 00:03:03,190 fyrir að reykja jónu. 72 00:03:03,190 --> 00:03:05,549 Þessi hræsni hélt áfram að pirra mig svo ég 73 00:03:05,549 --> 00:03:08,890 skrifaði doktorsritgerðina mína um alþjóðlega fíkniefnastjórnun. 74 00:03:08,900 --> 00:03:11,180 Ég talaði mig inn í Innanríkisráðuneytið. 75 00:03:11,180 --> 00:03:12,349 Ég fékk öryggisheimild. 76 00:03:12,349 --> 00:03:15,843 Ég tók viðtöl við fíkniefna- lögreglumenn og aðra löggæslufulltrúa 77 00:03:15,843 --> 00:03:17,530 í Evrópu og N- og S Ameríku 78 00:03:17,530 --> 00:03:18,761 og ég spurði þá: 79 00:03:18,761 --> 00:03:21,385 „Hvað telur þú vera svarið?“ 80 00:03:21,385 --> 00:03:24,165 Í Rómönsku-Ameríku sögðu þeir við mig: 81 00:03:24,165 --> 00:03:26,980 „Þú getur ekki stoppað framleiðsluna. 82 00:03:26,980 --> 00:03:28,534 Svarið liggur í Bandaríkjunum, 83 00:03:28,534 --> 00:03:30,337 í því að draga úr eftirspurninni.“ 84 00:03:30,337 --> 00:03:32,853 Svo ég fer heim og tala við fólkið 85 00:03:32,853 --> 00:03:35,453 sem sér um fíkniefnavarnir þar, og það segir: 86 00:03:35,453 --> 00:03:38,681 „Þú veist, Ethan, að þú getur ekki hindrað eftirspurnina. 87 00:03:38,681 --> 00:03:41,628 Lausnin er hinu megin. Þú verður að hindra framleiðsluna.“ 88 00:03:41,628 --> 00:03:44,238 Svo ég fer og tala við tollverðina 89 00:03:44,238 --> 00:03:46,600 sem reyna að stoppa fíkniefnin á landamærunum, 90 00:03:46,600 --> 00:03:49,817 og þeir segja: „Þú stoppar þau ekki hérna. 91 00:03:49,817 --> 00:03:51,786 Lausnin er þarna, 92 00:03:51,786 --> 00:03:54,778 í því að draga úr framleiðslu og eftirspurn.“ 93 00:03:54,778 --> 00:03:56,408 Og þá áttaði ég mig á því: 94 00:03:56,408 --> 00:03:58,693 Allir sem taka þátt í þessu 95 00:03:58,693 --> 00:04:01,133 telja svarið liggja á því svæði 96 00:04:01,133 --> 00:04:04,141 sem þeir þekkja hvað verst. 97 00:04:04,141 --> 00:04:06,645 Það var þá sem ég byrjaði að lesa allt sem ég gat 98 00:04:06,645 --> 00:04:09,525 um geðvirk lyf: söguna, vísindin, 99 00:04:09,525 --> 00:04:11,630 stjórnmálin, allt um þau, 100 00:04:11,630 --> 00:04:13,946 og því meira sem maður les, 101 00:04:13,946 --> 00:04:16,488 því betur sér maður hvernig úthugsuð, 102 00:04:16,488 --> 00:04:19,852 upplýst, gáfuleg leið leiddi hingað, 103 00:04:19,852 --> 00:04:22,360 en stjórnmálin og lögin í mínu landi 104 00:04:22,360 --> 00:04:24,396 leiddu okkur hingað. 105 00:04:24,396 --> 00:04:28,187 Og þessi mismunur blasti við mér sem ótrúlegt 106 00:04:28,187 --> 00:04:32,354 vitsmunalegt og siðferðislegt púsluspil. 107 00:04:34,385 --> 00:04:36,411 Það hefur að líkindum aldrei verið til 108 00:04:36,411 --> 00:04:39,020 fíkniefnalaust samfélag. 109 00:04:39,020 --> 00:04:40,770 Nánast hvert einasta samfélag 110 00:04:40,770 --> 00:04:43,171 hefur innbyrt geðvirk efni 111 00:04:43,171 --> 00:04:46,786 til að takast á við sársauka, auka orku, blanda geði, 112 00:04:46,786 --> 00:04:48,819 jafnvel ná sambandi við Guð. 113 00:04:48,819 --> 00:04:51,507 Löngun okkar til að breyta hugarástandi okkar 114 00:04:51,507 --> 00:04:53,937 kann að vera jafn djúpstæð og löngun okkar 115 00:04:53,937 --> 00:04:57,854 í mat, félagsskap og kynlíf. 116 00:04:57,854 --> 00:04:59,991 Svo okkar raunverulega áskorun 117 00:04:59,991 --> 00:05:02,871 er að læra hvernig megi lifa með fíkniefnum 118 00:05:02,871 --> 00:05:05,627 svo þau valdi sem minnstum skaða 119 00:05:05,627 --> 00:05:09,840 og í nokkrum tilfellum sem mestum ávinningi. 120 00:05:09,840 --> 00:05:11,910 Ég skal segja ykkur frá öðru sem ég lærði, 121 00:05:11,910 --> 00:05:14,998 að ástæðan fyrir að sum lyf eru lögleg en önnur ekki 122 00:05:14,998 --> 00:05:17,956 hef lítið sem ekkert að gera með vísindi eða heilsu 123 00:05:17,956 --> 00:05:19,789 eða áhættu af notkun þeirra, 124 00:05:19,789 --> 00:05:22,185 en mikið að gera með hverjir nota 125 00:05:22,185 --> 00:05:25,313 og hverjir eru taldir nota tiltekin lyf. 126 00:05:25,313 --> 00:05:27,383 Seint á 19. öld, 127 00:05:27,383 --> 00:05:30,723 þegar flest þeirra lyfja sem nú eru ólögleg voru lögleg, 128 00:05:30,723 --> 00:05:33,435 voru megin neytendur ópíumefna í mínu landi 129 00:05:33,435 --> 00:05:37,239 og öðrum löndum, miðaldra hvítar konur, 130 00:05:37,239 --> 00:05:39,598 sem notuðu þau til að lina þjáningar og verki 131 00:05:39,598 --> 00:05:42,320 þegar fá önnur verkjalyf voru í boði. 132 00:05:42,320 --> 00:05:44,481 Engum datt í hug að glæpavæða þau þá 133 00:05:44,481 --> 00:05:47,478 þar sem enginn vildi setja ömmu í fangelsi. 134 00:05:47,478 --> 00:05:49,936 En þegar hundruðir þúsunda Kínverja 135 00:05:49,936 --> 00:05:51,725 byrjuðu að flytja til landsins 136 00:05:51,725 --> 00:05:54,323 og vinna hörðum höndum við járnbrautir og í námum 137 00:05:54,323 --> 00:05:55,802 og síðan slaka á um kvöldin 138 00:05:55,802 --> 00:05:57,696 líkt og þeir höfðu gert í gamla landinu 139 00:05:57,696 --> 00:06:00,163 með nokkrum teygum af ópíum pípunni, 140 00:06:00,163 --> 00:06:02,480 þá sástu fyrstu lögin sem bönnuðu fíkniefni 141 00:06:02,480 --> 00:06:03,770 í Kaliforníu og Nevada, 142 00:06:03,770 --> 00:06:06,688 drifin áfram af kynþáttafordóma- blöndnum ótta um að Kínverjar 143 00:06:06,688 --> 00:06:07,994 breyttu hvítum konum 144 00:06:07,994 --> 00:06:11,378 í ópíum-háða kynlífsþræla. 145 00:06:11,378 --> 00:06:14,213 Fyrstu lögin sem bönnuðu kókaín má einnig rekja til 146 00:06:14,213 --> 00:06:17,980 kynþáttafordómablandins ótta við svarta menn að sniffa þetta hvíta duft 147 00:06:17,980 --> 00:06:19,859 og gleyma sínum rétta stað 148 00:06:19,859 --> 00:06:21,813 í samfélagi suðurríkjanna. 149 00:06:21,813 --> 00:06:23,796 Og fyrstu lögin til að banna maríjúana, 150 00:06:23,796 --> 00:06:25,869 voru vegna ótta við Mexíkóska innflytjendur 151 00:06:25,869 --> 00:06:29,645 í vestur- og suðvesturríkjunum. 152 00:06:29,645 --> 00:06:32,379 Og það sem var raunin í mínu landi 153 00:06:32,379 --> 00:06:34,876 er einnig raunin í mörgum öðrum, 154 00:06:34,876 --> 00:06:37,120 bæði varðandi rætur lagasetningarinnar 155 00:06:37,120 --> 00:06:40,543 og framkvæmd. 156 00:06:40,543 --> 00:06:42,160 Segjum sem svo, 157 00:06:42,160 --> 00:06:44,841 og ég ýki bara örlítið: 158 00:06:44,841 --> 00:06:47,923 Ef aðalneytendur kókaíns 159 00:06:47,923 --> 00:06:49,917 væru vel stæðir eldri hvítir menn 160 00:06:49,917 --> 00:06:52,906 og aðalneytendur Viagra 161 00:06:52,906 --> 00:06:54,572 væru ungir svartir menn, 162 00:06:54,572 --> 00:06:57,912 væri reykjanlegt kókaín auðveldlega aðgengilegt með lyfseðli frá lækni 163 00:06:57,912 --> 00:07:01,197 en sala á Viagra myndi kosta þig fimm til tíu ár í fangelsi. 164 00:07:01,197 --> 00:07:04,981 (Lófatak) 165 00:07:04,981 --> 00:07:08,835 Ég var áður prófessor sem kenndi þetta. 166 00:07:08,835 --> 00:07:12,490 Nú er ég aðgerðarsinni, mannréttindaaðgerðarsinni, 167 00:07:12,490 --> 00:07:15,091 og það sem drífur mig áfram er skömmin 168 00:07:15,091 --> 00:07:17,559 yfir að tilheyra þessari annars stórkostlegu þjóð 169 00:07:17,559 --> 00:07:20,212 sem telur innan við fimm prósent íbúa heimsins 170 00:07:20,212 --> 00:07:23,840 en nærri fjórðung fanga heimsins. 171 00:07:23,840 --> 00:07:26,241 Það er fólkið sem ég hitti sem hefur misst einhvern 172 00:07:26,241 --> 00:07:29,105 sem það elskar vegna fíkniefnatengds ofbeldis eða í fangelsi 173 00:07:29,105 --> 00:07:30,217 eða ofskammt eða alnæmi 174 00:07:30,217 --> 00:07:32,617 vegna þess að fíkniefnastefna okkar leggur áherslu 175 00:07:32,617 --> 00:07:34,261 á glæpavæðingu fremur en heilsu. 176 00:07:34,261 --> 00:07:37,490 Það er gott fólk sem hefur misst störf sín, 177 00:07:37,490 --> 00:07:41,120 heimili sín, frelsi sitt, jafnvel börn sín 178 00:07:41,120 --> 00:07:44,588 til ríkisins, ekki vegna þess að það skaði einhvern 179 00:07:44,588 --> 00:07:47,813 heldur vegna þess að þau völdu að nota ákveðið lyf 180 00:07:47,813 --> 00:07:50,827 frekar en annað. 181 00:07:50,827 --> 00:07:55,176 Svo, er lögleiðing svarið? 182 00:07:55,176 --> 00:07:56,973 Um það er ég óviss. 183 00:07:56,973 --> 00:08:00,396 Þrjá daga í viku tel ég svo vera, þrjá daga í viku tel ég svo ekki vera, 184 00:08:00,396 --> 00:08:02,616 á sunnudögum efast ég. 185 00:08:02,616 --> 00:08:05,142 En þar sem í dag er þriðjudagur, 186 00:08:05,142 --> 00:08:09,844 leyfi ég mér að segja að það að lögleiða og skattleggja 187 00:08:09,844 --> 00:08:12,262 flest þeirra lyfja sem nú eru ólögleg 188 00:08:12,262 --> 00:08:14,636 myndi stórminnka glæpina, ofbeldið 189 00:08:14,636 --> 00:08:16,368 spillinguna og svörtu markaðina, 190 00:08:16,368 --> 00:08:19,405 og vandamálin sem fylgja menguðum og eftirlitslausum lyfjum, 191 00:08:19,405 --> 00:08:21,352 og auka öryggi almennings, 192 00:08:21,352 --> 00:08:23,556 og gera mögulega betri nýtingu 193 00:08:23,556 --> 00:08:25,772 á skattfé almennings. 194 00:08:25,772 --> 00:08:29,552 Ég meina, markaðirnir með maríjúana, kókaín, 195 00:08:29,552 --> 00:08:31,565 heróín og metamfetamín 196 00:08:31,565 --> 00:08:34,130 eru alþjóðlegir vörumarkaðir 197 00:08:34,130 --> 00:08:37,325 líkt og alþjóðlegir markaðir með áfengi, tóbak, 198 00:08:37,325 --> 00:08:40,205 kaffi, sykur og svo margt fleira. 199 00:08:40,205 --> 00:08:42,601 Þar sem er eftirspurn 200 00:08:42,601 --> 00:08:45,124 mun verða framboð. 201 00:08:45,124 --> 00:08:47,280 Sláið út einn framleiðanda og annar 202 00:08:47,280 --> 00:08:48,990 mun óhjákvæmilega koma fram. 203 00:08:48,990 --> 00:08:51,370 Fólk lítur gjarnan á bann 204 00:08:51,370 --> 00:08:53,868 sem hina endanlegu reglusetningu 205 00:08:53,868 --> 00:08:57,887 þegar það í raun stendur fyrir endalok reglusetningar 206 00:08:57,887 --> 00:09:01,634 og glæpamenn taka við. 207 00:09:01,634 --> 00:09:04,164 Þess vegna er það að nota refsilöggjöf og lögreglu 208 00:09:04,164 --> 00:09:07,382 til að reyna stjórna 209 00:09:07,382 --> 00:09:10,486 síbreytilegum alþjóðlegum vörumarkaði 210 00:09:10,486 --> 00:09:13,355 uppskrift að stórslysi. 211 00:09:13,355 --> 00:09:15,526 Það sem við raunverulega þurfum að gera 212 00:09:15,526 --> 00:09:17,900 er að draga fíkniefnamarkaði undirheima 213 00:09:17,900 --> 00:09:20,813 upp á yfirborðið 214 00:09:20,813 --> 00:09:24,885 og setja þeim eins skynsamlegar reglur og við getum 215 00:09:24,885 --> 00:09:27,674 til að lágmarka bæði skaða af fíkniefnunum 216 00:09:27,674 --> 00:09:31,162 og þann skaða sem fylgir bannstefnu. 217 00:09:31,162 --> 00:09:34,727 Þegar kemur að maríjúana þýðir þetta augljóslega 218 00:09:34,727 --> 00:09:37,393 löggjöf og skattlagning líkt og á áfengi. 219 00:09:37,393 --> 00:09:40,723 Ávinningurinn af því er gífurlegur og áhættan smávægileg. 220 00:09:40,723 --> 00:09:43,434 Munu fleiri nota maríjúana? 221 00:09:43,434 --> 00:09:47,405 Mögulega, en það verða ekki ungmenni, 222 00:09:47,405 --> 00:09:49,407 því það verður ekki lögleitt fyrir þau, 223 00:09:49,407 --> 00:09:51,218 og hreint út sagt hafa þau nú þegar 224 00:09:51,218 --> 00:09:53,254 bestan aðgang að maríjúana. 225 00:09:53,254 --> 00:09:55,403 Ég held það muni verða eldra fólk. 226 00:09:55,403 --> 00:09:57,562 Fólk á fimmtugs-, sjötugs- og 227 00:09:57,562 --> 00:10:01,208 níræðisaldri sem kemst að því að það vill frekar smá maríjúana 228 00:10:01,208 --> 00:10:04,498 en drykk á kvöldin eða svefntöflu 229 00:10:04,498 --> 00:10:08,138 eða að það hjálpi því með liðagigtina eða sykursýkina 230 00:10:08,138 --> 00:10:13,330 eða kryddi jafnvel upp langlíft hjónaband. (Hlátur) 231 00:10:13,330 --> 00:10:16,484 Það gæti því á heildina litið bætt heilsu almennings. 232 00:10:16,484 --> 00:10:18,846 Hvað varðar önnur fíkniefni, 233 00:10:18,846 --> 00:10:21,467 lítið til Portúgal, þar sem enginn fer í fangelsi 234 00:10:21,467 --> 00:10:22,850 fyrir vörslu fíkniefna, 235 00:10:22,850 --> 00:10:24,900 og stjórnvöld hafa raunverulega ákveðið 236 00:10:24,900 --> 00:10:26,690 að líta á fíkn sem heilsuvandamál. 237 00:10:26,690 --> 00:10:28,571 Lítið til Sviss, Þýskalands, Hollands, 238 00:10:28,571 --> 00:10:30,817 Danmerkur, Englands, þar sem fólk sem hefur 239 00:10:30,817 --> 00:10:32,558 verið háð heróíni í mörg ár 240 00:10:32,558 --> 00:10:34,864 og marg oft reynt að hætta en ekki tekist það 241 00:10:34,864 --> 00:10:37,722 geta fengið heróín og aðstoð 242 00:10:37,722 --> 00:10:41,163 á heilsugæslustöðvum og áhrifin eru augljós: 243 00:10:41,163 --> 00:10:44,227 Misnotkun ólöglegra lyfja, sjúkdómum, 244 00:10:44,227 --> 00:10:48,374 ofskömmtum, glæpum og handtökum fækkar, 245 00:10:48,374 --> 00:10:50,523 heilsa og vellíðan aukast, 246 00:10:50,523 --> 00:10:52,255 skattborgarar græða, 247 00:10:52,255 --> 00:10:56,405 og margir neytendur jafnvel venjast af fíkniefnunum. 248 00:10:56,405 --> 00:10:59,207 Lítið til Nýja-Sjálands sem lögfesti nýlega 249 00:10:59,207 --> 00:11:02,142 heimild til sölu á ákveðnum upplyftingarlyfjum, 250 00:11:02,142 --> 00:11:04,843 að því gefnu að öryggi þeirra væri staðfest. 251 00:11:04,843 --> 00:11:07,542 Lítið hingað til Brasilíu og nokkurra annarra landa 252 00:11:07,542 --> 00:11:10,605 þar sem merkilegt geðvirkt efni, 253 00:11:10,605 --> 00:11:13,830 ayahuasca, getur verið keypt og notað löglega 254 00:11:13,830 --> 00:11:16,958 svo lengi sem það er vegna trúarathafna. 255 00:11:16,958 --> 00:11:18,960 Lítið til Bólivíu og Perú, 256 00:11:18,960 --> 00:11:21,749 þar sem margskonar vörur gerðar úr kóka-laufi, 257 00:11:21,749 --> 00:11:23,650 upprunaefnis kókaíns, 258 00:11:23,650 --> 00:11:25,270 eru seld löglega til almennings 259 00:11:25,270 --> 00:11:28,403 án sjáanlegs skaða á heilsu almennings. 260 00:11:28,403 --> 00:11:32,189 Ég meina, ekki gleyma að Coca-Cola innihélt kókaín fram til 1900, 261 00:11:32,189 --> 00:11:34,667 og að við best vitum var ekki meira ávanabindandi 262 00:11:34,667 --> 00:11:38,460 en Coca-Cola í dag. 263 00:11:38,460 --> 00:11:41,537 Hugsið hins vegar um sígarettur: 264 00:11:41,537 --> 00:11:46,523 Ekkert getur krækt í þig og drepið þig jafn auðveldlega og sígarettur. 265 00:11:46,523 --> 00:11:49,377 Þegar rannsakendur spyrja heróínfíkla 266 00:11:49,377 --> 00:11:52,883 hvaða fíkniefni erfiðast er að venja sig af, segja flestir sígarettur. 267 00:11:52,883 --> 00:11:55,267 Þrátt fyrir það hefur í mínu landi, sem og öðrum, 268 00:11:55,267 --> 00:11:57,709 helmingur þeirra sem ánetjast hefur sígarettum, 269 00:11:57,709 --> 00:11:59,644 hætt að reykja 270 00:11:59,644 --> 00:12:02,652 án þess að vera handteknir eða settir í fangelsi 271 00:12:02,652 --> 00:12:04,908 eða sendir í „meðferð“ 272 00:12:04,908 --> 00:12:06,641 af saksóknara eða dómara. 273 00:12:06,641 --> 00:12:09,937 Það sem dugði voru skattahækkanir, 274 00:12:09,937 --> 00:12:13,480 tíma- og staðsetningartakmarkanir á sölu og notkun 275 00:12:13,480 --> 00:12:16,552 og áhrifaríkar herferðir gegn reykingum. 276 00:12:16,552 --> 00:12:20,492 Gætum við dregið enn meira úr reykingum 277 00:12:20,492 --> 00:12:23,512 með því að banna þær? 278 00:12:23,512 --> 00:12:25,062 Líklega. 279 00:12:25,062 --> 00:12:28,442 En ímyndið ykkur fíkniefnastríðs-martröðina 280 00:12:28,442 --> 00:12:31,480 sem myndi fylgja. 281 00:12:31,480 --> 00:12:33,763 Svo áskoranir dagsins í dag 282 00:12:33,763 --> 00:12:35,630 eru tvær. 283 00:12:35,630 --> 00:12:38,645 Fyrri er áskorunin er vandamál við reglubreytingar, 284 00:12:38,645 --> 00:12:42,323 að hanna og koma í framkvæmd öðrum valkostum 285 00:12:42,323 --> 00:12:44,741 en árangurslausri bannstefnu 286 00:12:44,741 --> 00:12:48,161 ásamt því að bæta regluverk í kringum 287 00:12:48,161 --> 00:12:51,830 og lifa með þeim lyfjum sem nú eru lögleg. 288 00:12:51,830 --> 00:12:55,191 En seinni áskorunin er erfiðari, 289 00:12:55,191 --> 00:12:58,802 því hún snýst um okkur. 290 00:12:58,802 --> 00:13:02,290 Hindranir í vegi endurmótunar 291 00:13:02,290 --> 00:13:04,450 eru ekki bara á vegum fangelsisiðnaðarins 292 00:13:04,450 --> 00:13:06,654 eða annarra hagsmunaaðila sem vilja halda 293 00:13:06,654 --> 00:13:08,080 hlutunum í núverandi mynd, 294 00:13:08,080 --> 00:13:11,920 heldur innra með okkur öllum. 295 00:13:11,920 --> 00:13:15,970 Það er ótti okkar og skortur á þekkingu 296 00:13:15,970 --> 00:13:22,670 og ímyndunarafli sem stendur í vegi raunverulegrar endurmótunar. 297 00:13:22,670 --> 00:13:27,240 Og í grunninn held ég að þetta snúist um krakkana, 298 00:13:27,240 --> 00:13:30,985 og þrá allra foreldra til að vernda börn sín, 299 00:13:30,985 --> 00:13:34,315 og óttann um að einhvern vegin muni fíkniefni ná til þeirra, 300 00:13:34,315 --> 00:13:36,244 og setji börnin okkar í hættu. 301 00:13:36,244 --> 00:13:38,314 Í rauninni virðist stundum sem 302 00:13:38,314 --> 00:13:40,290 að Fíkniefnastríðið sé réttlætt 303 00:13:40,290 --> 00:13:44,216 sem ein stór barnaverndarlöggjöf, 304 00:13:44,216 --> 00:13:47,823 sem hvaða unga manneskja sem er, getur sagt ykkur að það er ekki. 305 00:13:47,823 --> 00:13:51,929 Svo það sem ég segi við unglinga er: 306 00:13:51,929 --> 00:13:55,615 Í fyrsta lagi, ekki nota fíkniefni. 307 00:13:55,615 --> 00:13:59,405 Í öðru lagi, ekki nota fíkniefni. 308 00:13:59,405 --> 00:14:02,825 Í þriðja lagi, ef þú notar fíkniefni, 309 00:14:02,825 --> 00:14:05,367 þá eru nokkrir hlutir sem ég vil að þú vitir af, 310 00:14:05,367 --> 00:14:09,410 því að markmið mitt sem foreldri þitt er, 311 00:14:09,410 --> 00:14:12,391 að þú komir heill heim í lok kvölds, 312 00:14:12,391 --> 00:14:15,924 að þú fáir að fullorðnast og lifa heilbrigðu lífi. 313 00:14:15,924 --> 00:14:21,537 Það er mín speki við kennslu um fíkniefni: Öryggið á oddinn. 314 00:14:21,537 --> 00:14:25,193 Svo ég hef helgað líf mitt því 315 00:14:25,193 --> 00:14:27,701 að byggja stofnun og hreyfingu fólks 316 00:14:27,701 --> 00:14:30,561 sem trúir því að við þurfum að snúa baki við 317 00:14:30,561 --> 00:14:32,606 misheppnaðri bannstefnu fortíðarinnar 318 00:14:32,606 --> 00:14:35,305 og taka opnum örmum lyfjalöggjöf byggðri á vísindum, 319 00:14:35,305 --> 00:14:38,246 samúð, heilsu og mannréttindum, 320 00:14:38,246 --> 00:14:40,884 þar sem fólk með mismunandi stjórnmálaskoðanir 321 00:14:40,884 --> 00:14:42,865 og mismunandi bakgrunn, 322 00:14:42,865 --> 00:14:44,599 þar sem fólk sem elskar fíkniefni, 323 00:14:44,599 --> 00:14:45,938 fólk sem hatar fíkniefni, 324 00:14:45,938 --> 00:14:48,250 og fólki sem er alveg sama um fíkniefni, 325 00:14:48,250 --> 00:14:51,684 en öll teljum við að Fíkniefnastríðið, 326 00:14:51,684 --> 00:14:55,931 þetta afturhaldssama, hjartalausa og hörmulega Fíkniefnastríð, 327 00:14:55,931 --> 00:14:59,030 þurfi að binda endi á. 328 00:14:59,030 --> 00:15:00,873 Þakka ykkur fyrir. 329 00:15:00,873 --> 00:15:05,880 (Lófatak) 330 00:15:15,042 --> 00:15:17,722 Þakka ykkur, þakka ykkur. 331 00:15:17,722 --> 00:15:19,943 Chris Anderson: Ethan, 332 00:15:19,943 --> 00:15:23,182 til hamingju - þó nokkuð góð viðbrögð. 333 00:15:23,182 --> 00:15:25,926 Þetta var áhrifamikill fyrirlestur. 334 00:15:25,926 --> 00:15:29,234 Ekki alveg allir sem stóðu upp til að klappa samt, 335 00:15:29,234 --> 00:15:30,921 og ég giska á að nokkrir hér, 336 00:15:30,921 --> 00:15:33,187 og mögulega nokkrir sem fylgjast með á netinu, 337 00:15:33,187 --> 00:15:37,287 þekki ungling eða vin, 338 00:15:37,287 --> 00:15:39,504 eða einhvern sem veiktist, 339 00:15:39,504 --> 00:15:42,500 eða jafnvel dó af völdum ofskammts. 340 00:15:42,500 --> 00:15:44,546 Það fólk hefur líklega nálgast þig áður. 341 00:15:44,606 --> 00:15:46,557 Hvað segirðu við það? 342 00:15:46,557 --> 00:15:48,739 Ethan: Chris, það merkilegasta sem hefur 343 00:15:48,739 --> 00:15:50,980 gerst nýlega er að ég hef hitt fleiri og fleiri 344 00:15:50,980 --> 00:15:53,558 sem hafa misst systkini eða barn 345 00:15:53,558 --> 00:15:55,184 vegna ofskammts, 346 00:15:55,184 --> 00:15:57,120 og fyrir 10 árum, vildu þau bara smala 347 00:15:57,120 --> 00:15:59,120 saman öllum fíkniefnasölunum og skjóta þá 348 00:15:59,120 --> 00:16:00,481 til að leysa vandamálið. 349 00:16:00,481 --> 00:16:01,776 Það sem þau hafa komist að 350 00:16:01,776 --> 00:16:04,619 er að Fíkniefnastríðið verndaði börnin þeirra alls ekki. 351 00:16:04,619 --> 00:16:06,108 Ef eitthvað jók það líkurnar á 352 00:16:06,108 --> 00:16:08,210 að börnin þeirra lentu í hættu. 353 00:16:08,210 --> 00:16:09,820 Svo nú eru þau að verða hluti af 354 00:16:09,820 --> 00:16:11,995 hreyfingunni til endurmótunar lyfjalöggjafar. 355 00:16:11,995 --> 00:16:13,385 Það er annað fólk sem á börn, 356 00:16:13,385 --> 00:16:16,850 annað barnið er háð áfengi en hitt kókaíni eða heróíni, 357 00:16:16,850 --> 00:16:18,208 og það veltir fyrir sér: 358 00:16:18,208 --> 00:16:20,705 Af hverju fær annað barnið að taka eitt skref í einu 359 00:16:20,705 --> 00:16:21,889 í átt til betrunar 360 00:16:21,889 --> 00:16:24,093 en hitt þarf sífellt að takast á við fangelsi 361 00:16:24,093 --> 00:16:25,418 lögreglu og glæpamenn? 362 00:16:25,418 --> 00:16:27,068 Svo allir eru að átta sig á, 363 00:16:27,068 --> 00:16:29,353 að Fíkniefnastríðið verndar ekki nokkurn mann. 364 00:16:29,353 --> 00:16:31,754 CA: Sérstaklega í B.N.A. mjakast ekkert áfram 365 00:16:31,754 --> 00:16:33,149 í flestum pólitískum málum. 366 00:16:33,149 --> 00:16:34,881 Eru raunverulegar líkur á nokkurri 367 00:16:34,881 --> 00:16:38,047 framför á þessu sviði á næstu fimm árum? 368 00:16:38,047 --> 00:16:40,245 Mér finnst það mjög merkilegt. Ég fæ símtöl 369 00:16:40,245 --> 00:16:42,126 frá blaðamönnum sem segja við mig: 370 00:16:42,126 --> 00:16:44,130 „Ethan, svo virðist sem þau einu tvö mál 371 00:16:44,130 --> 00:16:46,593 sem miðar eitthvað áfram í bandarískum stjórnmálum, 372 00:16:46,593 --> 00:16:49,314 séu maríjúana lagabreytingar og hjónabönd samkynhneigðra. 373 00:16:49,314 --> 00:16:50,891 Hvað ertu að gera rétt?“ 374 00:16:50,891 --> 00:16:53,479 Svo sjáum við samvinnu beggja flokka, 375 00:16:53,479 --> 00:16:55,771 repúblikanar í þinginu 376 00:16:55,771 --> 00:16:58,840 og á löggjafarþingum ríkja að hleypa í gegn frumvörpum 377 00:16:58,840 --> 00:17:00,544 með stuðningi meirihluta demókrata, 378 00:17:00,544 --> 00:17:03,340 svo við höfum farið frá því að vera einskonar utangarðsmál, 379 00:17:03,340 --> 00:17:05,411 óttalegasta málefni bandarískra stjórnmála, 380 00:17:05,411 --> 00:17:07,421 yfir í að vera eitt það farsælasta. 381 00:17:07,421 --> 00:17:10,364 Ethan, þakka þér kærlega fyrir mæta á TEDGlobal. 382 00:17:10,364 --> 00:17:13,264 Þakka þér kærlega Chris. Þakka þér. (Lófatak)